Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 87
— 85 —
1965
þessu sinni. Þangað virtist „pestin“ fyrst hafa komið hingað til lands.
Engin dauðsföll urðu, en nokkrir fengu lungnabólgu. Margir voru þó
lengi að ná sér. Eitthvað hafði verið bólusett gegn faraldri þessum,
en árangur vafasamur, enda náðist ekki til að bólusetja fólk almennt
í tíma.
Hofsós. Skæður faraldur í marz og apríl. Mikið var bólusett, en
veikin breiddist mjög hratt út, og má þar vafalaust um kenna miklum
ferðalögum og skemmtunum, en sæluvika Skagfirðinga var haldin í
aprílbyrjun. Fylgikvillar voru fáir og aðeins eitt dauðsfall (meningitis
sem complicatio).
Dalvíkur. Inflúenzufaraldur á miðju sumri, náði sér lítt niðri.
BrevÓumýrar. Gekk í apríl—júlí. Var ekki þung og lítið um fylgi-
kvilla, en gangur mjög óvenjulegur. Hún var að skjóta upp kollinum
öðru hverju í nær 4 mánuði og á fáum bæjum í senn. Ég bólusetti á
sjötta hundrað manns, eða megin allra fullorðinna héraðsbúa, þar
á meðal svo til alla nemendur að Laugum. Ég hef áður verið mjög
óánægður með og vantrúaður á árangur af bólusetningu gegn inflúenzu,
en nú fannst mér þessi sérkennilegi gangur og litla útbreiðsla benda á
ákveðið og greinilegt gagn að henni. En Adam var ekki lengi í Paradís.
Ibúar á Hólsfjöllum og í Víðidal og Möðrudal eru nokkuð einangraðir
að vetri til, en í þjóðbraut að sumri. þegar vegir opnast. Ég bólusetti
allt fullorðið fólk á þessum bæjum tvisvar, fyrst í apríllok, síðan
aftur í maílok. Síðast í júní barst inflúenzan á 3 bæi þar, og hvert ein-
asta mannsbarn á þeim veiktist. Ég fór aftur að efast um árangur
bólusetningarinnar!
Þórshafnar. Nokkur tilfelli í júlí og ágúst. Væg. 90 manns voru bólu-
settir og veiktust lítið sem ekkert.
Vopnafj. I júní og í júlí gekk inflúenza, en náði ekki verulegri
útbreiðslu né lagðist þungt á fólk, enda margir verið bólusettir í tíma.
Keflavíkur. Faraldur gekk í marz og apríl. Var fremur væg og lítið
um eftirköst.
Hafnarfj. Barst hingað í vertíðarbyrjun. Var þá gripið til þess
að bólusetja gegn inflúenzu. Voru einkum bólusettir starfshópar, sem
sízt máttu missast frá störfum, svo sem lögregla, slökkvilið, starfsfólk
í útgerðarstöðvum og frystihúsum og sjómenn á skipaflotanum. Varð
furðu lítið úr þessum faraldri.
15. Mengisbólga (meningitis).
Töflur II, III og IV, 15a, b og c.
a. Af völdum mengiskokka (057 men. meningococcica).
1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963
Sjúkl. 76 22 51 35 31 34 41 29
Dánir 1 1 1 3 3 3 7 7
1964 1965
16 7