Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Síða 101
— 99 —
1965
Á árinu fóru fram 60 fóstureyðingar samkvæmt lögum nr. 38/1935,
og er gerð grein fyrir þeim aðgerðum í töflu XII. Tekið var tillit til
félagslegra aðstæðna jafnframt í 19 tilfellum.
Veitt voru 21 leyfi til aðgerða samkvæmt afkynjunar- og vönunar-
lögum nr. 16/1938, þar af 8 til fóstureyðinga eingöngu eða ásamt
vönun.
Akranes. Af 152 fæðingum voru 151 á sjúkrahúsinu.
Kleppjárnsreykja. Barnshafandi konur komu í eftirlit, en fæddu
flestar á sjúkrahúsum.
Búöardals. Læknir annaðist að mestu mæðraeftirlit.
Patreksfj. Konur koma yfirleitt reglulega til skoðunar um með-
göngutímann, a. m. k. seinni helming hans. Einnig er fylgzt með kon-
um eftir barnsburð. Langflestar konur fæða hér á sjúkrahúsinu.
Þingeyrar. Konur koma reglulega til skoðunar á meðgöngutíma og
fæða hér á sjúkraskýli án undantekninga.
Flateyrar. Flestar konur koma reglulega í skoðun seinustu mánuði
meðgöngutímans, og allar koma nú orðið á sjúkraskýlið til að fæða.
Bolungarvíkur. Flestar barnshafandi konur leita læknis nokkuð reglu-
lega.
ólafsfj. Eftirlit með barnshafandi konum einu sinni í viku.
Grenivíkur. Ljósmæður engar í héraðinu. Fylgzt er nokkuð með
ófrískum konum um meðgöngutímann.
Raufarhafnar. Verðandi mæður koma yfirleitt reglulega í skoðun.
Þórshafnar. Reglulegt eftirlit með vanfærum konum.
Vopnafj. Ekki hefur sá háttur verið hafður á hér að hafa sér tíma
fyrir skoðun vanfærra, en konur hvattar til að koma til eftirlits. Heldur
finnst mér þær tregar til þess, a. m. k. í fyrsta sinn.
Búða. Margar konur, einkum þær, sem langt eiga til læknis, fara að
heiman til að fæða. Konur, sem eiga heima í næsta nágrenni við lækni,
láta yfirleitt fylgjast með sér um meðgöngutímann, en hjá öðrum er
það mjög stopult.
Keflavíkur. Ljósmæður fylgjast að einhverju leyti með barnshafandi
konum, svo og heimilislæknir.
B. Meðferð ungbarna.
Ljósmæður geta þess í skýrslum sínum (sbr. töflu XIII), hvernig
4445 börn, sem skýrslurnar ná til að þessu leyti, voru nærð eftir fæð-
inguna. Eru hundraðstölur sem hér segir:
Brjóst fengu .......
Brjóst og pela fengu
Pela fengu .........
76,69%
18,13—
5,17—