Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Page 110
1965
— 108 —
sjúkraflutninga. Er hann keyptur að frumkvæði Lions-klúbbs hér í
sveitunum.
Þórshafnar. Ferðir alls 83.
Hafnar. Ferðir 202, um 12660 km, meðalvegalengd 62 km.
C. Aðrir heilbrigðisstarfsmenn.
1. Tannlæknar og tannsmiðir.
Tannlæknar, sem hafa tannlækningaleyfi á Islandi, töldust 85 í árs-
lok. Af þeim voru búsettir og starfandi í Reykjavík 56 (búsettir 59),
búsettir í öðrum kaupstöðum 11, utan kaupstaða 3, erlendis 11 og án
fasts aðseturs (bráðabirgðastörf erlendis) 1. Starfandi tannlæknar
töldust 69 alls.
Tannlækningaleyfi (takmarkað lækningaleyfi) veitt á árinu:
ólafur Björgúlfsson (15. maí).
Ómar Konráðsson (2. febr.).
Sigurgeir Steingrímsson (15. maí).
Sérfræðingaleyfi í tannlækningum.
Þórður Eydal Magnússon, tannréttingar (30. sept.).
2. Sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfarar, sem hlotið hafa leyfi til starfs síns, eru taldir 26 í
árslok. 15 eru búsettir í Reykjavík, 8 í öðrum kaupstöðum og 3 utan
kaupstaða. Ekkert þess háttar leyfi var veitt á árinu.
3. Hjúkrunarkonur.
Starfandi hjúkrunarkonur eru taldar 307 í árslok. 211 störfuðu í
Reykjavík, 83 í öðrum kaupstöðum og 13 utan kaupstaða. Hjúkrunar-
nemar voru 106. Samkvæmt þessu voru 631 íbúar um hverja starfandi
hjúkrunarkonu.
U. Ljósmæður.
Skipaðar ljósmæður eru taldar 102 í árslok, en aðrar starfandi ljós-
mæður voru 48. Búsettar í Reykjavík voru 34.
5. Dýralæknar og dýralækningar.
Dýralæknar með dýralæknaprófi voru alls 19 í árslok (18 starfandi).
Af þeim voru 14 héraðsdýralæknar.