Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Síða 114
1965
— 112 —
Skýrsla yfir blóðtökur (donationes), blóðinnhellingar (transfusiones)
ásamt rannsóknum, sem gerðar hafa verið á árinu:
Jan. Febr. Marz Apr. Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des. Samt.
49 68 103 75 84 54 62 97 103 104 108 64 971
157 198 176 160 162 242 187 202 235 246 128 182 2275
206 266 279 235 246 296 249 299 338 350 236 246 3246
Hver sá, sem gefur blóð til Blóðbankans, má ekki hafa kvef, ígerðir
eða aðra smitandi sjúkdóma, má ekki hafa verið bólusettur nýlega og
þarf yfirleitt að hafa verið líkamlega hraustur í minnst 3—6 mánuði,
en lengur, ef hann hefur fengið alvarlega sjúkdóma, svo að ekki sé
stuðlað að minnkuðum viðnámsþrótti þess, sem gefa vill. Haemoglobin
verður að vera um eða yfir 90% og blóðþrýstingur innan eðlilegra
marka, bæði systoliskur og diastoliskur, miðað við aldur. Blóðgjafi
skal ekki haldinn neinum smitandi sjúkdómum, sem borizt geta með
blóði manna á milli, svo sem gulu, malaríu, lues o. s. frv. Tala haemoglo-
binmælinga verður sú sama og tala gefenda, sömuleiðis tala blóðþrýst-
ingsrannsókna, eða alls 2X3246. Aldur takmarkast við 18—60 ár, og
ekki skal gefa oftar en á þriggja mánaða fresti. Tekið er ýmist í 500 ml
glerflöskur, lofttæmdar, sem innihalda 100 ml af ACD-upplausn til að
hindra storknun í blóðinu, í 500 ml plastpoka, sem innihalda 75 ml af
ACD-upplausn eða 55 ml af EDTA-upplausn. Allir nýir blóðgjafar eru
flokkaðir fyrir ABO blóðflokkun, Rhesusflokk og þá aðallega Rh. D
svo og Rh. CDE/ce, Du, M. N., Fy, K o. fl., ef þurfa þykir. Hins vegar
er ekki farið út í að sundurgreina þessa flokka í eftirfarandi töflum,
hvorki fyrir Blóðbankann né aðrar stofnanir. Eru því alls 971 blóð-
sýnishorn flokkuð á nýjum blóðgjöfum, auk þess, sem þeir, er lengstur
tími er liðinn frá flokkun, eru endurflokkaðir til öryggis, en tala þeirra
kemur ekki heldur fram á þessum töflum. Ennfremur er rannsakað
fyrir Du hjá þeim, sem eru Rh. D neg., og mældur anti-A- og anti-B-
titer í því blóði, sem er Rh. D neg., svo að hægt sé að nota það blóð, sem
reynist vera Rh. D neg., Du neg., með lágan anti-A- anti-B-titer, ef
skyndilega þarf að meðhöndla sjúkling í neyðartilfellum og lífi sjúkl-
ings er hætt, ef beðið er eftir flokkun og krossprófun. Með þetta í huga
verður ljóst, að þær rannsóknir, sem framkvæmdar eru á blóði þeirra,
sem gefa til bankans og annarra, eru langt frá að vera allar taldar
upp í þessari skýrslu, ef ætti að sundurliða þær nánara, heldur falla
þær undir liðinn blóðflokkanir, sem svo einnig gefur fjölda blóðsýnis-
horna. Ambulant blóðinnhellingar (transfusiones) eftir beiðnum lækna,
framkvæmdar í Blóðbankanum, voru alls 44 á árinu. Samkvæmt spjald-
skrá Blóðbankans hafa frá stofnun hans alls verið framkvæmdar
27193 blóðgjafir (donationes), en tala blóðgjafa alls er 112461 lok árs-
ins.