Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Page 116
1965
— 114
jákvæð. Bei' þetta saman við athugun, sem H. Feldman gerði árið 1956
á 108 blóðsýnum frá Islendingum ásamt athugun á blóðsýnum frá
mörgum öðrum löndum. Af þessum 108 sýnum voru 12 jákvæð, eða 11%.
Sýnir þetta ótvírætt, að sýking af þessu tagi er til hér á landi og senni-
lega algengari en menn hafa ætlað til þessa.
Psittacosis.
Haldið var áfram rannsóknunum fyrra árs. Voru prófuð 22 blóð-
sýni úr dúfum frá einu búi í Reykjavík, og voru 9 þeirra jákvæð. Frá
fólki voru samtals prófuð 52 blóðsýni, öll neikvæð. Skiptust þau þannig
niður:
17 sýni úr börnum frá Sauðárkróki tekin 1956,
12 — - — — Vestmannaeyjum tekin 1956,
23 — - mönnum frá Sauðárkróki og Hofsósi, sem fengizt hafa
við fuglaveiðar og eggjatekju árum saman.
Hvísótt (Q-fever).
Haldið var áfram rannsóknum frá fyrra ári á hvísótt, og hafa nið-
urstöður þessara rannsókna nú verið teknar saman. Frá fólki hafa alls
verið athuguð 247 blóðsýni auk þeirra, sem borizt hafa frá sjúkra-
húsum og læknum til greiningar og getið er annars staðar. Af þessum
247 sýnum voru aðeins 8 jákvæð, öll frá börnum og öll í lágum titer.
I viðbót við þá hópa, sem nefndir voru í síðustu ársskýrslu, voru
prófuð sýni frá:
16 manns á bæjum í Lundarreykjadal og Borgarfirði,
65 manns á bæjum í Þingeyjarsýslu,
23 mönnum frá Sauðárkróki og Hofsósi, sem fengizt hafa við fugla-
veiðar og eggjatöku.
Öll þessi sýni voru neikvæð.
Helztu ályktanir, sem draga má af þessari rannsókn á hvísótt hér
á landi, eru þær, að þessi sýki sé ekki heilsufarslegt vandamál hér eins
og er, þó að smitun sé möguleg frá búfé. Hugsanlegt er, að smitmegin
sýkilsins taki breytingum, og væri þá hægt að búast við staðbundnum
faröldrum í sveitum eða í kaupstaðafólki, sem meðhöndlar búfjáraf-
urðir, og þá sérstaklega í starfsliði sláturhúsa.
Greining veirusjúkdóma í mönnum.
Á árinu sendu sjúkrahús og héraðslæknar 514 sýni frá 284 sjúkling-
um til rannsóknar vegna gruns um veirusjúkdóma.