Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 117
— 115 —
1965
Sýni bárust frá eftirtöldum aðilum:
Barnadeild Landspítalans 176 sýni frá 98 sjúklingum
Lyflæknisdeild — 99 — — 55 —
Handlæknisdeild — 1 — — 1 —
St. Jósefsspítalinn í Rvk 45 — — 27 —
Borgarspítalinn í Rvk 40 — — 24 —
Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri 21 — — 13 —
Sjúkrahús Neskaupstaðar 1 — — 1 —
Reykjalundur 1 — — 1 —
Héraðslæknirinn Laugarási 58 — — 30 —
— Sauðárkróki 22 — — 9 —
— Blönduósi 14 — — 6 —
— Hafnarfirði 2 — — 1 —
— Stykkishólmi — 15 — — 8 —
— Húsavík 9 — — 3 —
— Hvammstanga 6 — — 4 —
— Patreksfirði 1 — — 1 —
— Bolungarvík 1 — — 1 —
Borgarlæknir, Reykjavík 2 — — 1 —
Oftast var beðið um rannsókn vegna gruns um veirulungnabólgu.
Margirsjúklinganna höfðu jákvætt kuldaagglutinationspróf, örfáir höfðu
komplementbindandi mótefni eftir Q-fever sýkingu, og einn sjúkling-
ur hafði komplementbindandi mótefni gegn fýlapest (psittacosis). Úr
sýnum frá sjúklingum á Sauðárkróki, Blönduósi, Stykkishólmi og Hafn-
arfirði ræktuðust inflúenzuveirur af A-stofni, og agglutinerandi mót-
efni gegn þeim hækkuðu í blóði sjúklinganna, er þeir voru á batavegi.
Engar mænusóttarveirur ræktuðust á árinu. Sýni, sem send voru í árs-
byrjun vegna gruns um hvotsótt (B5 faraldur, sem gekk haustmánuðina
1964), reyndust öll neikvæð, en haustið 1965 ræktuðust coxsackieveirur
af B3 stofni frá tveimur börnum á barnadeild Landspítalans og Bg
stofn frá einum sjúklingi á Landakotsspítala. Virðist því hafa verið
eitthvað um hvotsótt haustið 1965, þó að ekki yrði af stærri faraldur
eins og haustið 1964.
Mislingar.
1 samvinnu við héraðslæknana á Breiðumýri, Húsavík og Egilsstöð-
um var haldið áfram athugunum á mislingabóluefninu nýja, sem notað
var hér í nokkur hundruð manns árin 1962 og 1963. I október 1965 var
safnað blóðsýnum úr öllum, sem til náðist í Suður-Þingeyjarsýslu og
bólusettir voru árið 1962. Verða mæld mislingamótefni í þessum blóð-
sýnum til að reyna að segja fyrir um það, hversu lengi endist ónæmið
eftir þetta nýja bóluefni. Mótefni í þeim fáu blóðsýnum, sem þegar
hafa verið athuguð, hafa lítið lækkað síðan í árslok 1962, en rann-
sóknum á þessum blóðsýnum er ekki lokið, og endanlegar niðurstöður