Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 118
1965
— 116 —
liggja því ekki fyrir. Nú hefur tekizt að veikla enn mislingaveiruna,
sem notuð er við bóluefnisframleiðsluna. Er bóluefnið nú gefið án
þess að draga þurfi úr reaktion þeirra bólusettu með gammaglóbúlín-
gjöf, e'ns og gert var 1962. Um 90 manns á aldrinum 15—50 ára í Egils-
staðahéruðum hafa nú verið bólusettir með þessu nýja bóluefni, og varð
lasleiki eftir þá bólusetningu ekki teljandi. 1 Suður-Þingeyjarsýslu
voru um 50 manns sprautaðir með sama bóluefni. Um helmingur af
þeim hópi varð lasinn af bólusetningunni, og fengu sumir þar allháan
hita, greinilega meiri reaktion en í Austfirðingunum. Tvö blóðsýni
voru tekin úr öllum, sem bólusettir voru, annað sýnið fyrir bólusetn-
inguna, hitt 4—6 vikum eftir bólusetningu. Mótefni í blóði 45 manns
úr Egilsstaðahópnum hafa nú verið mæld, og eru þeir allir bólusettir
með góðum árangri. Um þessar rannsóknir á mislingabóluefninu hefur
eins og áður verið höfð samvinna við dr. F. L. Black við Yale háskól-
ann í Bandaríkjunum og Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna.
Grein um niðurstöður af mislingabólusetningu áranna 1962—1963
birtist í Archiv fúr die gesamte Virusforschung undir nafninu: „Meas-
les vaccinations in adults with and without complicating conditions".
Höfundar hennar eru Margrét Guðnadóttir og F. L. Black, en rann-
sóknir þessar sem og greining veirusjúkdóma í mönnum hafa hvílt á
Margréti.
Krab bameinsrannsóknir.
Þorsteinn Þorsteinsson magister hefur eins og síðastliðið ár unnið
að rannsóknum hér við tilraunastöðina á vegum Krabbameinsfélags
íslands. Hafa rannsóknir hans eins og fyrr beinzt að því að ákvarða
magn polycykliskra kolvatnsefna í algengum fæðutegundum, svo sem
sviðum, ristuðu brauði, flatkökum o. fl. Nokkurt magn af polycyklisk-
um kolvatnsefnum fannst í sviðunum, mismunandi eftir því hvaða að-
ferð notuð var til þess að svíða þau. Einnig fannst dálítill vottur af þess-
um efnum í flatkökum.
E. Heilsuverndarstöðvar.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Berklavarnadeild (Sjá töflu á bls. 117).
Bcurnadeild.
Á deildina á Barónsstíg og útibúið í Langholtsskóla komu alls 5296
börn úr Reykjavíkur- og Seltjarnarnesumdæmi. 2134 þessara barna
komu í fyrsta sinn. Börnin fengu alls 11461 læknisskoðanir og voru,
eins og á undanförnum árum, bólusett gegn barnaveiki, ginklofa, kik-
hósta, mænusótt og bólusótt, samkvæmt reglum deildarinnar.