Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Page 121
— 119 —
1965
65 konur höfðu hækkaðan blóðþrýsting ásamt bjúg og/eða hvítu í
þvagi.
117 — — bjúg ásamt hækkuðum blóðþrýstingi og/eða hvítu
í þvagi.
62 — — hvítu í þvagi ásamt hækkuðum blóðþrýstingi og/eða
bjúg.
3 — — jákvætt Kahnpróf.
Afengisvarnadeild.
Á árinu voru frumskráðir 46 menn, 45 karlar og 1 kona. Auk þessara
46 manna leituðu til deildarinnar 228 eldri sjúklingar, frumskráðir á
árunum fyrir 1965. Þannig sóttu deildina á þessu ári samtals 274 ein-
staklingar, sem meðferðar nutu og fyrirgreiðslu. Sjúklingarnir heim-
sóttu deildina í meðferðarskyni samtals í 4919 skipti, og varð þannig
meðaltala heimsókna á mann 18 þetta ár. Er það mjög svipuð tala og
verið hefur undanfarin ár. Læknir deildarinnar fór í 26 vitjanir og
hjúkrunarkona í 16. Sálfræðingur deildarinnar átti, auk almennra við-
tala, sérstök viðtöl í lækningaskyni við 27 manns og athugaði 14 þeirra
með sálfræðilegum prófum.
Húð- og kynsjúkdómadeild.
Á deildina komu alls 479 manns, þar af 320 vegna gruns um kyn-
sjúkdóma. Tala rannsókna var 2357, þar af 1691 vegna kynsjúkdóma.
Af þessu fólki reyndust:
42 hafa sárasótt, þar af 18 ný tilfelli (12 karlar og 6 konur),
82 — lekanda (56 karlar og 26 konur),
16 — flatlús (9 karlar og 7 konur),
159 — aðra húðsjúkdóma (74 karlar, 52 konur og 33 börn).
180 voru rannsakaðir vegna gruns um kynsjúkdóma (113 karlar og
67 konur).
Gerð var 451 smásjárrannsókn í sjúkdómsgreiningarskyni.
Tekin voru 375 blóðpróf.
Gefnar — 1128 penicillín-inndælingar.
Geðverndardeild fyrir börn.
Áframhaldandi rannsókn og sállækning:
frá árinu 1960 1
— — 1961 1
— — 1962 1
— — 1963 14
_ _ 1964 54
Áður útskrifuð börn tekin aftur .. 29
Ný tilfelli tekin á árinu......... 104
Samtals 204