Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Page 126
1965
— 124
börnum. Tilefni var: veikindi, húsnæðisleysi o. fl. (15 heimili), drykkju-
skapur og deyfilyfjanotkun (52), margvíslegt hirðuleysi o. fl. (19).
Undir stöðugu eftirliti nefndarinnar voru í ársbyrjun 65 heimili með
218 börnum og í árslok 60 heimili með 198 börnum. Nefndin útvegaði
205 börnum og unglingum dvalarstaði um lengri eða skemmri tíma.
Af þeim fóru 21 á einkaheimili. Nefndin fékk til meðferðar 7 hjóna-
skilnaðarmál vegna deilna um forræði barna. Gerði nefndin í því sam-
bandi og af öðrum ástæðum tillögur um forræði 15 barna, sem deilt
var um. Þá mælti nefndin með 24 ættleiðingum á árinu. Nefndin hafði
afskipti af 284 börnum á aldrinum frá 7—16 ára vegna samtals 591
brota, 234 piltum og 50 stúlkum. Brotin voru sem hér segir: Hnupl og
þjófnaður 269 (235 p., 34 s.), skemmdir og spell 64 (59 p., 5 s.), inn-
brot 120 (107 p., 13 s.), ölvun 44 (29 p., 15 s.), svik og falsanir 20
(16 p., 4 s.), flakk og útivist 33 (11 p., 22 s.), lauslæti og útivist 7 (s.),
meiðingar og hrekkir 9 (p.), ýmsir óknyttir 25 (24 p., 1 s.). Fjölgun
brota er mest á auðgunar- og útivistarbrotum, en fjölgun útivistar-
brota má vafalítið rekja til þess, að á árinu voru gefin út nafnskír-
teini, sem auðvelda eftirlit með útivist unglinga. Alls var vísað til
nefndarinnar málum 589 barna. Kvenlögreglan hafði afskipti af 80
stúlkum á aldrinum 12—18 ára, aðallega vegna útivistar, lauslætis,
þjófnaðar og áfengisneyzlu.
Akranes. Dagheimili fyrir börn starfaði nú í fyrsta sinn allt árið.
Kleppjárnsreykja. Sumardvalarheimili fyrir börn starfrækt í húsa-
kynnum barnaskólanna að Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Kópavogs. Upptökuheimili ríkisins flutti frá Elliðahvammi og í starfs-
mannahús fávitahælisins.
J. Vinnuheimili SÍBS.
Vistmenn í ársbyrjun voru 95, á árinu komu 183, 87 konur og 96
karlar, en 181 fór, 86 konur og 95 karlar. Meðalaldur þeirra, sem komu,
var 48 ár. Meðalaldur fer stöðugt hækkandi. Vistmenn í árslok voru 97.
Dvalardagar voru 36432.
Orsakir örorku þeirra, er innrituðust á árinu, eru þessar:
1. Berklaveiki (eða afleiðingar berklaveiki) 19
2. Vefrænir taugasjúkdómar............. 46
3. Bæklanir ........................... 30
4. Gigtsjúkdómar ...................... 26
5. Hjarta- og æðasjúkdómar............. 13
6. Geðsjúkdómar ....................... 31
7. Ýmislegt ........................... 18
Starfsemi æfingadeildarinnar fór vaxandi á árinu. 167 sjúkl. voru
þar í meðferð í 6361 skipti. Þar að auki var sundlaugin mikið notuð.
Iðnskóli var ekki starfræktur á árinu, en Gylfi Pálsson skólastjóri og