Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Page 135
— 133 —
1965
Suðureyrar. Hundahreinsun er í molum, en sauðfé fátt og’ sullir
ekki fundizt í skepnum um fjölda ára.
Ólafsfj. Hundahreinsun framkvæmd, ekki vart við sulli í sláturfé.
Grenivíkur. Hundar hreinsaðir haust hvert.
Þórshafnar. Hundahreinsun fór fram í öllum hreppum héraðsins.
Vopnafj. Hundahreinsun í miklum ólestri. Enginn hundahreins-
unarkofi er til í héraðinu, og hefur hreinsunin farið fram á hverjum
bæ fyrir sig við misjöfn skilyrði. Hefur hreppsnefndinni þegar verið
bent á þennan meinlega galla og krafizt úrbóta.
4. Matvælaeftirlit.
Gerlarannsóknarstofa Fiskifélags fslands hefur látið í té eftirfarandi
skýrslu um rannsóknir sínar á matvælum vegna matvælaeftirlits ríkis-
ins á árinu:
Til gerlarannsókna bárust Gerlarannsóknarstofu Fiskifélags íslands
1627 sýnishorn af mjólk, mjólkurvörum, öðrum matvælum, neyzluvatni
o. fl., sem tekin voru af heilbrigðisyfirvöldunum eða í samráði við
þau. Sýnishorn bárust frá borgarlækninum í Reykjavík (1547), héraðs-
lækninum á Akranesi (7), heilbrigðisfulltrúanum í Hafnarfirði (36),
héraðslækninum á Hellu (5), heilbrigðisnefnd Keflavíkur (2), héraðs-
lækninum í Laugarási (4), héraðslækninum á Sauðárkróki (11), hér-
aðslækninum á Seyðisfirði (2) og héraðslækninum í Vestmannaeyjum
(13). Sýnishornin skiptust þannig eftir tegundum:
Mjólk 569
Súrmjólk 48
Rjómi 240
Undanrenna 48
Smjör 1
Ostur 1
Skyr 27
Rjóma- og mjólkurís 70
Mjólkurflöskur 45
Vatn 183
Uppþvottavatn 190
Salöt og salatefni 133
Kæfa 18
Sviða-, svína- og nautasulta .. 13
Hakkað kjöt 7
Annað kjötmeti 11
Fiskmeti 8
Brauð 4
Grænmeti 3
Önnur sýnishorn 8