Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Síða 141
— 139 —
1965
Akranes. Allmikið var unnið við höfnina, og er það byrjun á meiri
háttar hafnarframkvæmdum. Stækkun hafin á skipasmíðastöðinni og
ráðgert, að þar verði komið upp stálskipasmíði.
Reykhóla. Mjólkurbú á Reykhólum stendur fokhelt, en ekki bólar á
framhaldi á því.
Patreksfj. Unnið stöðugt að byggingu Patrekshafnar, en mikið eftir
enn. Hafin bygging lögreglu- og slökkvistöðvar. Bygging hafin á
mjólkurstöð. Keypt var lögreglu- og sjúkrabifreið, sem notuð verður
í V.-Barðastrandarsýslu, og er mikið hagræði að.
Ólafsfj. Unnið stöðugt að lagningu Múlavegar.
Dalvíkur. Múlavegur: Undanfarin sumur allmörg hefur verið unnið
að lagningu þessa vegar, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Nú í sumar
varð hann loks fær bifreiðum, en þó ekki fullgerður, enda ekki „opn-
aður" formlega.
Akureyrar. Af húsum, sem skráð voru fullgerð á árinu, má nefna
vöruskemmu og verkstæði Rafveitu Akureyrar, afgreiðsluhús Olíu-
félagsins h.f. og verkstæðisbyggingu Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
Fokheldar voru t. d. Amtsbókasafnið við Brekkugötu, Kjötvinnslustöð
K. E. A., Lögreglustöðin við Þórunnarstræti og byggingarvörudeild
K. E. A. við Glerárgötu. Hafin var bygging Iðnskóla, Mjólkurstöðvar
K. E. A., Vöruskemmu S. í. S. og Plasteinangrunarverksmiðju.
Grenivíkur. Haldið áfram með hafnargarðinn, og er hann nú farinn
að gefa gott skjól. Byrjað var að byggja bryggju eða plan innan á
hann.
Þórshafnar. Unnið að hafnargerðinni í sumar. Unnið að mjólkur-
vinnslustöð K. F. L., og mun hún hefja starfsemi á næsta ári.