Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Síða 154
1965
— 152 —
Ekki er sennilegt, að meiðsl það, er hér um ræðir, hafi haft nein
áhrif á gang þess sjúkdóms, sem maðurinn hafði í hryggnum fyrir
slysið. Hins vegar er það yfirlýst af honum, að hann hafi engin óþæg-
indi haft í baki fyrir meiðslið, en sífellt síðan. Ég tel eðlilegt að gera
ráð fyrir, að meiðslið hafi valdið nokkurri tímabundinni örorku, en
ég tel ekki, að það eigi neinn þátt í gangi sjúkdómsins síðan, enda
hefur gangur hans, að því er virðist, verið með sama móti og venja
er um þennan sjúkdóm.
Ég álít því, að meta eigi manninum tímabundna örorku um tveggja
ára bil eftir slysið, en gera má ráð fyrir því, að núverandi ástand hans
og varanlegt ástand hans stafi af sjúkdómnum og slysið eigi þar engan
hlut að máli.
Tímabundna örorku tel ég eðlilegt að meta þannig:
í 1 mánuð
- 1 —
- 4 mánuði
-6 —
-6 —
-6 —
100% örorka
75% —
50% —
30% —
20% —
10% —
en eftir það tel ég ekki, að um örorku sé að ræða vegna þess slyss, sem
maðurinn varð fyrir 24. janúar 1953.“
4. Vottorð Röntgendeildar Landspítalans, dags. 20. janúar 1966, svo
hljóðandi:
„Diagnostik
Nafn: S. S-son, f. 16. desember 1926.
Dags. 20/1 ’66.
Heimili:................R.
Regio: Art. sacro-iliacae.
Báðum megin eru lokaðar articulationir sacro-iliacae, og bendir út-
litið á spondylarthritis anchylopoética, eins og komið hefur fram við
fyrri röntgenskoðanir síðast 24. febrúar 1965.“
5. Vottorð dr. med. Óskars Þórðarsonar, yfirlæknis Borgarspítalans
í Reykjavík, dags. 9 febrúar 1966, svo hljóðandi:
„Umsögn um erindi hr. S. S-sonar, f. 16. desember 1926, fyrrv. lög-
regluþjóns, um örorkubætur.
Undirritaður hefur kynnt sér tilsend gögn í máli hr. S. S-sonar og
rannsakað hann. Sjúkdómsgreiningin er: Osteo-arthrosis columnae,
spondyl-arthrosis ankylopoética.
Á röntgenmynd, sem var tekin þ. 3. febrúar 1953, sjást greinileg
einkenni um báða þessa sjúkdóma, og er því öruggt, að hann hefur
haft þá, áður en hann varð fyrir slysinu þ. 24. janúar 1953.
Frá því í ágúst 1965 hefur hann unnið við dyragæzlu á veitingastað,
og þolir hann þá vinnu.