Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1965, Side 159
— 157 —
1965
1. Vistun J. J-sonar á Kleppsspítala í nóv. 1964 verður að teljast bein
afleiðing þeirrar árásar, er hann varð fyrir 31. október sama ár.
2. Maðurinn hefur skapgerðarbreytingar, sem hiklaust má rekja til
heilaáverka.
3. Þar eð 3 ár eru nú liðin, síðan slysið vai’ð, og heilsufarsástand
mannsins hefur lítið breytzt eða ekki síðast liðið ár, verður að
telja, að þau einkenni, sem lýst hefur verið að framan, verði var-
anleg.“
Hin tilvitnuðu læknisvottorð Þórðar Möller og......... [sérfræð-
ings í skurðlækningum] liggja fyrir í málinu.
Málið er lagt fyrir læknaráð á þá leið,
að beiðzt er svars við eftirfarandi spurningum:
1. Telur læknaráð, að J. J-son hafi geðtruflazt um mánaðamótin
október—nóvember 1964?
2. Verði svar við þeirri spurningu jákvætt, álítur læknaráð þá, að
geðbilun hans hafi verið bein afleiðing þeirrar árásar, sem hann
varð fyrir hinn 31. október 1964?
3. Fellst læknaráð á það álit Páls Sigurðssonar tryggingayfirlæknis,
að skapgerð nefnds J. hafi breytzt og þær breytingar megi rekja til
heilaáverka ?
4. Verði talið um skapgerðarbreytingar að ræða, lítur læknaráð þá
svo á, að þær verði varanlegar?
Tillaga réttarmáladeildar um
Álylctun læknaráðs:
Ad 1. Já.
Ad 2. Já.
Ad 3. Já.
Ad 4. Já.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 23. nóvem-
ber 1967, staðfest af forseta og ritara 6. desember s. á. sem álitsgerð
og úrskurður læknaráðs.
Málsúrslit: Með dómi Sakadóms Reykjavíkur 8. febrúar 1968 var ákærður, E.
G-son, dæmdur í 3 ára fangelsi og honum gert að greiða allan kostnað sakarinnar.
Enn frernur var hann dæmdur til að greiða J. J-syni kr. 170.000,00 í skaðahætur.
6/1967.
Yfirborgardómari í Reykjavík hefur með bréfi, dags. 12. október
1967, samkvæmt úrskurði, kveðnum upp á bæjarþingi Reykjavíkur