Börn og menning - 01.09.2006, Qupperneq 11

Börn og menning - 01.09.2006, Qupperneq 11
Þetta er...? Á fyrstu opnu bókarinnar Einar Áskett og Mangi leynivinur standa feðgarnir Einar Áskell og pabbi hans hlið við hiið. Einar Áskell er lítill drengur með griðarstórt höfuð a.m.k. miðað við pabba hans. Það má vera að pabbinn sé einfaldlega höfuðsmár en ég held samt ekki. Einar Áskell er stóreygur og breiðleitur, ef mælt er þvert yfir andlit hans, frá eyra til eyra, þá er fjarlægðin þar á milli 3,8 sentimetrar. Ef pabbinn er mældur á sama stað þá er fjarlægðin einungis 3,0 sentimetrar. Reyndar virðast höfuð þeirra álíka stór en höfuð pabbans er eins og egg sem stendur upp á endann, höfuð sonarins er hins vegar eins og egg sem liggur á hlið. Ég veit ekki af hverju en mig langar ekki til að leggjast í rannsóknir á Einari Áskeli með reglustiku að vopni. Reglustika er harður húsbóndi og ég er hræddur um að hún sé ekki endilega góður mælikvarði á það sem raunverulega skiptir máli þegar Einar Áskell er annars vegar. Mig langar í raun og veru ekki til að skrifa um Einar Áskel eins og hann er heldur miklu fremur eins og ég man hann. Ekki vegna þess að ég haldi að minni mitt sé óbrigðult heldur þvert á móti vegna þess að mig rennir grun í að minni mitt sé í besta falli brigðult en í versta falli svikult. Ég held það hafi ekki verið hinu gríðarstóra höfði um að kenna en í mínum huga var Einar Áskell aldrei hetja, a.m.k. ekki í sama skilningi og Emil í Kattholti eða Lína langsokkur. Þegar þau voru annars vegar átti rmaður til að bregða á leik í hlutverkum þeirra. Maður gat vel hugsað sér að vera Lina langsokkur um stund, jafnvel þó hún væri stelpa - sterkasta stelpa í heimi vel að merkja. Ég man aldrei eftir að hafa leikið Einar Áskel eða ímyndað mér að ég væri hann en ég man eftir að hafa haft samúð með honum, einkum vegna þess að hann var alltaf í grófum peysum, prjónuðum úr því sem hét á mínu heimili „stinguprjónagarn". Mikið hlýtur vesalings Einari Áskeli að klæja um kroppinn undan þessum peysum, hugsaði ég. Samúðin með Einari Áskeli náði hins vegar ekki til málstaðar hans, það var eitthvað við Einar Áskel sem gerði það að verkum að ég tók ekki afstöðu með honum. Þegar hann þráaðist við að fara að sofa þá finnst mér eins og maður hafi tekið undir með pabbanum í huganum: „Æ, farðu nú að sofa strákur!" Einar Áskell var svo breyskur að manni fannst maður geta haft skoðanir á uppeldi hans. Kannski hefur það verið úthugsuð pedagógík höfundarins, Guniliu Bergström, að búa til litla kennslufræðinga eða siðameistara úr lesendum Einars Áskels. En kannski þarf mest hugrekki til að horfast í augu við hina raunverulegu ástæðu fyrir því að ég get ekki litið á Einar Áskel sem hetju. Hún er sú að ég hafi einfaldlega átt of margt sameiginlegt með honum til að geta leikið hann. Mig minnir t.d. að mér hafi leiðst að fljúgast á. Þar sem eldspýtur eru öruggar Á myndinni sem minnst var á í upphafi horfir Einar Áskell biðjandi á pabba sinn sem hrærir í potti. Á borðinu við hlið eldavélarinnar er pípa og stokkur með Three star eldspýtum sem framleiddar hafa verið í Jönköping Westra verksmiðjunni í Svíþjóð í meira en 120 ár. Stokkarnir hafa lítið breyst í öll þau ár sem spýturnar hafa verið framleiddar en þegar ég hugsa um umbúðir utan um aðrar vörur sem ég tengi æsku minni þá eru þær flestar breyttar; prins polo er ekki lengur í bréfi, Wrigleys tyggjóplötur eru hættar að fást og Hubba Bubba var hugsanlega bannað um eða eftir Chernobyl-slysið. Prins polo er kannski af sama heimi og Einar Áskell en það eru Wrigleys og Hubba Bubba ekki. Þegar ég virði þá feðga fyrir mér í dag þá finnst mér sem ég sjái veröld sem var. Bækurnar um Einar Áskel varðveita með ákveðnum hætti drauminn um skandinavíska velferðarríkið. Heim þar sem eldspýtur eru öruggar, að minnsta kosti í orði kveðnu. Persónurnar ferðast í strætó, klæðast fótlaga skóm, borða brauð með spægipylsu og það sem er kannski mest um vert; bækurnar bregða upp mynd af fullorðnum karlmanni sem sinnir daglegum heimilisstörfum og veitir syni sínum umhyggju og hlýju. Pabbinn er þrátt fyrir þetta ekki upphafin helgimynd eins og fullorðið fólk er gjarna í barnabókum, stundum gengur hann svo nærri sjálfum sér við uppeldið að hann lognast hreinlega út af á undan syni sínum. í öðrum tilvikum langar hann frekar að lesa blaðið en taka þátt í ævintýrum sonarsíns: „Mjamm," segir pabbi upp úr blaðinu „En láttu sögina vera!" Pabbi Einars Áskels naut sérstakrar virðingar hjá mér. Ekki síst vegna þess að hann reykti pípu en það gerðu allir málsmetandi menn að mínu viti þegar ég var lítill. Kannski vegna þess að pípureyk og pípureykingamönnum fylgir framandi og róandi andrúmsloft. Það er engin athöfn eins róandi og virðuleg að sjá eins og maður að hreinsa og troða í pípu í góðu tómi. Pabbi Einars Áskels lítur út fyrir

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.