Börn og menning - 01.09.2006, Side 26

Börn og menning - 01.09.2006, Side 26
24 Börn og menning Blúbb! gerist bæði í mannheimum og goðheimum en hinar sex gerast í mannheimum þar sem goðsagan fléttast inn í veruleikann. í sögunni Jörmun Gunnur tekur goðsagan yfir og drekar ráða landinu. Sögurnar Mistilteinn og Stanleyhamars- heimt eru nútímaútgáfur af goðsögum. Þórarinn vinnur með Þrymskviðu, þegar Þór að ráði Loka klæddist kvenmannsfötum og endurheimti hamarinn. Frásögn Þórarins er fyndin og svo vel orðuð að það er eins og hún segi sig sjálf. Myndasagan Mistilteinn hefst á upprifjun Hödda á hvernig hann lét Loka plata sig: „Ég hefði ekki átt að treysta Loka eins og ég gerði. En ég var blindur. blindur af aðdáun, blindaður af þrá eftir að verða bestur....bestureinsog Baldur." (1). Sagan snýst um íshokkí, frásögnin er skýr, útlínur myndanna sterkar, engu ofaukið. í lokin hleypur Höddi út úr sögunni, miður sín af skömm. í goðsögunni gleymist Höður hinn blindi, athyglin beinist að Baldri og Loka en hér fær Höddi verðskuldaða samúð. Heimdallur Gerðar Kristnýjar er önnur misskilin persóna. í goðsögunum er hann óttalegur auli þótt það sé aldrei sagt berum orðum. Hvar var hann til dæmis með lúðurinn þegar ragnarök brustu á? ( sögu Gerðar er Heimdallur dálítið klaufalegur en mjög indæll. Hann er ungur og tekur hlutina ekki sem gefna, spyr til dæmis um jötnana og vill vita hvort þeir séu vohdir. Svarið sem hann fær er að ekki sé vitað hvort þeir séu góðir. Heimdallur segir ekkert en hann kaupir ekki svarið. Hann fellur því ekki í gryfju ofsóknaræðis sem ríkir gagnvart því óþekkta og í samskiptum við jötuninn sýnir Heimdallur kærleik sem krefst meira hugrekkis en árás. Óvinurinn skelfilegi reynist barn sem hefur villst frá móður sinni og eftir að hafa hjálpað Heimdalli finnur hana í lokin. Á þessu lærir Heimdallur að ekki er allt vont hinum megin. Fleiri fá uppreisn æru. Tröll eru mjög gáfuð segir langafi sögumannsins í 2093 og Jörmun Gunnur í samnefndri sögu leiðréttir ímynd barns Loka og Angurboðu, Miðgarðsormsins „... en mér hafði alltaf fundist hann koma dáldið illa út f norrænu goðsögunum, ..."(113). Miðgarðsormurinn er gæludýr Jörmunar og staðgengill látinnar móður hennar. Hann og afkomendur hans eru fallegir og gáfaðir, illa lesið fólk sem kann ekki að verjast þeim sem á ekki skilið að lifa frekar en kettirnir í nágrenninu eða Þór, leiðinlegi bekkjarfélagi Jörmunar. Krúnk og klístur Húmorinn í Jörmun Gunni og fleiri sögum er kaldhæðinn og líkamlegur í anda fornbókmenntanna. Drekinn skríður upp í rúm um nætur, ískaldur og hreistraður og hjúfrar sig upp að útklóraðri stelpunni. Hrafnarnir í sögu Þórunnar eru miskunnarlausir töffarar sem plokka augun úr dauðum ketti og rífa úr honum garnirnar: Við heyrum þá krúnka og sjáum þá sitja fyrir ofan okkur, þessa gæja, létt pirraða, hrafnsvarta og hryllilega, grimma og kæruleysislega, eins og þeir hefðu verið hraktir burt frá alveg sjálfsögðum málsverði. Þeir sitja með úfinn haus og blóðugan gogg á hvíta kastalahúsinu í garðinum í næstu götu (128). Teikningarnar af ánamökunum í Sögunum toppa viðbjóðinn. Þar er einnig lýst hvernig afinn er plataður af frændum til að plokka upp risastóran orm sem reynist vera köttur: „En þeir iðruðust þess ekki hið minnsta að hafa grafið köttinn ofan í jörðina, rakað rófu hans og gfnt á hana glærum hor úr þremur álkulegum nefjum!" (155). Og drápi Hymis er lýst svo í Blúbbl: Ég greip fast um hamarinn og hann til höggs. Hymir gargaði: -Svo lengi sem Miðgarðsormurinn lifir er til skepna sem er sterkari en þú! Hann æpti aldrei meir ( 55-56). Afar og afrek Sagnaskemmtun og fróðleiksleit, það að segja sögu, hlusta á sögu, lesa og viða að sér fróðleik er umfjöllunarefni margra sagnanna. Drekar Jörmun Gunnar eignast unga en mega lítið vera að sinna þeim, það kemur því í hennar hlut og þeirra sem eftir lifa að lesa og segja eggjunum og ungunum sögur af drekum. Þeir eru goðsagnaverur og sögurnar halda þeim á lífi. í Jörmun Gunni fer einnig fram mikil umræða um lestur bóka þar sem afinn leggur línurnar og miðlað er heilmiklum fróðleiki um dreka. Aðalpersónan í Leyniþjónustunni er hrædd við hrafna og reynir að vinna bug á hræðslunni með því að lesa sér til um þá. Þannig miðlar sú saga heilmiklum fróðleik um hrafna. Sagan Blúbb! fjallar um það að segja sögu. Frásögnin fer hægt af stað, síðan stígur sögumaðurinn Þór fram og fer að segja aðra sögu í framhaldi. Fyrst talar hann um hið dularfulla hljóð blúbb og síðan bendir hann lesendum með athugasemdum í svigum á að vera ekki of fljótir á sér, lausnin sé ekki í sjónmáli: „í því baulaði nautahjörð Hymis og varð af því mikill hávaði, enda voru þetta svakalegar skepnur og jötunvaxnar eins og hæfði nautum jötuns. (Nei, baulið líktist heldur ekki djúpsjávarhljóðinu. „Muuu" er mjög ólíkt „blúbbi".)" (52). Frásögnin reynir á lesandann en er um leið barnslega fyndin með upptalningum sínum, ýkjum, endurtekningum og útúrdúrum. Eplaréttirnir sem Sif matreiðir ofan í Þór eru taldir upp í löngu máli, lýst er hvernig tröllkona Hymis með 1800 höfuð kyssir Þór með þriðja hverju höfði auk þess sem kvöldverður Hymis er útlistaður í smáatriðum:

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.