Börn og menning - 01.09.2006, Side 14

Börn og menning - 01.09.2006, Side 14
12 Börn og menning Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Þetta er harður heimur, Einar Áskell! -um Einar Áskei og stríðspabbann, með hliðsjón af nokkrum fyrri bókum um sænska fyrirmyndarpiltinn. Nýjasta bók Gunillu Bergström um Einar Áskel, Einar Áskell og stríðspabbinn, sem kom út í íslenskri þýðingu Sigrúnar Árnadóttur hjá Máli og menningu fyrir skömmu, er jafnframt sú bók sem befur hvað alvarlegastan undirtón af öllum bókunum um þennan geðþekka strák. Bókin hefst á því að Einar Áskell kynnir nýjan vin sinn fyrir lesendum. Hann heitir Hamdi og er sennilega frá Afganistan. Áður en Hamdi er kynntur til sögunnar er sagt: Þetta er Einar Áskell, sex ára. Nú þekkir hann hermann! Pilturinn Hamdi er því ekki í aðalhlutverki í sögunni, heldur pabbi hans, hermaðurinn. Þar bregst höfundur við samtíma sínum og bregður upp mynd af manni sem hefur reynslu af „alvöru strfði", þegar stríð í bókum og kvikmyndum kaffæra allt. Leikfangabæklingarnir fullir af KRASS og KABÚMM og stríðssögurnar ótæmandi. En maðurinn sem reynt hefur stríð þegir þunnu hljóði. Þegar strákarnir biðja hann að segja frá segir hann: „Stríð eru svo dapurleg að það er ekki hægt að segja frá þeim. Það er allt öðruvísi en í bíómyndum þar sem þeir góðu sígra að lokum." Og þá hlógu feðgarnir Það er alls ekki sanngjarnt að segja að boðskapur fyrri bókanna um Einar Áskel hafi verið léttvægari en í Striðspabbanum, en hann er kannski einfaldari og birtist helst í því að flest snýr að daglegu lífi þeirra feðga. Einar Áskell er breyskur drengur. Hann lætur glepjast af ýmsu sem litlir drengir láta glepjast af og hann hegðar sér ekki alltaf eins og fyrirmyndarbarn. [ bókinni Góða nótt Einar Áskell segir: „Hann er stundum óþægur og stundum þægur. í kvöld er hann óþægur. Það liggur illa á honum. Hann vill ekki fara að sofa." Einar Áskell hefur þreytt föður sinn óskaplega með allskyns tiktúrum og frekju. Á endanum sofnar pabbi á gólfinu og þá breiðir Einar yfir hann og sýnir honum „föðurlega umhyggju" þó að fyrst hristist hann af hlátri. Hann getur þá haft yfirhöndina og segir góða nótt við pabba sinn ... og já, þá fyrst getur hann farið að sofa. Bækurnar um Einar Áskel ieiða okkur ennfremur fyrir sjónir að séu börnin stundum óþæg, þá er fullorðna fólkið líka breyskt. Pabbinn er ósköp góður pabbi og gallar hans eru krúttlegir og sniðugir (fyrir utan að hann strompreykir pípu og þambar bjór framaní barninu, sem ekki telst góð latína nútildags). í bókinni Flýttu þér Einar Áskell hangir hann við ýmislegt föndur þegar pabbi kallar á hann í morgunmatinn. Pabbi er alveg að fara á límingunum frammi í eldhúsi og segist ekki þola krakka sem segja: Ég ætla bara - ætla bara, í stað þess að flýta sér að gera eins og þeim er sagt. Þegar Eínar Áskell hefur tekið á sig rögg og er búinn að öllu, kominn f fötin og tilbúinn í leikskólann, þá er pabbi hans ennþá að lesa blaðið og segir: „Ég ætla bara að Ijúka við bla ..." Þá tekur barnið sér hlutverk uppalandans og segist ekki þola þetta „Ætla bara". Og feðgarnir hlæja rækilega. Flestar enda fyrri bækurnar á hlátri feðganna - yfirleitt vegna þess að Einar Áskell hefur yfirhöndina á einhvern máta.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.