Börn og menning - 01.09.2006, Side 38

Börn og menning - 01.09.2006, Side 38
Börn og menning jafna möguleika. í því skyni verður lengdur sá tími sem dómnefndarmönnum gefst til að skoða verk þeirra sem tilnefndir eru, einkum verk sem ekki hafa verið þýdd á ensku. Einnig er stefnt á að kynna betur höfunda sem tilnefndir eru til verðlaunanna einkum þá 10 höfunda sem komast í lokaúrtak. Sömuleiðis er stefnt að því að kynna betur verk á heiðurslistanum í því skyni að hvetja til þess að fleiri bækur séu þýddar. VORVINDAR Vorvindar í maí Að venju veitti IBBY Vorvinda-viðurkenningar í maí síðastliðnum. Af því tilefni var haldin samkoma í Grófarsal Borgarbókasafnsins þar sem einnig var fagnað útgáfu smásagnasafnsins Heil brú sem fjallað er um á öðrum stað hér í blaðinu. Þeir listamenn sem hlutu Vorvinda IBBY 2006 voru Sigrún Eldjárn fyrir ritstörf, Björk Bjarkadóttir fyrir myndskreytingar og Bernd Ogrodnik fyrir brúðuleikhús og leikbrúðugerð. Sigurður Skúlason leikari tók við viðurkenningunni fyrir hönd Bernds Ogrodnik sem ekki gat verið viðstaddur en hann sendi samkomunni ávarp sem Sigurður las og fer hér á eftir. Ágætu gestir Mér þykir leitt að vera ekki með ykkur hér í dag en því miður hitti þetta á eina daginn sem ég hafði tækifæri til að vera með fjölskyldu minni í heilan mánuð. Þannig að í augnablikinu er ég grafinn undir tonnum af fannfergi og óvíst hvenær ég kemst aftur til byggða. Áður en ég flutti hingað heim, til íslands, bjó ég í mörg ár í Bandaríkjunum. Þar varð ég því miður vitni að því hversu hratt framlög í opinbera sjóði ætluðum barnamenningu minnkuðu og hurfu nánast á Mikill metnaður virðist ríkja í nýju stjórninni og er óskandi að sem flestum þessara áforma verði hrint í framkvæmd. Fulltrúi Norðurlanda í stjórn IBBY-samtakanna er Finninn Niklas Bengtson, sem er útgefandi fræðibóka fyrir börn og unglinga. Guðlaug Richter sama tíma og ríkisstjórn landsins var upptekin af hlutum sem hafa ekkert með menningu að gera og vinna markvisst gegn henni. Á íslandi njótum við enn þeirra forréttinda að búa við mjög virkt menningarlíf og við þurfum að slá skjaldborg um það og tryggja að afkomendur okkar megi njóta þess sama. Leikhús er ekki eingöngu vettvangur til að drepa tímann á köldum sunnudagseftirmiðdegi, frekar en myndlist og bókmenntir eru eingöngu til að skreyta veggi okkar og hillur. Nærandi menningarlíf er það sem gerir okkur mennsk og myndar byggingarblokkir samfélags okkar. Frjókorn menningar sem við sáum í barnssálina á eftir að vaxa og dafna með ungviðinu, svo framarlega sem við hlúum vel að. Þegar ég sýni fyrir mína yngstu áhorfendur í leikskólunum, sem mæta með uppglennt augu og fulla bleiu, þá minni ég sjálfan mig á það að þessi litli snúður í fremstu röð sem starir agndofa á þrúðurnar mínar gæti verið framtíðarforsætisráðherra þessa yndislega lands. Ég vil þakka fyrir þann heiður sem mér er sýndur með þessari viðurkenningu og mun ég taka henni sem hvatningu og áminningu þess efnis að hætta aldrei að leika mér með brúður.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.