Morgunblaðið - 28.01.2021, Síða 17
DAGLEGT LÍF 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021
mjolka.is
Fylgdu okkur á
drykkja getur haft skaðleg áhrif á
heilsu og tannheilsu. Ungt fólk virðist
í auknu mæli velja þessa drykki í
þeirri trú að þeir séu hollir og stuðli
að hreysti og auðvelt er að draga þá
ályktun þegar um sykurlausan vítam-
ínbættan drykk er að ræða. Það er
hins vegar staðreynd að allir orku-
drykkir eru „súrir“ sem þýðir að
sýrustig þeirra er lágt (pH< 5,5) og
því hafa þeir allir glerungseyðandi
áhrif á tennur. Bæði sætir og syk-
urlausir orkudrykkir leysa upp gler-
ung tannanna sem þynnist og eyðist
og myndast ekki aftur. Vandinn get-
ur náð yfir allar tennurnar sem verða
viðkvæmar fyrir kulda og meiri
hætta er á tannskemmdum. Gler-
ungseyðing er vaxandi vandamál hjá
börnum og ungmennum á Íslandi.
Í dag ber framleiðendum skylda til
að merkja umbúðir orkudrykkja og
vara börn, barnshafandi konur og
konur með börn á brjósti við neyslu
orkudrykkja ef koffínmagnið í
drykknum er 150 mg/l eða meira.
Skorað er á stjórnvöld að herða við-
mið og auka eftirlit með auglýsingum
orkudrykkja af þessum styrkleika,
auk þess sem takmarka verður að-
gengi og sölu þeirra til ungmenna t.d.
með því að leggja vörugjöld á þessa
drykki og hækka þannig verð þeirra
umtalsvert. Við þurfum öll að vera
betur upplýst um koffínmagn í
drykkjarvörum og sýrustig þeirra.
Við þurfum líka öll að leggjast á ár-
arnar hvort sem við erum foreldrar,
kennarar, starfsmenn félagsmið-
stöðva, íþróttaþjálfarar, af-
greiðslufólk verslana eða heildsalar
svo unnt sé að draga úr neyslu barna
og ungmenna á orkudrykkjum.
Skaðleg áhrif kynnt í tann-
verndarvikunni
Embætti landlæknis og Tann-
læknafélag Íslands standa fyrir tann-
verndarviku 1.-5. febrúar með skila-
boðum til landsmanna um að huga vel
að heilsunni. Þróunarmiðstöð ís-
lenskrar heilsugæslu (ÞÍH) tekur
þátt í þessari vinnu m.a. með hvatn-
ingu til allra skólahjúkrunarfræðinga
á landinu um að vekja athygli skóla-
barna og foreldra á tannverndarviku
þar sem áhersla verður á umfjöllun
um orkudrykki og skaðleg áhrif
þeirra á bæði almenna heilsu sem og
tannheilsu ungmenna.
54
mg
Koffínmagn í nokkrum
algengum drykkjarvörum
Tebolli
200 ml
Kók eða Pepsí
500 ml
Kaffi bolli
200 ml
Nocco eða Collab
330 ml
Nocco 180 mg
330 ml
35
mg
100
mg
105
mg
180
mg
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Allir vilja upplifa vellíðan í lífi og leik.
Á vefnum heilsuvera.is eru birt nokk-
ur góð ráð til að svo megi verða og
eru ráðleggingarnar byggðar á rann-
sóknum og reynslu.
Myndaðu tengsl við fólkið í kring-
um þig, fjölskyldu, vini, samstarfs-
fólk og nágranna. Ræktaðu tengslin
heima hjá þér, í vinnunni, í skólanum
og í nánasta umhverfi þínu. Líttu á
þessi tengsl sem hornsteina lífs þíns
og gefðu þér tíma til að hlúa að þeim.
Farðu út að ganga eða í sund.
Njóttu útivistar og hjólaðu því hreyf-
ing færir þér vellíðan. Það mikilvæg-
asta er að finna hreyfingu sem þú
hefur gaman af og hentar líkamlegu
ástandi þínu og getu. Flestum finnst
bæði skemmtilegra og auðveldara að
hreyfa sig með öðrum. Það eflir líka
tengslin og þannig má segja að tvær
flugur séu slegnar í sama högginu.
Haltu í lífsforvitnina. Taktu eftir
hinu óvenjulega. Veittu árstíðabreyt-
ingum athygli. Njóttu augnabliksins,
hvort sem þú ert úti að ganga, að
borða hádegismat eða tala við vini
þína. Vertu vakandi fyrir veröldinni í
kringum þig og hvernig þér líður. Að
leiða hugann að því sem þú upplifir
hjálpar þér að meta það sem skiptir
þig máli.
Prófaðu eitthvað nýtt. Rifjaðu upp
gamalt áhugamál. Settu þér markmið
sem þú munt hafa gaman af að ná.
Það er skemmtilegt að læra eitthvað
nýtt og eykur sjálfstraustið. Horfðu
út á við og líka inn á við. Að líta á sig
og hamingju sína sem hluta af stærra
samhengi.
Lífsforvitnin mikilvæg til að njóta vellíðanar
Rækta tengsl og njóta útiveru
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tjörnin Mikilvægt er að njóta hversdagsleikans í botn og útivera er góð.
lægja. En almennt gekk þetta vel og
eftir fjórðu lyfjagjöfina var ég laus
við meinið. Fréttirnar urðu stöðugt
jákvæðari. Áfram var þó haldið svo
mál færu ekki á versta veg – og síð-
asta lyfjagjöfin var 29. júlí í fyrra.
Lokasprettur meðferðarinnar var
reyndar ansi stífur, því þá fékk ég
sýkingar í maga og var mjög þrek-
aður því lyfin höfðu bókstaflega tek-
ið úr mér allt líf. Ég var dögum
saman í einangrun á Landspít-
alanum og þar einn með hugsunum
mínum, sem voru þó jákvæðar. Þeg-
ar þarna var komið sögu vissi ég að
lífið ætlaði að gefa mér annað tæki-
færi og því ágætt að velta fyrir sér
hvað gera skyldi í framtíðinni.“
Íþróttirnar hjálpa
Jóhann Björn hefur alla tíð ver-
ið virkur í íþróttum. Æft spetthlaup,
verið meðal fremstu manna landsins
í 100, 200 og 400 metra hlaupi og
keppt á ýmsum mótum, bæði heima
og í útlöndum svo sem á EM og
Smáþjóðaleikum. „Íþróttirnar hjálp-
uðu mér mikið; bæði að því leyti að
ég er í þokkalegu formi og svo hafði
ég meðan á meðferðinni stóð að því
að keppa að geta aftur farið að æfa,“
segir Jóhann sem þegar á meðferð-
inni stóð setti sig í samband við
Kraft og fékk þar góða hjálp. Stuðn-
ingur sálfræðings skipti miklu og
sömuleiðis aðstoð við lyfjakaup, það
er Kraftur borgaði það sem upp á
vantaði hjá Sjúkratryggingum Ís-
lands.
„Sá stuðningur skipti miklu,
enda alveg hellingur af þúsund-
köllum. Að geta alltaf leitað til
Krafts var þýðingarmikið. Eftir á að
hyggja hefði ég sjálfsagt átt að leita
meira eftir jafningjastuðningi; það
er hjálp frá fólki sem hefur gengið í
gegnum sambærilega reynslu og er
tilbúið að miðla af sinni reynslu.
Hvaða tilfinningar fara í gegnum
hugann við svona aðstæður er ótrú-
legt; hræðsla og þá er gott að fá
stuðning. Einnig voru læknarnir
mínir á Landspítalanum, þau Elín
Anna Helgadóttir og Albert Sig-
urðsson, einstök og eins allt starfs-
fólkið á deild 11B á Landspítala,“
segir Jóhann sem kveðst nú vera
kominn á nokkuð góðan stað í tilver-
unni. Veikindin virðast að baki.
Styrkur vex
„Ég er byrjaður að hlaupa, fer
út á hverjum degi og þótt vega-
lengdirnar séu ekki alltaf langar þá
finn ég að styrkurinn vex,“ segir Jó-
hann Björn sem er nemi í rafvirkjun
og starfar hjá Tengli ehf., hjá
Reykjavíkurdeild fyrirtækis í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga. Þar vinn-
ur okkar maður hálfan daginn, en
stefnir í fullt starf innan tíðar rétt
eins og heilsa hans leyfir.Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jákvæður Þegar þarna var
komið sögu vissi ég að lífið ætl-
aði að gefa mér annað tækifæri
og því ágætt að velta fyrir sér
hvað gera skyldi í framtíðinni.“
Jóhann Björn Sigurbjörnsson.
Markmið herferðar Krafts, sem
stendur til 4. febrúar, er að vekja
athygli á hversu marga krabba-
mein hefur áhrif á; hinn sjúka en
einnig alla fjölskyldu viðkomandi
og nánasta vinahóp. Um 70
manns á Íslandi, það er ungt fólk,
greinast með krabbamein á
hverju ári. Þetta fólk þarf mikinn
stuðning í veikindum sínum og
bataferli og til að geta sinnt því
hlutverki stendur Kraftur nú fyrir
vitundarvakningu og fjáröflun. Í
því skyni eru nú meðal annars
seldar sérframleiddar húfur með
slagorðunum Lífið er núna. Einnig
er hægt að styrkja félagið beint,
til dæmis með mánaðarlegum
greiðslum.
Lokahnykkur átaksins verður 4.
febrúar nk., á alþjóðadegi gegn
krabbameinum. Þá verður settur
upp rafrænn viðburður með lista-
fólki sem hægt verður að horfa á í
gegnum netstreymi þar sem mið-
að verður til áhorfenda hvernig
þeir geta styrkt starfið hjá Krafti.
Viðburðurinn er í samstarfi við
Vetrarhátíð Reykjavíkur og verður
nánar sagt frá honum síðar.
Veikir þurfa mikinn stuðning
LÍFIÐ ER NÚNA ER YFIRSKRIFT ÁTAKS KRAFTS
Húfa Skjól í kuldanum og sérframleitt fyrir Kraft og mikilvægt verkefni félagsins.