Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021
Nýttu ferðagjöfina
hjá okkur
Aðalstræti 2, 101 Rvk. |www.matarkjallarinn.is
6 réttir að hætti kokksins
– leyfðu okkur að koma þér á óvart.
Eldhúsið færir þér upplifun þar sem
fjölbreytni er í fyrirrúmi
LEYNDARMÁL
MATARKJALLARANS
Á tilboði sunnudaga – fimmtudaga út febrúar
6 rétta leyndarmáls
matseðill Matarkjallarans
6.990 kr. á mann
í stað 9.990 kr á mann
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is
Kraftur er með átak um þessar
mundir sem gengur undir heitinu
„Lífið er núna“ en Kraftur er
stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem
greinist með krabbamein og að-
standendur þess. Hulda Hjálm-
arsdóttir framkvæmdastjóri Krafts
ræddi við þá Loga Bergmann og
Sigga Gunnars í Síðdegisþættinum
um átakið og hvernig krabbamein
hefur áhrif á ungt fólk.
„Lífið er núna“ er slagorð sem
er okkar mantra í félaginu, okkar
félagsmanna. Það er náttúrulega
oft sem það gerist þegar maður
greinist með lífsógnandi sjúkdóm
að maður fer að husga um það
hvað virkilega skiptir máli og
minnir mann á það að lífið er
núna,“ segir Hulda.
Spurð að því hvort ungt fólk
gleymist oft í umræðunni um
krabbamein svarar Hulda því ját-
andi.
„Já enda er það mjög fjarstætt
þegar maður er á þessum aldri.
En engu að síður eru það sjötíu
ungir einstaklingar sem eru að
greinast á hverju ári á aldrinum
18-40 ára og í þessari vitund-
arvakningu erum við svolítið að
beina sjónum að ekki bara þeim
heldur líka aðstandendum þeirra.
Að vera móðir, að vera sonur, að
vera amma, að vera vinkona og ef
við erum bara að horfa á nánasta
stuðningsnet viðkomandi er verið
að tala um svona 7-10 manns sem
eru svona í nánasta hring og þá
erum við að tala um miklu stærri
hóp. Þá erum við að tala um 700
manns. Þannig að í þessari vitund-
arvakningu erum við svolítið að
segja sögur aðstandenda og hvern-
ig það er að vera í mismunandi
hlutverkum í lífi þess einstaklings
sem greinist. Við erum einmitt að
vekja máls á því að lífið sé núna og
við fórum af stað að selja húfur
sem eru Íslensk framleiðsla og Ís-
lensk hönnun og er prjónað hérna
heima í samstarfi við Varma og Ís-
tex. Við gátum náttúrulega ekkert
perlað, við höfum verið að perla
upp á síðkastið en í kjölfar Covid
þá náttúrulega má fólk ekkert
koma saman og leggja hönd á
perlu,“ segir hún.
Félagið hafi því leitað annarra
leiða og ákváðu í kjölfarið að
hanna og selja húfur til styrktar
Krafti.
„Þannig að við ákváðum að fara
saman í það að hanna húfur sem
hún Heiða Birgis eða Heiða í Ni-
kita, sem var með snjóbrettalín-
una, hannaði og Varma er að
prjóna þetta fyrir okkur. Þannig
að í rauninni ertu að styrkja ís-
lenska framleiðslu og gott málefni
í leiðinni,“ segir hún.
Á heimasíðunni lifidernuna.is má
finna bæði svarta og appelsínugula
húfu sem hægt er að kaupa til
styrktar félaginu en þær appels-
ínugulu eru aðeins til í takmörk-
uðu upplagi. Þá er einnig hægt að
styrkja félagið á fleiri máta inni á
heimasíðunni.
Á alþjóðadegi gegn krabbamein-
um 4. febrúar næstkomandi verður
svo haldinn fjáröflunarviðburður
sem sýndur verður í opinni dag-
skrá Símans, streymt á mbl.is og á
K100.
Fjáröflunarviðburður
4. febrúar
„Þar eru flottir listamenn sem
ætla að leggja málefninu lið, Páll
Óskar, Valdimar og GDRN ætla að
stíga á svið og Sóli Hólm og Sóli
Kristjáns ætla að vera kynnar sem
eru einmitt líka félagsmenn okkar
í Krafti og þekkja það af eigin
reynslu að vera með krabbamein.
Þannig að 4. febrúar ætlum við að
vera með skemmtun en líka vitund
um hvernig þessi sjúkdómur hefur
áhrif á ungt fólk og aðstandendur
sem oft gleymast. Þetta hefur ekki
bara áhrif á þann einstakling sem
fær þennan sjúkdóm heldur alla í
kring,“ segir hún.
Hulda segir það mjög mismun-
andi hvernig það að vera aðstand-
andi snerti við fólki og sé vitund-
arvakningin einmitt gerð til þess
að átta sig á fjölda þeirra.
„Það sem við erum líka að gera í
vitundarvakningunni er að fá sem
sagt aðstandendur og bara fólk í
samfélaginu til að deila reynslu
sinni á samfélagsmiðlum af því
hvernig krabbamein hefur haft
áhrif á það. „Krabbamein hefur
haft áhrif á mig af því að ég er
móðir eða af því að ég er sonur,“
svolítið til að sýna fjölda þeirra
sem verða fyrir áhrifum af þessum
sjúkdómi sem snertir mjög
marga,“ segir hún. Viðtalið við
Huldu má nálgast í heild sinni á
K100.is.
Ungt fólk gleymist í um-
ræðunni um krabbamein
Átakið „Lífið er núna“ sem stuðningsfélagið Kraftur stendur að um þessar mundir er
vitundarvakning fyrir ungt fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þess.
Hulda Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Krafts segir slagorðið vera möntru í félag-
inu enda gerist það oft þegar fólk greinist með lífsógnandi sjúkdóm að það fari að
hugsa um hvað virkilega skipti máli í lífinu sem minni það á að lífið er núna.
Ljósmynd/Skjáskot/lifidernuna.
Að vera móðir, að vera sonur, að vera amma, að vera vinkona – Aðstandendur fólks með krabbamein
Lífið er núna Hægt er að kaupa bæði
svarta og appelsínugula húfu.