Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 57

Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE HOLLYWOOD REPORTER CHICAGO SUN-TIMES LOS ANGELES TIMES INDIEWIRE VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H ROGEREBERT.COM Sviplegt fráfall Jóhanns Jóhannssonarvar íslensku listalífi mikill harmur ogmarka verk hans djúp spor. Á ní-unda og tíunda áratugnum haslaði hann sér völl sem framsækinn tónlistarmaður – ýmist sem hljóðfæraleikari, lagahöfundur og upptökustjóri – og var m.a. viðloðandi skóglápssveitina Daisy Hill Puppy Farm, hið þunga rokk HAM-verja, tripphoppþríeykið Lhooq, Stuð-plötu Páls Óskars og auðvitað rafknúna keyrsluleiðslu Apparats Organ Quartets. Upp úr aldamótum hóf hann sóló- útgáfu undir eigin nafni og mikil velgengni sem kvikmyndatónskáld fylgdi í kjölfarið. Tónlistina í stórmyndum leikstjórans Denis Villeneuves Prisoners, Sicario og Arrival ber þar hæst en einnig má nefna myndina The Theory of Everything, sem hann hlaut fyrir tilnefningu til Óskarsverðlauna. Á þennan hátt ruddi Jóhann braut fyrir íslenska tón- listarmenn í hinum alþjóðlega kvikmynda- heimi. Jóhann var ekki maður fárra verka og lét einnig til sín taka sem leikstjóri. Hinstu og fyrstu menn er hans fyrsta og jafnframt síð- asta kvikmynd í fullri lengd en áður hafði hann gert stuttmynd með Ozu-legum titli, Sumarlok (End of Summer, 2014). Sumarlok fangar mörgæsir og landslag Suðurskauts- landsins með svarthvítri súper-8-filmu og parar það við naumhyggjulega dramatík tón- listar Jóhanns. Fagurfræðilegur þráður milli verkanna er nokkuð augljós. Þess ber að geta að gerð Hinstu og fyrstu manna var ekki lok- ið að fullu þegar Jóhann féll frá en verkinu var siglt í land af samstarfsfólki hans, með Þóri Snæ Sigurjónsson framleiðanda hjá Zik Zak í fararbroddi. Kvikmyndin hefst á myrkri mynd og sögu- mannsrödd Tildu Swinton ávarpar áhorf- endur með beinum hætti úr órafjarlægri framtíð og tilkynnir að „við erum hinstu mennirnir“, og hlustið nú. Billjónir ára hafa liðið og mennirnir dáið, fæðst og stökkbreyst í ótal myndum en dagar skepnunnar eru að líða undir lok vegna aðsteðjandi loftslagsvár. Gegnumgangandi frásögn Swinton og texti hennar er aðlögun Jóhanns og Josés Enri- ques Maciáns á broti úr samnefndri vísinda- skáldsögu Bretans Olafs Stapledons frá árinu 1930. Vísindaskáldsagan veitir verkinu ramma og leikreglur til að vinna eftir. Strangt til tekið væri hægt að flokka mynd- ina undir hatt leikinna frásagnarmynda, þótt engin eiginleg framvinda eigi sér stað, þar sem sögumaður setur fram skáldaðan texta um ímyndað samfélag. Verkinu verður þó ólíklega notið mest á þeim forsendum. Einnig væri unnt að flokka myndina sem eins konar heimildarmynd eða essajumynd – og má greina hliðstæður við meistaraverk Chris Markers, La Jetée, í efnistökum. Hinstu og fyrstu menn samanstendur af þremur mismunandi þáttum og samspili þeirra; áðurnefndri frásögn hinsta mannsins, hinu sjónræna og tónlistinni. Rýnir leit fyrst og fremst á textaþáttinn sem stemningu, hluta af heildaráferðinni – en veitti honum aðeins temmilega athygli og hengdi sig ekki á inntakið. Rödd Swinton ljær myndinni vigt og yfirbragð breskrar náttúrulífsmyndar, sem er vel. Hið sjónræna og útfærsla þess er gífurlega tilkomumikið. Kvikmyndatökunni stýrir Norðmaðurinn Sturla Brandth Grøvlen (er auk þess framleiðandi) en þar er greinilega mikill hæfaleikamaður á ferð. Á ferilskrá hans eru Hjartasteinn, Hrútar, hin danska Drykkja (sem er enn í kvikmyndahúsum), þýska „einnar töku“ þeysireiðin Viktoría (2015) og rithöfundadramað Shirley (2020). Samstarf þeirra Jóhanns skilar nokkuð sér- stæðu sjónarspili. 16 mm svarthvít filma myndar brútalískan arkitektúr í víðfeðmu og köldu náttúrulandslagi. Stundum er mynda- vélin nálægt viðfangi sínu og færir sig hægt og bítandi fjær því; og það sem fyrir augu ber verður fallega órætt og ókennilegt. Almennt er innrömmun afar öguð og samhverfur ein- kenna myndmálið en skringilegir tökuvinklar og -hreyfingar brjóta það upp þegar við á, ýmist í takti eða stríðu við tónlistina. Mann- virkin sem sjást eru öll í gömlu Júgóslavíu og voru byggð þar í stjórnartíð Títós og komm- únistaflokksins. Hér er þeim skeytt inn í framtíðarsamhengi sem eins konar framand- legu verksummerki vitsmunalífs. Myndirnar eru magnaðar upp af drunga- legri tónlist Jóhanns og Yairs Elazars Glot- mans. Selló og strengir eru fyrirferðarmiklir (leiknir af þjóðhetjunni Hildi Guðnadóttur en þau Jóhann voru nánir samstarfsmenn) ásamt kórröddum. Bassasaxófónn Colins Stetsons gegnir mikilvægu hlutverki en út- setningar eru í höndum Viktors Orra Árna- sonar og er valinn maður í hverju rúmi. Upp- bygging myndarinnar er samofin tónlistinni en hægt og hægt er farið úr hljóði og kyrrð í átt að kraftmiklum þunga sem rís og nær hæstu hæðum þar til leikar róast aftur og hringrás hefst á ný. Hugrenningatengsl til plötu Jóhanns, Orphée, láta á sér kræla. Eins og við má búast er hér um verk að ræða þar sem hljóð og mynd fara einkar vel saman. Ekki er aðalatriði undir hvaða for- sendum þeirra er notið – verkið á jafnvel meira skylt við myndlistarinnsetningu en hefðbundna ræmu með kábojs og indíánum á Marvel-stuttbuxum. Með þolinmæðina að vopni eru þó allir vegir færir. Ótvírætt telst það mikill kostur að kvikmyndin er aðeins 72 mínútur og reynir þar með ekki um of á þan- þol þeirra ókyrrustu. Óskandi er að sýningar- stjóri leyfi lokaandartaki og endatitlum myndarinnar að lifa í myrkri svo galdurinn sé ekki rofinn of snemma. Hinstu og fyrstu menn er minnisvarði um einstakan listamann og eru allir íslenskir list- unnendur hvattir til að berja hana augum á hvíta tjaldinu, þar sem hennar verður best notið. Magnaðir minnisvarðar Brútalismi Mannvirkin í kvikmynd Jóhanns eru öll í gömlu Júgóslavíu og voru byggð þar í stjórnartíð Títós og kommúnistaflokksins. Bíó Paradís Hinstu og fyrstu menn/ Last and First Men bbbbn Leikstjórn: Jóhann Jóhannsson. Handrit: Jóhann Jóhannsson, Olaf Stapledon, José Enrique Macián. Klipping: Mark Bukdahl. Kvik- myndataka: Sturla Brandth Grøvlen. Tónlist: Jóhann Jóhannsson, Yair Elazar Glotman. Aðal- leikari: Tilda Swinton. Ísland, 2020. 72 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.