Morgunblaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.02.2021, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2021 ✝ Elín Bjarna-dóttir fæddist 23. september 1927 í Blöndudalshólum í Austur-Húna- vatnssýslu. Hún lést á Droplaug- arstöðum 8. febr- úar 2021. Foreldrar henn- ar voru Bjarni Jón- asson, f. 24. febrúar 1891, d. 26. janúar 1984 og Anna Margrét Sig- urjónsdóttir, f. 4. október 1900, d. 5. febrúar 1993. Þau voru bændur í Blöndudalshólum. Bjarni var kennari, hreppstjóri og fræðimaður, en Anna sá um heimilið og búskapinn auk þess að vera ötul ræktunarkona. Anna og Bjarni áttu fimm börn auk Elínar: Ingibjörgu, f. 10. maí 1925, Jónas Benedikt, f. 4. mars 1932, d. 20. des. 2018, Kol- finnu, f. 30. maí 1937, d. 18. júlí 2016, Sigurjón, f. 10. ágúst 1941, d. 7. des. 1945 og Ólaf Snæbjörn, f. 29. feb. 1944, d. 2. apríl 2009. Elín giftist Hauki Árnasyni tæknifræðingi, 5. júní 1954, f. 29. jan. 1931 og bjuggu þau á Akureyri. Þau skildu 1986. For- eldrar Hauks voru Árni Valdi- marsson, f. 22. sept. 1896, d. 2. sept. 1980, og kona hans, Ágústa Gunnlaugsdóttir, f. 1. ágúst. 1895, d. 13. nóv. 1995. urarson, f. 1958, börn þeirra eru: a) Rakel, f. 1990, maki Jas- on Már Bergsteinsson, barn: Katrín Lind. b) Axel, f. 1997. Fyrir átti Magnús soninn Tómas Þórarin, f. 1981. Sonur Tómasar er Francis Mosi. 4) Árni Guðmundur, 17. maí 1968, framkvæmdastjóri. Eig- inkona hans er Yoko Ozaki, f. 1977, synir þeirra eru Shintaró, f. 2005 og Sóshiró, f. 2008. Elín ólst upp í Blöndudals- hólum. Hún stundaði nám við Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði 1944-46 og tók gagn- fræðapróf frá Héraðsskólanum á Laugarvatni 1947. Hún tók kennarapróf frá Kennaraskól- anum 1950. Auk þess að ala upp börn og sinna heimilisstörfum kenndi Elín við Barnaskólann á Ak- ureyri, vann skrifstofustörf hjá Haga hf. og vann á Fjórðungs- húsinu á Akureyri. Elín flutti til Reykjavíkur 1989 og vann á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Elín tók virkan þátt í fjölbreyttum fé- lagsstörfum. Hún starfaði meðal annars með Lífspekifélaginu, Félagi kennara á eftirlaunum og var virk í félagsstarfi aldraðra í Bólstaðarhlíð. Útför Elínar fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 19. febrúar 2021,klukkan 13. Steymt verður frá útför: https://www.skjaskot.is/elin Virkan hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Börn Elínar og Hauks eru: 1) Sigurjón, f. 18. feb. 1955, verk- fræðingur. Eig- inkona hans er Sig- rún Hrafnsdóttir, f. 1953, dætur þeirra eru: a) Þórný, f. 1984, maki Pavel Bessarab, börn: Lev og Rúnar Alex- ander. b) Anna, f. 1987, maki Valgeir M. Levy, börn: Grímur Hrafn og Brynja Sigurrós. Sonur Sigurjóns og Bjargar Þórarinsdóttur er Haukur, f. 1977, maki Heiðrún H. Þórsteinsdóttir, börn: Björg Malena og Mikael Breki. Dóttir Sigurjóns og Steinunnar S. Jak- obsdóttur er Sigríður Soffía, f. 1981, maki Gestur Gunnarsson, börn: Sverrir Styrkár og Styrm- ir Steinn. 2) Bjarni, f. 11. apríl. 1957, kerfisstjóri. Eiginkona hans er Laufey Hafsteinsdóttir, f. 1961, börn þeirra eru: a) Elín Birna, f. 1986, maki Thomas Redder, börn: Flóki Freyr og ónefndur drengur, b) Hafsteinn, f. 1990, maki Rebekka Hafþórsdóttir, barn: Ísabella. c) Brynjar, f. 1998. 3) Anna Ágústa, f. 12. feb. 1963, kennari. Eiginmaður hennar er Magnús Þ. Giss- Þegar húmar og hallar af degi heimur kveður og eilífðin rís, sjáumst aftur á sólfögrum ströndum þar sem sælan er ástvinum vís. (Guðrún Halldórsdóttir) Með þessum ljóðlínum vil ég þakka tengdamóður minni sam- fylgdina á liðnum áratugum og vona að henni líði vel í Sum- arlandinu sem hún talaði svo oft um að biði hennar. Elín var ekki kona margra orða þrátt fyrir ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Mér fannst alltaf aðdáunar- vert hve virk hún var félagslega og dugleg að sækja sér afþrey- ingu í góðan félagsskap, því hún var hlédræg að eðlisfari. Hún var í sundhópi sem hittist í Laugardalslauginni á hverjum degi í áraraðir, félagsskap kenn- ara á eftirlaunum, sem hún spil- aði félagsvist og ferðaðist með ásamt því að vera mjög virk í fé- lagsstarfi Lífspekifélagsins (Guðspekifélagsins) til margra ára. Elín var alla tíð dugleg að rækta sál og líkama og að mörgu leyti á undan sinni samtíð en hún var farin að stunda jóga, teygjur og hollt mataræði löngu áður en það varð vinsælt. Hún hafði yndi af göngutúrum og lét sig ekki muna um að ganga langar vegalengdir þó hún væri komin vel á níræðisaldur. Í félagsstarfi eldri borgara í Ból- staðarhlíð stundaði hún ýmsar tómstundir í gegnum árin eins og bútasaum, glerlist, útsaum í dúka og málun mynda, jóga og leikfimi. Öll handavinna hjá El- ínu var falleg og vel unnin enda afar smekkleg og næm á liti. Fyrir rúmum þremur árum hélt hún upp á níræðisafmælið sitt með fjölskyldunni og vinum. Það var gaman að fá að njóta þess með henni og ferðarinnar norður á Blönduós í sumar þar sem hún átti góða samverustund með systur sinni á æskuslóðum þeirra. Hún átti líka góða endur- fundi með ættingjum fyrir stuttu þar sem hún naut þess að breyta um umhverfi eftir langan og for- dæmalausan vetur og fyrir það erum við afar þakklát. Hvíl í friði, kæra Elín. Þín Laufey. Þá er komið að kveðjustund, elsku amma. Við höfum ekki mikið sést upp á síðkastið en við eigum margar góðar og dýrmætar minningar saman. Það var alltaf róleg og góð stemning hjá þér, það var kannski ekki talað mikið en við nutum samverunnar og áttum góðar stundir saman. Ég, Elín Birna, minnist helst löngu ferðalaganna okkar til Hallormsstaðar að heimsækja frænkur mínar og frænda. Þar gátum við verið yfir sumartím- ann, tínt sveppi, spilað og leikið okkur í skóginum. Það var alltaf hiti og sól og við vorum því mik- ið úti í náttúrunni. Á þeim ferðalögum kenndir þú mér tveggja manna vist og eftir þetta var mikið spilað þeg- ar við hittumst, oft með suðu- súkkulaði í munninum. Ég fékk oft að gista hjá þér þegar ég var yngri, og það var alltaf huggulegt hjá okkur á Laugarnesveginum. Við lágum oft lengi uppi í rúmi og sungum lögin í litlu, bláu og gulu söngva- bókinni þangað til við sofnuðum. Síðan vöknuðum við eldsnemma og skelltum okkur í sund í Laug- ardalslauginni, eins og þú varst vön að gera á hverjum morgni. Þú kenndir okkur systkinun- um að meta slátur, mysing, steiktar kleinur, laufabrauð og pönnukökur með sykri. Þú varst dugleg í höndunum, jafnvel með skrýtna puttann sem stóð út í loftið. Við systkinin eigum öll falleg verk eftir þig, glersmíðaverk, prjónaflíkur, málverk og bútasaumsteppi, sem við munum varðveita og er- um afar þakklát fyrir. Hvíl í friði, elsku amma. Elín Birna, Hafsteinn og Brynjar. Elsku amma. Það er skrýtið að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur og að ég muni ekki hitta þig aft- ur, að minnsta kosti um tíma þar til við hittumst í Sumarlandinu sem þú talaðir svo oft um. Þú hafðir mikið velt því fyrir þér hvernig ferðalagið og áfanga- staðurinn yrðu og varst viss um að þar héldi lífið áfram. Í kringum þig var alltaf gam- an. Þú varst glaðlynd, dugleg, góð og hafðir einstaklega skemmtilegan húmor. Það er gott að eiga ótal gullkorn og minningar um þig sem mér þyk- ir svo vænt um. Þú varst sér- staklega góð amma og varst dugleg að fara í sund og dunda þér með mér á mínum yngri ár- um. Um tíma komst þú til að mynda með strætó úr Reykjavík í Kópavoginn einu sinni í viku og eldaðir grjónagraut og kennd- ir mér og vinkonum mínum að prjóna. Ég er þakklát fyrir allan þann tíma sem við fengum saman og það að hafa fengið tækifæri til að kynna þig fyrir dóttur minni, þó að það hefði verið gaman fyrir okkur allar að fá lengri tíma sam- an. Það er kominn tími til að kveðja í bili. Nú ertu komin í Sumarlandið fallega og hefur vonandi hitt alla þá sem biðu þín þar. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Þangað til næst. Þín Rakel. Elsku amma. Við systkinin minnumst þín með hlýju og væntumþykju. Það er erfitt að kveðja þig og er sökn- uðurinn mikill. Efst í huga er þakklæti fyrir allar minningarnar sem við eigum með þér og það samband sem við þróuðum við þig. Þú varst ætíð til staðar fyrir okkur og hægt að leita til þín hvenær sem var. Það var alltaf gott að koma til þín, svo gott að við höfum oftar en einu sinni dottað í sófanum eftir kaffisopann og suðusúkku- laðið meðan þú sýndir barna- barnabörnunum hitt og þetta spennandi sem þú fannst til. Spiladósin var alltaf vinsæl. Það var gott að tala við þig og spjalla um ýmislegt hvort sem það voru málefni líðandi stundar eða það sem var að gerast í okkar lífi. Þú varst opin fyrir öllu og nú- tímaleg, þú varst vel að þér og gast tileinkað þér margt og fylgd- ist með því sem var að gerast í þjóðfélaginu og úti í heimi. Það var líka gaman að hlusta á þig tala um bernskuna í Blöndudals- hólum þar sem þér fannst svo gaman að fara á hestbak og njóta náttúrunnar í sveitinni. Þú varst sjálfstæð, fordómalaus, klár, hlý og falleg að utan sem innan. Þú varst líka mikil listakona og eigum við systkinin hin ýmsu listaverk eftir þig; prjónaða sokka sem og málverk, glerlista- verk og saumaða dúka. Það lék allt í höndunum á þér. Þú skilur við okkur með gott veganesti og varst góð fyrir- mynd. Við munum alltaf hugsa til þín með hlýju og þakklæti elsku amma. Haukur, Sigríður (Sigga), Þórný og Anna. Nú kveður dagsbirtan dalinn og dökkva á himininn slær. Í friðsælum bakka við litla lind ljómandi draumsóley grær. (JT) Að eiga saman félag – eins og verður t.d. meðal frænda, sveit- unga eða skólafélaga – er eft- irsóknarvert og lítið félag varð til fyrir 12-14 árum þegar móðir mín, Sigríður Ólafsdóttir, hafði vetursetu í borginni, fékk sér íbúð í Hvassaleitinu og bjó þar góðan hluta ársins. Þar var sam- komusalur og píanó og þangað komu stundum fleiri Blöndæl- ingar á síðdegissamkomur. Elín bjó við götuna Bólstaðarhlíð, átti stutt að fara og við rifjuðum upp góðar stundir heiman úr dalnum og frá æviferlinum. Ömmur okk- ar Elínar voru systur og tengdu þannig enn frekar heimilin í Hól- um og Tungu. Frændi okkar úr Blöndudaln- um, Jónas Tryggvason, orti ljóð- ið Svæfðu hana vornótt sem kögrar þessa fáorðu grein. Hún er birt hér til að minnast þess- arar mikilhæfu, hógværu en ein- örðu frænku minnar og þakka fyrir hlý kynni. Og vorljóðinu lýkur svo: Nú glitra gulltár á hvarmi er geislinn í kveldhúmi dvín. Svo lokar hún augunum hægt og hljótt og hverfur, vornótt, til þín. (JT) Ingi Heiðmar Jónsson. Í Hávamálum Indverja, Bhagavad Gita, er talað um ódauðleika sálarinnar á fallegan og hughreystandi hátt. Andinn fæðist ekki; andinn deyr ekki; andinn breytist aldrei; andinn verður alltaf til. Í ógleymanlegri heimsókn á æskustöðvar Ellu og systkina hennar í Blöndudal síðasta sum- ar horfðum við á Hóla og hóla, gengum eftir veginum með Ellu frænku og Íju frænku, veltum fyrir okkur túnunum, trjánum og árunum sem líða. Þegar talið barst að eilífðinni og jarðvistar- lokunum sem bíða okkar allra rifjuðum við upp fyrri samtöl við Ellu frænku og sögðum við hana: „Þú trúir því að eitthvað gott bíði þín hinum megin þegar þessu lýkur hérna, ekki satt?“ Hún horfði á okkur með festu og ró og sagði: „Ég trúi ekki, ég veit.“ Þessi vissa og þessi ró ein- kenndi Ellu frænku. Samvistir við hana gáfu okkur vísbending- ar um hvaðan við kæmum og hvert við færum. En fyrst og fremst voru stundir með Ellu dýrmætar stundir með góðri konu, frænku, móðursystur. Orð- in sögðu okkur margt, en einnig augun og þögnin. Svona voru þau öll systkinin úr Blöndudalshólum. Þeim varð kannski ekki tíðrætt um tilfinn- ingar sínar en það var heldur ekkert yfirborðsblaður eða skreytni í samskiptum við þau. Þetta eru dýrmætir og góðir eig- inleikar í hverri manneskju, að óttast ekki að segja hug sinn en finna sig þó ekki knúna til að fylla upp í þagnir eða gera sér upp skoðanir á hverju sem er. Þegar við vorum börn voru heimsóknir til Ellu frænku og fjölskyldu sveipaðar ævintýra- ljóma enda bjuggu þau á Ak- ureyri sem var eins og útlönd í okkar huga. Þegar Ella flutti til Reykja- víkur hittum við hana oftar og kynntumst henni betur, syst- urnar héldu góðu sambandi og væntumþykjan á milli þeirra og systkinanna allra var augljós. Nú þegar komið er að kveðju- stund viljum við þakka góðri konu fyrir samfylgdina og send- um fjölskyldu hennar kærleik- skveðjur. Og hver veit, kannski hittumst við aftur hinum megin. Bjarni og Anna Kolfinnu- og Hinriksbörn. Elín mágkona mín hefur nú kvatt þetta tilverustig og hverfur á braut næstsíðust systkinanna frá Blöndudalshólum. Þau hafa horfið af sjónarsvið- inu í aldursröð frá hinu yngsta uns nú að Ingibjörg, frumburð- ur Önnu og Bjarna í Hólum, er ein eftir. Á uppvaxtarárum þeirra var heimilið í Blöndu- dalshólum glæsilegur fulltrúi sveitamenningar og þjóðlegrar framfarastefnu. Sú mótun í uppvexti fylgdi systkinunum síðan og birtist meðal annars í afstöðu til uppeldis, menntunar og samfélagshátta, auk ætt- rækni og næmrar tilfinningar fyrir högum vina sinna og vandamanna. Það var ómetan- legt fyrir okkur að sunnan, fjöl- skyldu Kolfinnu systur hennar, að eiga vísan samastað fyrir norðan á heimili Ellu og hennar fólks á Akureyri. Fyrir bragðið tryggðu þessi tvö norðlensku aðsetur, í Blöndudal og á Ak- ureyri, trygga fótfestu ungu kynslóðarinnar á ættarslóðum í þeim landshluta, í fylgd, leið- sögn og leik með staðkunnugum ættingjum á svipuðu reki. Alls þessa er ástæða til og gleðiefni að minnast nú og þakka, þegar systurnar tvær, sem þessum ferðum réðu, Elín og Kolfinna, eru horfnar okkar sjónum. Að baki hæglátu jafnaðargeði Ellu bjó síkvikur hugur, sem sí- fellt ígrundaði „hin hinstu sann- indi um eðli tilverunnar, þekk- ingu á hinum hinsta veruleika og allri þeirri margbreytni, sem er upp runnin í honum“ svo gripið sé til orða úr skilgreiningum á guðspeki. Hún var öll sín fullorðinsár dyggur félagsmaður í Guðspeki- félaginu/Lífspekifélaginu, tók þátt í starfinu meðan hún mátti og velti án afláts fyrir sér þeim spurningum sem á hugann leit- uðu. Mannlegt eðli, siðfræði og æðri máttarvöld voru umhugs- unarefni sem héldu vökulum huga hennar uppteknum meðan mátti. Elín mágkona mín trúði staðfastlega á annað – eða önnur – tilvistarstig, sem yrðu áfanga- staðir er sálin yfirgæfi hinn jarð- neska líkama. Sá viðskilnaður og sú vissa um það, sem við tæki, var í fullu samræmi við þá áralöngu grein- ingu sem hún hafði stundað á eðli og tilgangi tilverunnar. Hún hafði líka fyllilega til þess unnið að mega ljúka vegferð sinni á þann hógværa og fyrirferðarlitla hátt sem raun bar vitni og hún hafði óskað sér. Eftir stendur því það eitt að óska Ellu góðrar ferðar með hjartans þökk fyrir samfylgdina. Hinrik Bjarnason. Fyrr en varir er ævin öll hjá hverjum og einum sem gistir þessa jörð og eftir standa minn- ingar. Nú er það vinkona mín og bekkjarsystir úr Kennaraskóla Íslands, Elín Bjarnadóttir, sem kvatt hefur þessa jarðvist og þá hrannast upp minningar. Okkar fyrstu kynni voru haustið 1948 er við vorum að hefja nám í Kennaraskóla Ís- lands. Nemendum hafði verið skipað til sætis í einni kennslu- stofunni og kennslustundin byrj- aði á því að við skyldum kynna okkur. Á næsta borði fyrir fram- an mig sat dökkhærð og mjög fríð stúlka sem vakti athygli mína. Þegar hún kynnti sig heyrði ég að þarna var nafna mín. Brátt mynduðust sterk tengsl milli okkar sem komum þó úr svo ólíku umhverfi. Hún var frá menningarheimili að norðan, Blöndudalshólum í Austur- Húnavatnssýslu, og ég stelpan úr Garðahverfinu. Við vorum bekkjarsystur í tvo vetur. Eftir að þeim skemmti- lega tíma lauk flutti Ella til Ak- ureyrar þar sem hún hóf kennslu haustið 1950. Ég hóf á sama tíma kennslu í Reykjavík. Minnis- stæðir eru dagarnir sumarið 1952 þegar ég heimsótti Ellu í Blöndudalshóla og var nokkra daga á því myndarlega heimili. Tveimur árum síðar stofnaði Ella heimili á Akureyri með manni sínum og þar fæddust börnin þeirra fjögur. Öll eru þau atorku- og dugnaðarfólk sem hefur eignast marga afkomend- ur. Tengsl okkar Ellu rofnuðu aldrei þótt lengi væri landfræði- lega langt á milli búsetu okkar. Ég les bréfin frá okkar gömlu dögum og gleðst yfir þeim. Alltaf tók Ella höfðinglega á móti mér og mínum þegar við áttum leið um Norðurland. Þegar börn Ellu voru orðin fullorðin og flutt að heiman færði hún sig um set til Reykjavíkur og þá urðu sam- skipti okkar meiri. Þá kom hún til liðs við saumaklúbb okkur bekkjarsystra úr Kennaraskól- anum. Heita má að hann hafi verið við lýði allt frá útskrift og fram á síðustu ár eða vel á sjö- unda tug ára, þótt fækkað hafi í liðinu. Þegar við nokkur gömul skólasystkin úr Kennaraskólan- um vorum komin á efri ár fórum við að hittast reglulega. Auðvitað var Ella í þeim skemmtilega hópi. Iðulega fór hópurinn í morgunsund saman. Við skipt- umst síðan á um kaffiboð eftir sund flesta laugardaga. Þar voru rifjuð upp fyrri kynni og rætt um dægurmálin og bókmenntir eða annað sem var efst á baugi hverju sinni. Ekki var nafna mín hávær í þessum hópi, en hún laumaði oft fram kímilegum orðum í sam- ræðuna. Hlý minning lifir í hjarta mínu um Ellu Bjarna. Ég þakka henni samfylgdina öll þessi ár. Elín Vilmundardóttir. Elín Bjarnadóttir Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, JÓN ÓLAFUR SKARPHÉÐINSSON prófessor, lést fimmtudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 23. febrúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir sem munu fá boð viðstaddir. Útförinni verður streymt og má nálgast hlekkinn á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Landvernd, Votlendissjóð eða önnur félög sem standa að uppgræðslu landsins eða endurheimt votlendis. Hólmfríður Jónsdóttir Una Björk Jónsdóttir Ása Karen Jónsdóttir Halla Oddný Jónsdóttir Friðgeir Bjarni Skarphéðins. Sigrún Rafnsdóttir Karl Skarphéðinsson Sara Gylfadóttir Hjálmar Skarphéðinsson Elín Ólafsdóttir Óskar Bjarni Skarphéðins. Dóra Bergrún Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.