Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 29
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 27
leiðtogi Íhaldsflokksins, hafði vonazt til þar
sem hún missti þingmeirihluta sinn í stað
þess að auka hann bætti flokkur hennar engu
að síður við sig talsverðu fylgi frá kosningu-
num 2015. Verkamannaflokkurinn bætti hins
vegar við sig meiru.
Vinsældir Íhaldsflokksins vegna Brexit
Fylgisaukning Verkamannaflokksins, undir
forystu Jeremys Corbyn, kom einkum til
vegna framgöngu sem vinstriflokkar og aðrir
lýðskrumsflokkar temja sér gjarnan. Það er
að lofa fólki öllu mögulegu ókeypis á kostnað
annarra og án þess að tilgreina nákvæmlega
hvernig eigi að fjármagna það. Enda hafa
forystumenn flokksins ekki getað svarað því
þegar gengið hefur verið á þá.
Verkamannaflokkurinn talaði viljandi lítið
sem ekkert eða loðið um útgönguna úr
Evrópusambandinu í kosningabaráttunni
enda málið umdeilt aðallega í forystusveit
hans. Frambjóðendum var þannig veitt svig-
rúm til þess að tjá sig um málið eftir því sem
þeim þótti henta í þeirra kjördæmi.
Kosningastefna flokksins var þó afgerandi á
þá leið að Bretland skyldi yfirgefa sambandið.
Kosningabaráttan gekk framan af vel fyrir
Íhaldsflokkinn þar til um miðjan maí þegar
kosningastefnur stærstu stjórnmálaflokkanna
höfðu verið kynntar. Fylgi Verkamanna-
flokksins hafði þá þegar farið vaxandi eftir
að boðað var til kosninganna mánuði áður
með áherzlum einkum á heilbrigðismál og
menntamál. Þá aðallega með loforðum um
að allt í þeim efnum yrði ókeypis.
Meðan umræðan um stefnu Íhaldsflokksins
snerist um útgönguna úr Evrópusambandinu
hélst fylgið hátt samkvæmt skoðanakön-
nunum eins og það hafði verið allt frá því
skömmu eftir þjóðaratkvæðið um veruna í
sambandinu. Vinsældir flokksins komu fyrst
og fremst þaðan ef marka má kannanir. Þegar
umræðan fór að snúast um önnur mál
breyttist hins vegar staðan.
Þegar fylgi Verkamannaflokksins fór að
aukast í aðdraganda þingkosninganna
þjöppuðu flokksmenn sér að baki Corbyn en
nú, nokkrum vikum eftir kosningarnar, er hins
vegar allt komið upp í loft aftur í þingflokki
flokksins. Corbyn hefur verið umdeildur leið-
togi og þá einkum fyrir róttæka vinstripólitík
sína. Hófsamari jafnaðarmenn hafa vilja losna
við hann en gengið illa við það. Samkvæmt
síðustu fréttum er alvarlega rætt um að
Verkamannaflokkurinn kunni að klofna.2
Fylgisaukning Verkamannaflokksins, undir forystu Jeremys Corbyn, kom
einkum til vegna framgöngu sem vinstriflokkar og aðrir lýðskrumsflokkar temja
sér gjarnan. Það er að lofa fólki öllu mögulegu ókeypis á kostnað annarra og án
þess að tilgreina nákvæmlega hvernig eigi að fjármagna það. Enda hafa forystu-
menn flokksins ekki getað svarað því þegar gengið hefur verið á þá.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur verið
umdeildur frá því að hann tók við formennsku í flokknum.
Í aðdraganda þingkosningar tóku stuðningsmenn hans
þó við sér þegar fylgi flokksins jóks, en eftir kosningar hefur
aftur dregið úr stuðningi við leiðtogann.