Fiskifréttir


Fiskifréttir - 08.06.2001, Blaðsíða 13

Fiskifréttir - 08.06.2001, Blaðsíða 13
FISKIFRETTIR 8. júní 2001 13 ! ! i ! > ! ! Á reknetaveiðum fyrir túnfisk í Adenflóa 1971. mánuði enda var naumt skammtað vegna stríðsins, við brottför var ég kominn niður í 80 kg og hef held ég aldrei verið léttari síðan ein- hvern tíma á unglingsárunum. Aft- ur á móti var ég fljótur að koma holdafarinu í annað og eðlilegra horf þegar ég var kominn í allsnægtirnar heima. En afskaplega var ég feginn að losna frá Iran sem ég held að ég eigi hvað dapurleg- astar minningar um af þeim lönd- um sem ég hef dvalið í.“ Á neðstu hæðinni í Valhöll Og var þetta endapunkturinn á störjum erlendis? „Nei, ekki alveg. Endapunktur- inn var eftir. Mér bauðst að starfa í eitt ár á eynni Dominica í Karabía- hafinu og þangað fórum við Viggý. Þarna vann ég alfarið sem ráðgjafi í landi og líkaði mjög vel að vinna í þessari fyrrum bresku nýlendu sem hefur sína heimastjórn. Ibd- arnir eru svartir afkomendur Afr- íkuþræla, indælt fólk og gott að starfa með því. Árið 1989 hætti ég svo hjá FAO og kom alkominn heim. Guðlaugur Stefánsson frá Gerði, sem ég hafði áður verið með í útgerð, hafði haft samband við mig og boðið mér að ganga inn í fyrirtæki sitt, Veiðar- færaverslunina G. Stef- ánsson. Eg tók því boði og keypti helming í fyr- irtækinu á móti Guð- laugi. Guðlaugur gekk ekki heill til skógar og lést hálfu ári síðar. Þá keypti ég hans hlut af erfingjunum og í dag rekum við Viggý fyrirtækið G. Stefánsson á neðstu hæðinni í Val- höll við Strandveginn, í hjarta bæj- arins. Á þessum stað hefur margs konar starfsemi verið gegnum tíð- ina, einu sinni var hér áfengisversl- un, hér byrjaði Samfrost og hér var skrifstofa Fiskiðjunnar um hríð.“ Tilraun sem því miður gekk ekki upp Þú gerðir tilraun til nýsköpunar í atvinnulífi Vestmannaeyja fyrir nokkrum árum? „Við Hjörtur Hermannsson eignuðumst, ásamt Færeyingnum Olav Lava, plastverksmiðju, sem áður hafði verið í eigu Olavs, og settum hana upp hér í Eyjum. Þessi verksmiðja framleiddi flot fyrir togveiðar og framleiðslan gekk vel. En því miður gekk ekki nógu vel að selja framleiðsluna. Við lentum í samdrætti í útgerð, fækk- un skipa í flotanum sagði til sín og þótt við seldum rúmlega helming- inn af framleiðslunni á erlendum mörkuðum þá gekk dæmið ekki upp, því miður. Niðurstaðan varð sú að við seldum Sæplasti á Dalvík verksmiðjuna eftir að hafa rekið hana í tvö ár.“ Þegar skipstjóranum varð orðfall vegna hneykslunar Þitt aðaláhugamál er golf. Hvenær byrjaðir þú að iðka þá íþrótt? „Á árunum sem ég var í Malasíu. Þar eru margir mjög góð- ir vellir og þar byrjaði ég að slá hvítu kúluna. Eg hefði reyndar get- að svarið fyrir það á sínum tíma að ég myndi aldrei byrja í golfi svo fá- ránleg þótti mér sú íþrótt. Árið 1964 var ég með litla Hugin á síld- veiðum við Eyjar og hörkufiskirí. Vélstjóri á Hugin var Guðni Grímsson, sem nú er vélstjóri hjá Bæjarveitum Vestmannaeyja. Þetta sumar var Islandsmótið í golfi haldið í Vestmannaeyjum og Guðni tilkynnti mér að hann ætlaði að taka sér vikufrí til að taka þátt í því móti. Guðni segist aldrei á lífsleið- inni hafa séð mann jafnhneykslað- an og Gísla Jónasson þegar vél- stjórinn hans tilkynnti honum að hann ætlaði að taka sér frí á miðri síldarvertíð til að fara að spila golf. Skipstjóranum hefði orðið orðfall enda aldrei heyrt neitt fáránlegra. Síðan höfum við Guðni spilað marga hringi, bæði saman og með öðrum, og ég held að ég sé orðinn miklu meiri golffíkill en hann. Ef veður leyfir fer ég í golf á hverjum degi og hef ekki vílað fyrir mér að taka mér frí frá vinnu til að taka þátt í mótum. Eg er líka löngu hættur að hneykslast á öðrum fyrir slíkt. Einn kunningi minn og félagi á golfvellinum sagði við mig ein- hvern tíma: -Það er aðeins einn galli við þessa íþrótt, að maður skuli þurfa að stunda vinnu með henni! Ég held bara að ég sé honum að vissu leyti sammála.“ l í \ \ \ i \ Karalausnir frá Ife Við framleiðum eftirfarandi tæki til karameðhöndlunar 'J Karamagasín Karalyftur sí Karahvolfarar ® Karaflutningsbönd sí Pallalyftur íi Karaþvottavélar ® Kara-staflarar/afstaflarar í lausnum okkar leggjum við áherslu á áreiðanleika og öryggi. Þessum markmiðum náum við fram með markvissri hönnun og traustri smfði. Karaþvottavél Hvort sem er um er að ræða einfalda losun eða heildarlausn þá er 3X-Stál rétti samstarfs- aðilinn þegar kemur að karalausnum. Karahvolfari Karalyfta P.O.Box 377, IS-400, ísland 9 www.3x.is e-mail: 3x@3x.is Karamagasín Karaflutningsband

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.