Fiskifréttir


Fiskifréttir - 08.06.2001, Blaðsíða 17

Fiskifréttir - 08.06.2001, Blaðsíða 17
FISKIFRÉTTIR 8. júní 2001 17 Texti: Kjartan Stefánsson * I i \ i \ i \ i i i i i f i i i i i f, i i i i Allt á einu bretti... Frostþurrkaður grálúðurikklingur er hið mesta sælgæti. tugum. „Royal Greenland annast veiðar og vinnslu á krabba, rækju og grálúðu. Við vinnum ekki þær tegundir nema grálúðu á Austur- ströndinni. Við verkum fiskinn eins og þekkist á Islandi í salt og fryst flök, við vinnurn lax og silung, frystum karfa, söltum grásleppu- hrogn, frystum og þurrkum loðnu fyrir heimamarkað og loks erum við með stóra harðfisksverksmiðju sem framleiðir um 40 tonn af harð- fiski á ári fyrir heimamarkaðinn. Þetta er harðfiskur að íslenskri fyr- irmynd og það var eitt af mínum fyrstu verkum þegar ég kom til Grænlands að byggja þá verk- smiðju. Við þurrkum hlýra í rikkling og frystum grálúðuna á Japansmarkað. Einnig framleiðum við grálúðurikkling. Þrjár mikil- vægustu sjávarafurðir Nuka A/S eru grásleppuhrogn, harðfiskur og fryst grálúða.Við erum einnig með æðarfugl, vinnum afurðir af sjó- fugli, einkum langvíu, selum og hvölum. I dótturfyrirtækinu Neqi A/S eru unnar afurðir af landspen- dýrum, s.s. hreindýrum, lömbum og sauðnautum." Óravegalengdir Starfsemi Nuka A/S nær yfir gríðarlega stórt svæði. Fyrirtækið rekur verksmiðjur á Austurströnd- inni allt frá Scoresbysundi suður til Tasiusaq og á Vesturströndinni frá Kap Farvel í suðri og norður til Thule. „Við erum með starfsemi í 3 stórum bæjum, Nuuk, þar sem búa 15 þúsund manns, Kangatsiaq og Qaqortoq (Julianeháb) í bæjum með yfir 800 íbúa. I flestum smá- þorpunum búa þó ekki nema 200- 600 manns. Við erum þá yfirleitt eini atvinnurekandinn á svæðinu fyrir utan, kaupfélög, pósthús, raf- magns- og vatnsveitur og skóla. Oravegalengdir eru á milli vinnslu- stöðva en engar samgöngur finnast á landi fyrir utan snjósleða og hundasleða í nyrstu byggðunum. Menn verða því að ferðast sjóleið- ina eða fara með flugvélum og þyrlum. Þyrlur eru aðalfarartækin því flugvellir eru aðeins í stærstu bæjunum. Það er því miklum erfið- leikum háð að ferðast á rnilli staða og stundum getur maður orðið veð- urtepptur svo dögum og vikum skiptir. Þetta eru auk þess mjög dýrar samgöngur." Þarf að endurnýja bátaflotann Starfsemi Nuka A/S byggist nær eingöngu á landvinnslu en fiskinn fá þeir af bátum sem grænlenskar útgerðir og sjómenn eiga. Gunnar Bragi sagði að rekstur Nuka A/S væri algjörlega háður þessum að- föngurn og því skipti miklu máli hvernig staðið væri að veiðunum. „Hér þarf rniklu að breyta og bæta. Til dæmis er flotinn orðinn ansi úreltur en mikið er veitt á opnum bátum. Um 1.100 sjómenn leggja upp hjá okkur og hver bátur kemur með afskaplega lítið magn að landi. Það er enginn kvóti á fisk í Grænlandi sem veiddur er innan við 3 mílurnar en þó er kvóti á rækju. Reyndar eru nokkrar tak- markanir á grálúðuveiðum en leyfi til þeirra þarf að fá hjá viðkomandi sveitarfélagi. I Diskóflóanum, þar sem elliheimili grálúðunnar er að finna, eru þó sett þau takmörk yfir sumarmánuðunum að hver og einn smábátur megi aðeins koma með 1 tonn af grálúðu að hámarki að landi á dag. Þetta eru einu hindran- irnar á innanskerjaveiðum. Bátarn- ir eru litlir og við höfum rekið áróður fyrir því að sjómenn fái sér Sómabáta. Þeir gætu þá slegið sér saman 3-4 um hvern bát. Þannig gætu þeir siglt lengri leiðir, búið við meira öryggi, veitt með öðrum veiðarfærum og geymt aflann bet- ur um borð. Það er erfitt að fá Grænlendinga til að breyta venjum sínum því selveiðar eru þeim í blóð bornar. Þeir vilja eiga bát sem hentar fyrst og fremst til selveiða og þessar litlu jullur eru vel til þess fallnar.“ Þorskurinn veiddur í gildrur Grænlenskir sjómenn nota hefð- bundin veiðarfæri sem Islendingar þekkja, svo sem línu, handfæri, net og troll. Innfjarðarkarfinn er mikið veiddur á línu eða handfæri og er hann yfirleitt mjög stór, sannkall- aður aldamótakarfi. Fyrir utan hefðbundin veiðarfæri nota Græn- lendingar gildrur við veiðar á inn- fj arðarþorski. Innfj arðarþorskuri nn er svipaður hefðbundnum þorski nema hvað hann er miklu minni, svona 50-55 sm að lengd. Gildran er mjög sérstakt veiðarfæri og að mörgu leyti vistvænt. A henni er leiðari og þegar göngurnar koma syndir þorskurinn með leiðaranum og endar loks inni í nót. Síðan er snurpað og menn taka þorskinn og hægt er að sleppa honum lifandi ef hann er of smár. Einnig er hægt að geyma þorskinn lifandi í nótinni og taka hann og gera að honum eftir hendinni eins og hentar framleiðslu- getu vinnslunnar í landi. Þetta veið- arfæri er aðallega notað við inn- fjarðarveiðar á þorski og það getur verið mjög afkastamikið. Menn eru að fá allt upp í 50 tonn í einu.“ En fegurst er hafiö um heiða morgunstund, er himinninn speglast blár í djúpum álum, og árroðabliki bregður um vog og sund, og bárur vagga, kvikar af fleygum sálum, k en ströndin glóir, stuðluð og mikilleit, ' og storkar sínu mikla örlagahafi. Þá er eins og guð sé að gefa oss fyrirheit og geislum hirnins upp úr djúpinu stafi. i\ia$srmrine Mieð. . Sjomannadagskveðju! IMETASALAIM Skútuvagi 1B-L Pásthálf 40EE Regkjavík Sími 5E8 I8W Fax 5E8 1824 netasalan@netasalan.is Meginhlutverk Nuka A/S er að halda uppi atvinnulífi í hinum dreifðu byggðum landsins, segir Gunnar Bragi.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.