Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1946, Side 15

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1946, Side 15
9 ust niður eftir fá ár og koniu eigi að hagnýtu gagni t'yrir landbúnáð- inn. Á fyrra helmingi 19. aldar og eins síðasta fimmtung aldarinnar voru nokkrar tilraunir gerðar með bygg og liafra til þroskunar, og náði kornið, einkum bvgg, góðum þroska þegar vel áraði, en miður ef illa sumraði. Merkustu tilraunirnar, sem gerðar voru á þessari öld voru þær, sem Schirbeck landlæknir gerði frá 1883—’90. Fékk hann alloft l)ygg og' rúg' þroskað á þeim árum, þrátt fyrir fremur stirt tíðarfar. Það var enn sem fyrr, að tilraunirnar stóðu skamma hríð, og þótt árangur væri sæmilegur annað veifið, þá megnaði hann eigi að skapa trú á málefnið, eða skilning á g'ildi kornyrkjunnar fyrir íslenzka jarð- rækt. Eftir að gróðrarstöðvarnar komust á fót, hafa þar verið gerðar nokkrar tilraunir varðandi kornrækt, og hafa það aðallega verið af- brigðatilraunir. Beztu afbrigðin reyndust: Svalöfs tidlig 6 rd. og Bjarnöbygg. Á Akureyri var reyndur vetrarrúgur og sáð síðast í júlí, þroskaðist hann stundum þegar vel sumraði, söinuleiðis þroskaðist þar bygg í góðum árum. Beztu afbrigðin voru: Svalöfs tidlig, bygg frá Norðurbotnum í Svíþjóð, Torneaabygg, Finnebygg og Bjarköbygg. Á Eiðum voru einnig' gerðar lítils háttar tilraunir með kornrækt og tókst að fá sæmilega þroskað korn at’ vetrarrúgi. Þessar tilraunir voru gerðar á fyrstu starfsárum gróðrarstöðvanna, en var síðar hætt með öllu. 1 yfirliti þvi, sem Sigurður Sigurðsson og Einar Helgason birtu um aðalárangur jarðræktartilrauna gróðrarstöðvanna á Akureyri og í Reykjavík, í 34. árg. Búnaðarritsins, segir svo um kornyrkjuna: „Varla er líklegt, að arðvænlegt sé að rækta hér korn, þótt nokkur afbrigði geti náð hér þroska í g'óðum árum. Á hinn bóginn getur rækt- un kornegunda haft þýðingu, með þvi að sá þeim annað hvort einum eða með grasfræi, og nota grasið til fóðurs“, — og um vetrarrúg segir enn fremur: „Hann hefur þrifizt vel í g'róðrarstöðinni á Akureyri, sé honum sáð í mjddinn jarðveg seint í júlí. Eigi má liggja mikill snjór á honum yfir veturinn. Næsta vor vex rúggrasið fljótt, og er fræið oft orðið fullþroska í september.“ Hér hefur verið farið fljótt yfir sögu, en af því, sem nú hefur verið sagt, má ráða, að nokkur viðleitni hefur verið sýnd til að endurreisa innlenda kornrækt, þótt þær tilraunir allar hafi eigi borið tilætlaðan árangur, enda ber margt lil þess. ! fyrsta lagi stóðu tilraunirnar skamman tíma, og venjulega hætt eftir fá ár á hverjum stað. Þótt árangurinn vrði góður, var það minna metið en vert var, en aðallega horft í það þegar illa gekk, jafnvel þó það væri ekki alltaf árferðinu að kenna. Venjulega hefur verið of seint sáð í tilraunirnar, og jafnvel margs ann- ars verið vant, sem æfðir akuryrkjumenn vita og fara eftir. 1 öðru lagi voru tilraunirnar gerðar á þeim tímum, þegar jarðræktarkunnátta hjá almenning'i var lítil og svo var það, að engin stofnun var til í landinu, sem 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.