Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1946, Blaðsíða 17
I. Veðurfarið og skilyrði fyrir kornþroskun.
1. Almennar hugleiðingar.
Hér ti iandi er veðurfar á ýmsan hátt óhagstætt þroskun kornteg-
unda og' yfirleitt annarri fræþroskun, veldur hér hvað vor- og sumar-
hitinn er lágur, en þó ekki að öllu, heldur og hitt, hvað sumrin eru
misjöfn frá ári til árs. Komið geta suinur, í veðursælli héruðum lands-
ins, sem eru svo hlý, að þau nái að fullþroska snemmsprottnar vor-
hveititegundir, svo koma önnur, sem aðeins þroska fljótvaxin hygg-
afbrigði að %—% hlutum fulls þroska. Þá eru héruðin afar misjöfn
hvað ræktunarskilyrði snertir, einkum vestan-, norðan- og austanlands.
Þótt þar finnist líka sveitir, sem oft hafa hin beztu skilyrði fyrir bygg-
rækt, þá má þó hiklaust telja, að Suður- og Suðvesturland hafi jöfn-
ustu hitaskilyrðin fyrir þroskun korns og fræs, svo sem síðar segir.
Þótt skilyrði fyrir kornyrkju séu ekki allskostar góð á íslandi,
virðast þær tilraunir, sem nú um tvo áratugi hafa verið gerðar með
hagnýtum árangri, benda á nýja ínöguleika fyrir framleiðslu á korni:
byggi og höfrum. Þetla er ekkert sérstakt fyrir okkar land, því korn-
vrkja er víða rekin þótt skilyrði séu á ýmsa lund óhagstæð. í norðan-
verðum Noregi eru náttúruskilyrði víða ekki mikið betri en í veðursælli
héruðum íslands, og þó hefur kornyrkja haldizt þar við frá ómunatíð.
f Færeyjum hefur byggrækt verið stunduð síðan eyjarnar byggðust, og
eru skilyrði þar til kornyrkju ekki betri en á suðurströnd íslands. í
Færeyjum þarf bygg venjulega 140—150 sólarhringa til að ná fullum
þroska. Og ýmsar þær hafrategundir, sem hafa náð ágætum þroska á
Sámsstöðum undanfarin 12—15 ár, ná lélegum þroska í Færeyjum.
Það, sem ræður mestu um ræktunarfjölbreytni hvers lands, er veðr-
áttan, og kunnátta íbúanna á því að beita réttum tökum við framkvæmd
hverrar ræktunar: Kunna að velja og hafna i vali ræktunarjurta, sam-
hliða því að finna ráð og aðferðir til að forðast þau áföll, sem mislynd
veðrátta getur stundum valdið við framleiðsluna, en i þessu er rækt-
unarkunnáttan fólgin.
í norðlægum löndum er það lágur og misjafn hiti og of mikil úr-
koma, er torveldar kornyrkju, í suðlægum löndum er það of mikill hiti
og þurrkar, er geta þar gert kornyrkju og aðra ræktun áhættusama, en
þrált fyrir ýmsa annmarka veðurfarsins hefur mannlegu hyggjuviti