Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.05.1946, Blaðsíða 105
V. Samandreginn árangur og ályktanir.
Aðalniðurstöður þeirra tilrauna og rannsókna, varðandi korngrkju
á íslandi, sem að framan er lýst, eru þessar:
1. Frá því á landnámsöld og fram gfir ÍYOO var kornrækt víða
síunduð á íslandi, eða í fullar 5 aldir.
Skilyrðin vorn víða óhagstæð og lagðist kornræktin smám saman
niður í öllum kaldari héruðum. Lengst hélzt hún við á Suður- og Suð-
vesturlandi, en leið þar undir lok, þegar plágan mikla gekk yfir landið,
rétt eftir 1400. Aðallega var hér ræktað 6-rd. bygg.
Vegna. hnignandi landgæða, rányrkju, eldgosa, ísára, drepsótta,
óhægra samgangna við önnur lönd og versnandi stjórahátta, hnignaði
verklegri menningu þjóðarinnar, en af því leiddi, að akuryrkja gat eigi
haldizt við í afskekktu landi, því erfitt hefur reynzt að ná í hentugt
litsæði, þegar byggræktin brást, en vitað er, að stundum þroskaðist
kornið illa, og hefur þá verið ónothæft til útsæðis. Þegar kornyrkja var
liðin undir lok, gleymdist sú vinnutækni, sem samfara varð framkvæmd
kornyrkjunnar. Siðir og venjur, sem fylgdu árlegri jarðrækt, týndust
einnig. Er hér að leita aðalorsakanna fyrir því, að ekki hefur enn tekizt
að taka kornyrkju upp almennt. Eftir miðja 17. öld og allt frain yfir
1900, voru margar tilraunir gerðar með kornyrkju, en ekki megnuðu
þær að fá bændur til að taka kornyrkju upp í íslenzka jarðrækt.
2. Það, sem mestu skiptir, að bggg og hafrar nái fullum þroska, er
veðurlagið, (einkum hiti og úrkoma) 2—3 síðustu sumarmánuðina.
Ef meðalbiti í júlí og ágúst er 10.4—10.6 C°, og úrkoma ekki yfir
50—60 millimetrar hvorn mánuð, getur 6-rd bygg náð góðum þroska,
ef því er sáð í síðasta lagi 10. maí. Sami hiti með einum þriðja til helm-
ingi meiri úrkomu þroskar báðar þessar tegundir svo, að kornþyng'din
verður allt að % á við góða þroskun. Köld vor, en góður hiti seinni
hluta sumars, hafa reynzt góð kornár. Heit vor, en köld tíð i júlí og
ágúst, þroska bygg og hafra fremur illa. Ef hitinn er yfir 11 C° í júlí
og ágúst, nær bygg og hafrar góðurn þroska, þó úrkoman sé yfir 80 mm
livorn mánuð. 1—2 C° frost hefur eigi skaðað bvgg eða hafra, ef það
hefur komið á þurrt og vel þroskað kornið, en blautt og illa þroskað korn
— hvort sem er bygg eða hafrar — þolir ekki þetta frost, án þess að
fyrir þroskunina taki og setji niður gróinagn þess. Eftir rannsókn á
13