Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Síða 53
Fornleifarannsóknir á Skriðuklaustri
messu. Mikilvægt var að mætt yrði til óttu-
söngs fyrir fyrstu morgunskímu dagsins og
eins til náttsöngs fyrir náttmyrkrið. Hver og
einn skyldi einnig ganga tafarlaust til
kirkjunnar en þó án nokkurs asa sem þótti
refsiverður.19 Kirkjan getur því vart hafa
staðið langt fjarri öðrum klausturhúsum.
Ymsar tilgátur hafa verið lagðar fram til
skýringar á því hvers vegna kirkja Skriðu-
klausturs er vígð svo seint sem ritaðar
heimildir skýra ffá. Giskað hefur verið á að
það hafi hreinlega gleymst að skrá vígslu
kirkjunnar fyrr en árið 1512, að kirkjan hafi
verið endurreist og endurvígð árið 1512, að
heimakirkjan á Skriðu hafi verið notuð sem
klausturkirkja fram að vígslunni, eða að á
staðnum hafí staðið kapella allt frá stofnun
klaustursins.20
Sr. Heimi Steinssyni sem rannsakaði
ítarlega munklífi á Skriðu þykir ólíklegt að
Stefán biskup Jónsson hafí gleymt að færa
vígsluna til bókar í svo langan tíma og sér
enga líklega ástæðu fyrir slíkri frestun.
Vígslubréfið er ótvírætt ritað þann 12.
september 1512 en Heimir telur líklegt að
biskup hefði getið þess sérstaklega ef
vígsluárið væri annað.21 Ekki telur hann
heldur líklegt að kirkjan hafi verið endur-
vígð við hugsanlega endursmíð árið 1512,
því fyrir því finnst engin hefð. Heimakirkj-
an á Skriðu var lítil og byggð af miklum
vanefnum ef marka má lýsingar á henni,
svo fræðimenn virðast sammála um að hún
hafi vart getað þjónað sem klausturkirkja
samhliða því að þjóna heimilismönnum á
bænum.22
Tilgátan um kapelluna hefur nú verið
staðfest með fundi rústar hennar meðal
annarra rústa klaustursins á Skriðu. Sr.
Heimi þótti sú tilgáta einnig líklegust en
hafði engar haldbærar heimildir um að svo
væri. Hann taldi sig þó hafa fundið vís-
5. mynd. Vikursteinn úr rústum Skriðuklausturs.
Blek smaug betur í bókfellið ef það hafði verið
sléttað með vikursteini.
bendingu um að bænhús eða lítil kapella
hafi verið hluti af byggingunum. í lýsingu
frá 1598 á munum kirkjunnar er talin lítil
klukka í „bænhúsinu“.
...lesandinn hnýtur um þær upplýsingar
vízitasíunnar í miðri lýsingu kirkjunnar, að
eina litla klukku sé að finna i „bænhúsinu“.
Hvaða bænhús er þetta? Ekki er alls útilokað
að „bænhúsið“ sé að fínna í kirkjunni sjálfri,
að þar hafí verið innréttuð lítil kapella til
einveru og næðis...23
Bent skal á í þessu samhengi að algengt
var að í miðaldaklaustrum annarra landa
Evrópu væru kapellur auk kirkju. Kapell-
umar voru eingöngu ætlaðar munkunum
eða nunnunum, eftir því sem við átti, en
klausturkirkjuna máttu allir þeir nota sem
höfðust við í klaustrinu, þ.e. próventufólk,
nemar, pílagrímar, auk heimamanna ef þess
var óskað.
20Heimir Steinsson 1965. Bls. 31-35.
'*Heimir Steinsson 1965. Bls. 32.
22
Heimir Steinsson 1965. Bls. 33-34.
23
Heimir Steinsson 1965. Bls. 52.
51