Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Síða 99
Baldur Þór Þorvaldsson
Brú á Jökulsá hjá
Hákonarstöðum
ásamt lauslegu yfirliti yfir fyrstu
brýr á ánni
Jökulsá á Brú - einnig kennd við Dal - er
lengsta og vatnsmesta áin á Austurlandi
og er ásamt Lagarfljóti höfuðfljót
landshlutans. Að vatnsmagni er hún sú
ijórða mesta á landinu og skipar jafnframt
þann óskemmtilega sess að vera sú aurug-
asta. Hún kemur undan Brúarjökli, öðrum
stóra skriðjöklinum, sem gengur norður úr
Vatnajökli. Efst rennur hún á eyrum og
síðar í Dimmugljúfrum og Hafrahvamma-
gljúfrum, sem núorðið er farið að kalla
„Gljúfrin rniklu" því þau eru vafalítið þau
hrikalegustu á landinu. Þaðan á hún enn
eftir nokkra leið í byggð og nær þangað
fyrst á móts við bæinn Brú, efst á Jökuldal.
Síðan linnir hún ekki sprettinum fyrr en hún
kemur niður í Jökulsárhlíð, en þar rennur
hún með spekt seinasta kaflann, enda
komin niður á sléttlendið. Loks lýkur hún
för sinni niður í Héraðsflóa, eftir allt að 150
km ferð.A1 Hún hefur á leið sinni rist
Jökuldalinn að endilöngu svo segja má, að
hún hafi hlutað hann í sundur og hefur því
verið helsti áhrifavaldur landmótunar þar
allt frá ísöld. í sveitarlýsingu á Jökuldal
Sögusviðið. Kort unnið af Askeli Heiðari Asgeirs-
syni í samráði við höfundinn.
segir: „Jökulsá fellur í þröngum gljúfrum
víðast dalinn endilangan og hefur alltaf
verið mikill farartálmi innsveitis og á þjóð-
leið.“B2
Brýr á Jökulsá á Brú til forna
Nokkuð er augljóst, að menn hafa frá
öndverðu haft mikla þörf fyrir að komast
yfir ána á brú, því vöð eru varla nokkur á
henni. Það var einkum í sumarhamnum,
með sitt moruga skol, sem hún var erfiðust.
Þá var hún ófær langtímum saman, þegar
mönnum voru ferðir helst í huga. Sam-
kvæmt munnmælum var steinbogi á ánni
við Brú á Efra-Dal og bendir nafngiftin á
bænum til þess. I Hrafnkelssögu Freys-
goðac3 og Droplaugarsona söguCA er talað
um brýr og í Þorsteins sögu Jivítacs er talað
um brú, en ekki er ljóst hvort um tilbúnar
brýr eða steinboga hafí verið að ræða.
Sérstaklega er það í Hrafnkelssögu, sem
lýsingin bendir til að farið hafí verið yfír
ána hjá bænum Brú.C6 Þótt menn efíst um
sannleiksgildi fomsagnanna, hvað varðar
menn og málefni, þá er Ijóst að umhverfi
þeirra og vettvangur er ekki hugarburður
einn, því víðast þekkist það enn á okkar
97