Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2003, Page 160
Múlaþing
komin í Amórsstaði. Þar eru þau til 1833
þegar þau fara alfarin af Jökuldal.
Aður hefur þess verið getið að sr. Sigfus
Finnsson virðist hafa verið í góðum vinskap
við Gísla landseta sinn á Hvanná og Arn-
órsstöðum og þess vegna líklegur til að
skipa málum sem best fyrir hann og hans
skyldulið. En prestur hafði ekki eindæmi í
þessum málum, þar komu líka til afskipti
hreppstjóra sveitarinnar.
Hreppstjóri á Jökuldal á þessum árum
var Oddur Eiríksson bóndi á Hauksstöðum.
Hann var hreppstjóri um tveggja áratuga-
skeið og þar á meðal þann tíma sem Ingi-
björg og Gunnlaugur stóðu í bameignum.
Nú vill svo til að Gunnlaugur var um tíma
vinnumaður á Hauksstöðum. Auk þess var
nábýli milli Hvannár og Hauksstaða og
óhjákvæmilega mikill samgangur.
Afskiptaleysi prests og hreppstjóra af
sambúð Gunnlaugs og Ingibjargar jafn
lengi og raun ber vitni kann að skírast af
þessu, en jafnframt að þegar útséð var um
að þau gengu í hjónaband hafí þeir orðið að
gera ráðstafanir til að skilja þau að.
Hvað sem þessu líður þá er Bjöm orðinn
Sæmundsson þegar hann er skráður með
móður sinni meðal innkominna í Assókn
árið 1828 og þannig er hann skráður alla tíð
síðan. Ingibjörg fer vinnukona að Setbergi
í Fellum til Jóns Bjamasonar og konu hans
Þórunnar Eiríksdóttur frá Merki á Jökuldal.
Árið eftir fer Ingibjörg í Hafrafell með
dreng sinn og er þá vinnukona hjá Sigurði
Guðmundssyni og Þorbjörgu Þorkelsdóttur.
Á öðm búi á Hafrafelli bjó þá Helga Þor-
leifsdóttir ekkja eftir Bjama bróður Ingi-
bjargar, hann hafði dmkknað í Langavatni
1824.
Eins og fram hefur komið þá undirritar
séra Sigfús Finnsson og dagsetur húsvitj-
unarbækur sínar. Vorið 1829 lýkur hann við
húsvitjunarbókina þann 19. maí. Þarkemur
fram að Gunnlaugur Jónsson sé „fróður og
greindur og oft gistandi“. Þetta lesum við
Páll Pálsson frá Aðalbóli úr innfærslu séra
Sigfúsar án þess að vera fullvissir um að
rétt sé lesið. Þetta gæti þýtt að Gunnlaugur
hafí á þessum tíma verið á einhverju flakki
þótt hann væri heimilisfastur á Amórsstöð-
um. Nær fúllvíst er að þegar prestur skráir
þetta þá er Gunnlaugur látinn. Hann hverf-
ur algerlega úr prestþjónustu- og húsvitjun-
arbókum Hofteigssóknar og hrepps- og
skiptabækur nefna hann ekki.
í kirkjubók Sauðaness á Langanesi þetta
ár fínnst skráð; að þann 20. mars hafí orðið
úti og 13. apríl 1829 hafí verið jarðaður
Gunnlaugur Jónsson, umrenningur úr
Múlasýslu. Séra Stefán Einarsson bætir við
til skýringar „varð úti frá Gunnarsstöðum
en fannst firá Hallgilsstöðum.“ Ennfremur
segir í kirkjubókinni „var truflaður á geðs-
munum.“ Eg tel vafalaust að þama hafí
verið skráð hinsta för Gunnlaugs Jónssonar
frá Amórsstöðum. En hvaða erindi átti
Gunnlaugur á þessar slóðir, því er vand-
svarað, þó er þess að geta að bróðursonur
Gunnlaugs, Sigurður Þorsteinsson bjó vorið
1829 góðu búi á Hóli í Kelduhverfi.
Sonur Sigurðar Guðmundssonar og
Þorbjargar Þorkelsdóttur á Hafrafelli hét
Sveinn fæddur 17. mars 1803 og því fímm
árum yngri en Ingibjörg Bjarnadóttir.
Sveinn var ekki á Hafrafelli árið sem
Ingibjörg var þar vinnukona hjá foreldrum
hans en vafalaust hafa þau hittst og trúlega
tekist með þeim einhver kynni. Það er
a.m.k. víst að 21. maí 1833 eru gefín saman
á Ási Ingibjörg Bjarnadóttir og Sveinn
Sigurðsson, Sveinn er vinnumaður hjá séra
Benedikt Þórarinssyni en Ingibjörg er
húskona. Enginn kotungsbragur er á þess-
um ráðahag, brúðguminn færir brúðinni 26
dali í morgungjöf.
Móðir Ingibjargar, Margrét Bjömsdóttir
158