Fréttablaðið - 20.11.2021, Side 12

Fréttablaðið - 20.11.2021, Side 12
Um það bil 3.600 ein- staklingar láta lífið í umferðinni á hverjum degi á heimsvísu. • Gistiheimili, sex fullbúin herbergi • Veitingasalur ásamt fullbúnu eldhúsi • Stórt tjaldsvæði og mjög góð grill- og eldunaraðstaða sem og hreinlætisaðstaða • Fallegur skógarreitur til útivistar • Stór hlaða innréttuð sem veisluaðstaða • Hesthús ásamt beitarhaga • 88 m2 íbúð fyrir leigutaka á staðnum Einstakt tækifæri - Gistiheimili við þjóðveg 1 til leigu Húnavatnshreppur hunavatnshreppur.is Húsnæðið er laust frá og með 1. janúar 2022. Senda skal umsókn fyrir 6. desember nk. á netfangið einar@hunavatnshreppur.is. Nánari upplýsingar: Einar Krisján Jónsson sveitarstjóri í síma 455 0010 og 842 5800. Áskilinn er réttur til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum. Félagsheimilið Húnaver ásamt öllu sem því tilheyrir Samkvæmt nýrri skýrslu um embætti ríkissaksóknara Vestur-Þýskalands voru nasistar enn í meirihluta yfir- manna árið 1971. Vegna kalda stríðsins voru gamlir nasistar gerðir að bandamönnum í baráttunni gegn kommún- istum. kristinnhaukur@frettabladid.is þýskaland Ný skýrsla um ríkis- öryggismál Vestur-Þýskalands á eftirstríðsárunum, sýnir að skráðir meðlimir Nasistaf lokksins voru mjög áhrifamiklir í dómskerfinu fram til ársins 1974. Á þetta einkum við um fulltrúa ákæruvaldsins. Skýrslan var samin af sagnfræð- ingnum Friedrich Kiessling og lög- spekingnum Christoph Safferling og telur 600 blaðsíður. Kemur meðal annars fram að á sjötta áratugnum voru þrír fjórðu allra yfirmanna hjá embætti ríkissaksóknara nasistar og 80 prósent af þeim höfðu starfað í dómskerfi Adolfs Hitler. Það var ekki fyrr en árið 1972 sem þeir voru ekki lengur í meirihluta hjá emb- ættinu og sá síðasti hætti árið 1992, tveimur árum eftir sameiningu Þýskalands. Fjölmargir af þessum embættis- mönnum báru ábyrgð á manns- lífum. En í valdatíð Hitlers var hlut- leysi dómstóla svo gott sem lagt niður og tími sýndarréttarhalda tók við. Þó að mikill meirihluti aftaka og morða nasistanna hafi verið án dóms og laga, voru dauðadómar í dómskerfinu um 40 þúsund talsins. Einkum með hengingu eða afhöfðun með fallöxi. Til samanburðar voru vel innan við 500 tekin af lífi frá alda- mótunum 1900 til valdatöku nasista. „Hjá embætti ríkissaksóknara var ekki skilið við fortíð nasismans,“ segja höfundarnir í skýrslunni. Skýrslan var gerð að undirlagi sak- sóknarans Peters Frank árið 2017. Höfðu skýrsluhöfundar óhindrað- an aðgang að hundruðum skjala um starfsmenn, sem læst höfðu verið niðri á eftirstríðsárunum. En hver var ástæðan fyrir því að nasistunum var haldið í emb- ættum? Jú, á sjötta áratugnum voru nasistarnir ekki lengur ógn, heldur kommúnistar. Vestur-Þýskaland naut stuðnings Bandaríkjanna og annarra vesturvelda við að uppræta kommúnisma í landinu. Þetta var vitaskuld á kostnað þess að Þjóðverjar gætu gert upp fortíð sína gagnvart nasismanum og hel- förinni. Í áratugi var höfðinu stung- ið í sandinn gagnvart glæpum og gamlir nasistar þess í stað gerðir að bandamönnum í baráttunni gagn- vart kommúnistum. Embætti ríkissaksóknara er langt frá því að vera eina stofnunin sem nasistarnir fengu að leika lausum hala í. Til dæmis var árið 2016 gerð skýrsla um dómsmálaráðuneytið, þar sem kom fram að meira en ára- tug eftir stríðslok voru 77 prósent starfsmanna fólk sem skráð var í Nasistaf lokkinn. Safferling kom einnig að þeirri skýrslu og komst að því að hlutfallið jókst á sjötta ára- tugnum. n Nasistar áhrifamiklir áratugum eftir stríðslok Kiessling, Safferling, Margrete Sudhof ráðherra og Peter Frank saksóknari, við afhjúpun skýrslunnar. Fréttablaðið/Getty Roland Freisler var alræmdasti dómari í sýndardómskerfi Hitlers. Fréttablaðið/Getty ser@frettabladid.is samgöngur Alls hafa 1.591 ein- staklingur látist í umferðinni á Íslandi frá því fyrsta banaslysið var skráð hér á landi í ágúst 1915. Það sem af er árinu 2021 hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðinni hérlendis, jafn margir og allt árið þar á undan, sem er undir meðaltali síðustu áratuga, en undanfarin tíu ár hafa að meðaltali tólf manns far- ist í umferðinni og áratuginn þar á undan misstu landsmenn að meðal- tali 20 manns á ári á götum úti. Á þessum umrædda áratug, frá 2001 til 2010, slösuðust 3.374 alvar- lega í umferðinni hér á landi, eða ríflega tíu sinnum fleiri en þeir sem létust í bílslysum, en samkvæmt þeim tölum má ætla að frá fyrstu skráningu umferðarslyss hér á landi árið 1950, hafi allt að sextán þúsund manns slasast alvarlega í umferðinni. Þetta kemur fram í nýrri saman- tekt Samgöngustofu í tilefni af því að á sunnudag er alþjóðlegur minningar dagur um fórnarlömb umferðarslysa. Tilgangur hans er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni, en ekki hvað síst að þakka viðbragðsaðilum fyrir veitta hjálp og björgun á slys- stað. Um það bil 3.600 einstaklingar láta líf ið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á hverjum degi, en það svarar til 1,3 milljóna manna á ári. Í tilefni dagsins leggur Samgöngu- stofa áherslu á umfjöllun um mikil- vægi öryggisbelta í umferðinni, en athygli vekur að Ísland er í sautj- ánda sæti í Evrópu í bílbeltanotkun. Allar aðrar Norðurlandaþjóðir eru ofar Íslandi á þeim lista. Frakkar, Þjóðverjar og Bretar eru duglegastir að nota beltin, um 98 prósent íbúa þar nota þau að staðaldri, en notk- unin hér á landi er um 92 prósent. Samkvæmt könnun sem Sam- göngustofa hefur gert eru nú um 25 þúsund manns sem láta það gerast að nota ekki öryggisbelti, en sér- fræðingar stofunnar hafa í því efni bent á að sá sem notar ekki bílbelti er í um átta sinnum meiri hættu á að lenda í banaslysi en sá sem spennir það á sig. Þeir vitna þar í rannsóknir sem sýna enn fremur að í lang- flestum tilfellum hefði viðkomandi bjargast hefði hann notað beltin. Táknrænar minningarathafnir verða haldnar um land allt á morg- un í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg og verður f lestum streymt. Hægt er að nálgast upp- lýsingar um þær á vefnum minn- ingardagur.is. n Sextán hundruð látist í bílslysum hér á landi Fyrsta banaslysið tengt bílaumferð hér á landi var skráð árið 1915. Sjö ein- staklingar hafa látist í bílslysum á þessu ári. Fréttablaðið/anton brink 12 Fréttir 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.