Fréttablaðið - 20.11.2021, Qupperneq 28
En svo fór að hann varð ekki
læknirinn á heimilinu, heldur konan
hans, Arna Dögg Einarsdóttir, sem er
læknir á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, en þau hafa verið saman
„allt frá fyrsta kossi 1998“ og það
glaðnar yfir viðmælandanum um
stund, áður en talið berst að heimil
ishaldinu og uppeldi fjögurra barna
á aldrinum 17, 16, 12 og 10, en á bak
við þær tölur eru Ragnheiður Hulda,
Steinar Gauti, Eggert og Móeiður.
„Það eru forréttindi að vera borg
arstjóri, en það getur verið fórn fyrir
þá sem eru manni nánastir. Álagið
sem fylgir starfinu er oft mjög mikið
og álaginu heima fyrir er misskipt
eftir því. Ég skrifa aðeins um þetta
í nýju bókinni og kemst þannig að
orði að ég upplifi mig nánast sem
gervifemínista. Ég er alinn upp í
jafnrétti. Mamma og pabbi skiptu
heimilisverkunum alltaf jafnt á
milli sín þegar þau voru að ala okkur
systkinin upp. Í þeim samanburði
hef ég ekki staðið mína plikt. Það
er á við framkvæmdastjórastöðu
að reka heimili með fjögur börn á
aldrinum 10 til 17 ára og henni hefur
Arna gegnt að stórum hluta. Þannig
er það bara.“
Hefurðu misst af börnunum?
„Nei, samband mitt við krakkana
er gott. En það getur verið ósann
gjarnt að vera makinn sem er bara
til staðar þegar það er gaman hjá
börnunum, en vera oftast víðs fjarri
þegar það þarf að leysa úr öllum
þessum aragrúa hversdagslegra
verkefna sem þarf að sinna á stóru
barnaheimili.“
En hefurðu misst af Örnu?
„Nei, sem betur fer ekki – og þvílík
gæfa að hafa hitt hana – og heppni.
Það er ekkert sjálfgefið að hitta
réttu manneskjuna, en það gerðist
í mínu tilviki – og hennar sennilega
líka,“ segir Dagur og brosir á ný: „Við
eigum sem betur fer fjölmargt sam
eiginlegt og verjum fyrir vikið mikl
um tíma saman,“ segir eiginmaður
inn og bætir sem snöggvast við:
„eiginlega alltaf þegar við getum,“
en bendir svo á eina ókostinn á ráða
hagnum, en svo margir vinir Örnu
búi í Svíþjóð þar sem hún hafi sjálf
alist upp í fimm systkina hópi, næst
elst á heimili Einars Þórhallssonar
læknis og Sigríðar Steinarsdóttur
lífeindafræðings, sem hafi sest að í
bænum Växjö og búi þar enn. „Það
er svolítill spölur í matarboðin á
þeim bæjunum.“
Bók um borgina og breytingarnar
En hefur engin alvara verið í því að
söðla um og fara í landsmálin?
„Það hefur oft komið til tals –
og vel að merkja, ég ætla ekki að
fullyrða sem svo að ég fari aldrei í
landsmálin. Það hafa allt of margir
brennt sig á því,“ en hann segir að
alltaf hafi borgin togað meira í sig
en landsmálin: „Borgarmálefnin eru
vanmetin, en verkefnin bæði stór og
skemmtileg. Viðfangsefnin eru líka
svo nálægt manni og fyrir vikið er
svo auðvelt að brenna fyrir þeim.
Krakkarnir minna mig oft á þetta
þegar við erum á ferð um borgina,
en þá hef ég óvart tekið krók eða
sveigt af leið til að skoða eitthvert
uppbyggingarsvæðið.“
Síðustu þingkosningar hafa sumsé
ekkert kitlað?
„Ég var óvenju f ljótur að hugsa
minn gang í aðdraganda þeirra,“
segir hann og brosir, en setur svo
upp næsta íbygginn svip: „Það
kemur dagur eftir þennan dag.“
Og það er auðvitað til marks
um ódrepandi borgarmálaáhuga
Dags að hann sendir frá sér viða
mikla bók um borgina við Sundin
blá í næstu viku, en hún ber nafnið
Nýja Reykjavík – umbreytingar á
ungri borg, en þar fjallar hann um
umskiptin í Reykjavík á síðustu
áratugum sem hann hefur starfað í
Ráðhúsinu og sögu þeirra róttæku
hugmynda sem hann segir í ríkari
mæli vera að verða að veruleika.
„Ég hef gengið með þessa bók í
maganum býsna lengi, kannski allt
frá því samstarf okkar Jóns Gnarr,
forvera míns á stóli borgarstjóra,
var og hét. Ég lærði svo ótalmargt af
honum, svo sem þá afstöðu að vera
ekki alltaf að svara úrtöluröddum
heldur gera bara hlutina. Þessi
heildarhugsun hefur ekki verið
til á einum stað fyrr en núna, með
bókinni.“
Hann segir að ritið hafi í fyrstu
átt að vera eins konar borgarþró
unarbók, en svo þegar á leið hafi
hún orðið persónulegri og von
andi skemmtilegri og aðgengilegri
fyrir vikið: „Ég rek atburðarásina í
borgar pólitíkinni á tíma mínum í
borgarstjórn, sem hefur verið væg
ast sagt litrík,“ segir hann og fórnar
höndum og báðir sjáum við fyrir
okkur fjörlegt sviðið, frá tímum
Reykjavíkurlistans, sem batt enda
á óralangt valdaskeið íhaldsins í
borginni árið 1994, þar til vinstri
flokkarnir héldu um þræðina með
Framsókn á nýrri öld, sigra Ingi
bjargar Sólrúnar, skamma valdatíð
Þórólfs Árnasonar og Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur, valdatöku
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, hund
rað daga stjórnartíð Dags á mánuð
unum áður en allt hrundi, upprisu
og fall Ólafs M. Magnússonar og loks
fordæmalausa valdatíð Jóns Gnarr
eftir kosningarnar 2010. Og við
tökum báðir andköf, þvílíkir tímar
og rússíbanareið: „Auðvitað svipti
ég hulunni af ýmsu sem gerðist á
bak við tjöldin,“ segir hann með
glott á vör, „milli þess sem ég segi frá
metnaðarfullum áformum og alls
konar hugmyndum og verkefnum
sem eru á fárra vitorði.“
Uppbyggingin átti að hefjast fyrr
Hann segir mikinn létti að vera
búinn með bókina – og þegar hann
er inntur eftir því hvað hafi komið
honum mest á óvart við alla þessa
rannsóknarvinnu er hann snöggur
til svars: „Hvað þetta hefur verið
viðburðaríkur tími,“ og hann lygnir
aftur augum.
„Hvað Reykjavík hefur sótt fram
á mörgum sviðum. Og hvað kraft
urinn og umbreytingin er mikil.
Viltu að ég telji allt upp? Vísinda
þorpið í Vatnsmýri, kvikmynda
þorpið í Gufunesi, uppbygginguna
úti á Granda, húsnæðisuppbygg
ingu fyrir alla tekju hópa, endur
nýjun miðborgarinnar, um bylt ingu
í hjólaleiðum og þéttingu byggðar
um alla borg …“
En ég stoppa hann af og spyr
hvort menn á borð við Bolla Krist-
insson muni falla fyrir þessari bók.
„Ég vona að þeir lesi hana og átti
sig á því að gömlu hugmyndirnar
um hraðbrautaborg, þvers og kruss
um Reykjavík, hefðu endað með
minni lífsgæðum allra og einni
stórri umferðarsultu,“ og Dagur
minnir á að stjórnendur allra vist
vænustu borga heims hugsi eins, að
draga úr umferð og gera byggðina
grænni og sjálf bærari.
En talandi um gagnrýni. Eftir
hverju sérðu mest?
„Húsnæðisuppbyggingin hefur
slegið met síðustu fimm ár, en hefði
mátt hefjast strax eftir hrun. Það
var arfavitlaust af hægrimönnum
að leggja verkamannabústaða
kerfið niður um aldamótin og
það fór of boðsleg orka og tími í
það hjá okkur hinum að bregðast
við. Hugsaðu þér, það fóru aðeins
tíu íbúðir í byggingu í borginni á
heilu ári þegar við tókum við af
íhaldinu árið 2010,“ og hann baðar
út höndum, gáttaður á samanburð
inum við síðustu ár. „En sumsé, það
tók of langan tíma að finna svarið
og búa til úrræði á borð við Bjarg,
byggingarfélag og aðrar félagslegar
lausnir á ný.“
Gigtin fyllti mig kvíða og depurð
Við röltum upp Þingholtin, heim
á Óðinsgötu, og ég tek eftir því að
Dagur stingur ekki lengur við. Og
þegar inn er komið hangir raunar
stafurinn uppi á hönk í anddyr
inu. Yfir ilmandi kaffibolla spyr
ég hvernig hann hafi það og hvort
hann hafi náð sér: „Já og nei,“ er
svarið. „Ég er svo til verkjalaus og
finn ekki fyrir bólgum eins og áður.
Það er lyfjunum að þakka. Það er
helst að gigtin togi í mig ef ég ætla
mér um of.“
Dagur greindist með fylgigigt
haustið 2018 eftir að hafa glímt við
sýkingu af völdum iðrakveisu. „Ég
var óheppinn,“ segir hann og ræðir
svo áfallið: „Óvissan var verst, ég
vissi í byrjun svo lítið, svo sem
hvernig ég myndi svara lyfjunum
– og þróun sjúkdómsins getur verið
svo ótrúlega ólík eftir einstakling
um.“
Og hann rifjar upp sögu: „Þegar
meðferðin fór á fullt sagði læknir
inn minn að hann væri bjartsýnn,
en ég yrði að forðast allt álag – og
svo hló hann eins og hross,“ og Degi
er skemmt yfir sögunni, getur eftir
allt saman brosað þótt hann hafi
á tímabili velt því fyrir sér hvort
hann yrði að láta af störfum í Ráð
húsinu. „Ég var orðinn smeykur
um það á tímabili. Ég komst varla
á milli hæða hérna í húsinu,“ segir
hann og bendir fram á skör. „Ég
svaraði lyfjunum vel í byrjun, en
svo fékk ég aðra sýkingu sem sló
mig til baka. Það fyllti mig kvíða
og depurð eins og ég reifa í nýju
bókinni – og reyndist mér miklu
erfiðara en greiningin í byrjun.“
En stafurinn er óhreyfður?
„Já, en hann er áminning,“ segir
Dagur, „áminning um dýrmæti
heilsunnar.“
Og svo er bara að hætta ekki að
þora?
„Aldrei,“ segir hann, hæfilega
langt frá glugganum sem vísar út
á torg. n
Skotárásin
á heimili
okkar
Örnu fékk
mikið á
okkur. Mín
ósjálfráðu
viðbrögð
voru þá: Ég
er hættur,
þarna eru
mörkin.
Ég stóð
sjálfan mig
að því að
horfa
öðruvísi út
um glugg-
ann á
heimilinu
en ég hafði
áður gert.
Dagur segir að
hann sé ekki
ómissandi,
það sé enginn í
pólitík, en hann
eigi enn verk
eftir óunnið.
Fréttablaðið/
Valli
28 Helgin 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið