Fréttablaðið - 20.11.2021, Side 48
Kennari
Verzlunarskóli Íslands auglýsir laust til
umsóknar 100% starf efnafræðikennara á
vorönn 2022.
Hæfnikröfur:
Háskólapróf í raungreinum.
Kennsluréttindi.
Reynsla af kennslu í framhaldsskóla er kostur.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Inga Sívertsen
skólastjóri.
Umsóknarfrestur er til 1. desember og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið
gunninga@verslo.is
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1000 nemendur.
Skólinn er bekkjarskóli. Nemendur geta valið á milli fjögurra mismunandi
brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum. Samkvæmt
lögum um framhaldsskóla nr. 92 frá 2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra
hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en ráðið er í starfið.
Lögfræðingur
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Neytendastofa auglýsir eftir lögfræðingi til starfa fyrir kærunefnd
vöru- og þjónustukaupa. Um 100% starf er að ræða sem ráðið
verður í frá 1. janúar 2022.
Helstu verkefni
• Starfssvið lögfræðings felst í allri umsýslu og utanumhaldi utan
um kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
• Starfið er fjölbreytt og í því reynir á fjölmörg lögfræði-
lega áhugaverð álitaefni.
• Upplýsingagjöf og leiðbeiningar til þeirra sem til nefndarinnar
leita, s.s. neytenda, fyrirtækja, annarra stjórnvalda, o.fl.
• Þátttaka og undirbúningur við gerð úrskurða nefndar-
innar.
• Umsjón með rafrænni málsmeðferðargátt nefndarinnar, þ.m.t.
aðgangsstýringar, aðstoð og leiðbeiningar til nefndarmanna og
viðskiptamanna.
• Önnur tilfallandi lögfræðiverkefni, eftir því sem við getur átt.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistara- eða embættispróf í lögfræði
• Reynsla eða þekking á neytenda- og/eða kröfurétti
er kostur
• Reynsla eða þekking á sviði stjórnsýsluréttar er kostur
• Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg og gott vald á ensku og
þekking á einu norðurlandamáli
• Góð almenn tölvukunnátta
• Frumkvæði, góð samskiptahæfni og metnaður í starfi
• Sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
Umsækjendur þurfa að búa yfir ríkulegri samskiptafærni, sýna
frumkvæði og nákvæmni við úrlausn mála, auk þess að stunda
almennt fagleg, öguð og skipulögð vinnubrögð. Umsækjendur
þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika, þjónustulund og festu sem nauðsynleg er
til að ná árangri í störfum fyrir nefndina.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóvember 2021.
Umsókn óskast fyllt út á www. starfatorg.is og skal fylgja
prófskírteini, ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi
í starfið. Um launakjör fer samkvæmt viðeigandi kjarasamningi
opinberra starfsmanna. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í
sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr.
464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breyting-
um, nema umsækjandi óski skemmri tíma.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Hildur Ýr Viðarsdóttir, formaður Kærunefndar vöru- og
þjónustukaupa í síma 5202900 eða netfang hildur@landslog.is og
Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu í síma 5101100
eða netfang thorunn@neytendastofa.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Lind
Einarsdóttir hjá FAST Ráðningum
í síma 552-1606 eða í tölvupósti á
netfangið, lind@fastradningar.is.
Umsóknarfrestur
er til og með
6. desember nk.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði fjármála, viðskipta eða
reksturs. Framhaldsmenntun æskileg
• Reynsla af reikningshaldi, áætlanagerð og
fjármálastjórnun
• Stjórnunarreynsla og þekking á opinberri
stjórnsýslu æskileg
• Afar góð greiningarhæfni og færni í notkun
upplýsingatækni
• Reynsla af samningagerð kostur
• Góð leiðtoga-, samskipta- og stjórnunarhæfni
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná
árangri í starfi
• Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum
á íslensku og ensku
• Þekking á jafnlaunavottun er kostur
Starfssvið:
• Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn
sveitarfélagsins
• Undirbúningur, gerð og eftirfylgni
fjárhagsáætlana
• Yfirumsjón með fjárreiðum, innkaupum og
reikningshaldi
• Yfirumsjón með framlagningu árshluta
reikninga og ársreikninga
• Greiningarvinna og miðlun upplýsinga til
kjörinna fulltrúa og stjórnenda
• Samningagerð
• Samskipti við aðila innan og utan
sveitarfélagsins
• Ýmis umbótaverkefni sem snúa m.a. að
innleiðingu nýrra kerfa og gerð verkferla
• Ábyrgð á launavinnslu, umsjón og eftirlit
með kjarasamningum og jafnlaunavottun
• Önnur tilfallandi verkefni
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka þátt í spennandi og krefjandi
verkefnum hjá sveitarfélaginu. Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með áætlanagerð og
uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála. Næsti yfirmaður
er sveitarstjóri og er fjármálastjóri staðgengill hans.
Sveitarfélagið Norðurþing varð til árið 2006
við sameiningu fjögurra sveitarfélaga. Þétt-
býliskjarnarnir í sveitarfélaginu eru Húsavík,
Kópasker og Raufarhöfn. Íbúar í Norður þingi
voru 3.030 þann 1. janúar 2021. Gert er ráð
fyrir að fjármálastjóri hafi aðal starfsstöð sína
á Húsavík.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á
vefsíðu nni www.fastradningar.is. Umsókninni skal
fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar
sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjara samningum Sambands
íslenskra sveitarfélaga við við komandi stéttarfélag.
NORÐURÞING ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA
ÖFLUGAN FJÁRMÁLASTJÓRA
Við finnum rétta starfsmanninn fyrir þig
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
6 ATVINNUBLAÐIÐ 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR