Fréttablaðið - 20.11.2021, Síða 88

Fréttablaðið - 20.11.2021, Síða 88
Félagar í U3A kortlögðu fimm gönguleiðir í Reykjavík um daginn sem hluta af evrópsku samstarfs- verkefni. arnartomas@frettabladid.is Nokkrir félagar í samtökunum U3A Reykjavík á aldrinum 65 til 85 ára tóku sig saman á dögunum og kortlögðu fimm gönguleiðir að menningararfi í Reykja- vík. Kortlagningin var hluti af evrópska samstarfsverkefninu HeiM (Heritage in Motion) þar sem teymi eldra fólks í hverju samstarfslandi hannaði göngu- leiðir á heimasvæði sínu. „Háskólinn í Alicante bað okkur Hans Kristján Guðmundsson að vera með í verkefninu en við höfum áður unnið saman í Erasmus+ verkefni,“ segir Ingi- björg Rannveig Guðlaugsdóttir hjá U3A Reykjavík. „Þeim leist vel á okkur og við slógum til.“ Líkt og jafnaldrar þeirra í öðrum löndum verkefnisins kortlagði íslenski hópurinn fimm áningarstaði með hjálp snjallforritsins Wikiloc. Gengið var um menningarlegan og listrænan arf í Hóla- vallagarði, miðborg Reykjavíkur þar sem styttur voru skoðaðar, Laugarnes, Kirkju- sand og farið í Sólstöðugöngu í Viðey. „Hluti af verkefninu var að sýna fram á að eldra fólk getur líka gert hluti,“ segir Ingibjörg og hlær. „Við ákváðum sjálf hvaða svæði við vildum taka fyrir svo þetta var allt gert á okkar forsendum. Það var enginn sem sagði okkur hvaða leið við ættum að fara.“ Öflugur hópur U3A – University of the Third Age (Háskóli þriðja æviskeiðsins) er ekki háskóli í eigin- legum skilningi, heldur alþjóðleg samtök sem leggja áherslu á virkni fólks á þriðja æviskeiðinu. Í samtökunum eru nú hundruð þúsunda meðlima um allan heim og milljónir ef Kína er talið með, en U3A Reykjavík var sett á laggirnar árið 2012. Stofnmeðlimir á fyrsta fundi samtakanna hér heima voru 18 talsins en félagið hefur vaxið og dafnað síðan þá og eru meðlimir nú um 900. „Þetta vannst inn á orðsporinu,“ segir Ingibjörg. „U3A stendur fyrir alls konar viðburðum, heimsóknum og fyrirlestr- um og við tökum þátt í alþjóðlegum verk- efnum. Aðalmarkmiðið er að viðhalda andlegri virkni á efri árum.“ Ingibjörg var sjálf frumkvöðull að stofnun félagsins hér á landi. „Ég var að velta fyrir mér hvað fólk gerði eiginlega þegar það hættir að vinna og rakst á þetta á netinu,“ segir hún. „Ég fór fór svo á heimsráðstefnu hjá þeim á Indlandi þar sem ég kynntist góðu fólki sem varð eins konar guðforeldrar félags- ins hér á landi. Það má eiginlega segja að þetta hafi verið gert via Indland!“ n Kortlagning á efri árum Teymið ákvað sjálft hvaða gönguleiðir yrðu fyrir valinu. Mynd/ Aðsend Ástkær móðir okkar, amma og langamma, Björg Ragnheiður Árnadóttir lést fimmtudaginn 18. nóvember. Sverrir Gaukur Ármannsson Helga Ragna Ármannsdóttir Björg Ragnheiður Pálsdóttir Ármann Jakob Pálsson Áslaug Guðmundsdóttir Lúkas Páll og Elías Logi Jakob Dagur, Arney Helga og Rakel Birta Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, og amma, Kristín Haraldsdóttir Álftamýri 54, 108 Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans síðastliðinn sunnudag. Útförin fer fram fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 13.00 frá Langholtskirkju. Óskar Sigurðsson Einar Sigurðsson Stefanía Ösp Guðmundsdóttir Matthías Árni Einarsson Elísa Karen Einarsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ólöf Kristín Guðnadóttir (Óla Didda) Lækjarmel 4, Hvalfjarðarsveit, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi laugardaginn 13. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 26. nóvember kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Þorsteinn Ingason Rúna Hrönn Kristjánsdóttir Pálmi Hafþór Halldórsson Friðmey Þorsteinsdóttir Einar Már Ríkarðsson Arnór Þorsteinsson Karen Þorsteinsdóttir Þorgeir Stefán Jóhannsson og ömmubörnin. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birna Unnur Valdimarsdóttir Efri-Miðvík í Aðalvík, lést í faðmi ástvina sunnudaginn 14. nóvember á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 24. nóvember kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur og vinir vera viðstaddir athöfnina. Streymt verður frá athöfninni á YouTube-síðu Grafarvogskirkju. Guðmundur Rúnar Heiðarsson Birna Björk Sigurðard. Ingibjörg Guðrún Heiðarsdóttir Jón Guðbjartur Árnason Þórný María Heiðarsdóttir Halldór Þórólfsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Jóna Guðrún Kortsdóttir Fróðengi 7, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 11. nóvember. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju, fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 13.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á L5 á Landakoti. Vegna sóttvarnareglna er hraðprófs krafist. Útförinni verður streymt á https://youtu.be/WrSliO3QSXc Guðmundur A. Guðmundsson Ingibjörg H. Guðmundsdóttir Jón Ólafur Halldórsson Guðbjörg G. Guðmundsdóttir Sigurður Jónas Elísson Ágústa Katrín Guðmundsdóttir Lárus S. Guðmundsson Guðrún Guðmundsdóttir og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sólveig Hulda Zophoníasdóttir Brekkugötu 38, Akureyri, lést aðfaranótt 13. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líknarsjóð Oddfellow Rbst. nr. 2, Auðar, kt. 580189-1999/0302-13-302892. Í ljósi aðstæðna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt hraðpróf, ekki eldra en 48 klst. Sækja þarf tímanlega um hraðpróf á hradprof.is. Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Guðmundur Bjarnar Stefánsson og fjölskylda. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Sigurðar Ólafssonar frá Hábæ, Þykkvabæ, Skyggnisbraut 26-28, Reykjavík. Sérstakar þakkir til allra þeirra sem sinntu honum í gegnum veikindi hans. Útför hans hefur farið fram. Herdís Hallgrímsdóttir Hildur Sigurðardóttir Robert W. Black Ólafur Sigurðsson Sonja Schaffelhoferova Guðrún Ásta Sigurðardóttir Vilhjálmur Ómar Sverrisson Már Ásþórsson Sune Petersen Grímur Steinn, Anna Karen, Jakob Elías, Ásta og Veronika Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, Arndís Kristín Daðadóttir (Dísa frá Hamraendum, Snæfellsnesi) Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða laugardaginn 6. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 23. nóvember kl. 13. með nánustu fjölskyldu og vinum. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða, Akranesi. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is Sigrún Olgeirsdóttir Friðrik Bergsveinsson Daði Friðriksson Soffía Dögg Halldórsdóttir Margrét Friðriksdóttir Elvar Örn Reynisson Arndís Friðriksdóttir Sigfús Kristjánsson Olgeir Sveinn Friðriksson Guðlaug Rós Hólmsteinsdóttir Kristín Margrét Gísladóttir Júlíus Steinar Heiðarsson langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólafía Sigurðardóttir frá Þingeyri, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 10. nóvember. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 24. nóvember klukkan 13. Sigurður Geirsson Svana Pálsdóttir Stefán Rafn Geirsson Dóra Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elsku hjartans pabbi minn, tengdapabbi og afi, Kristinn Guðmundsson Látramaður, lést í bílslysi við Hvallátur 14. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 25. nóvember kl. 15.00. Streymt verður frá útförinni á www.mbl.is/andlat Kirkjugestir eru beðnir um að fara i Covid-hraðpróf fyrir komu. Jóna Vigdís Kristinsdóttir Stefán Þorvaldsson Emilía Alexandersdóttir Ásthildur Lilja Stefánsdóttir Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnþór Eiríksson Fífumóa 13, Reykjanesbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, sunnudaginn 14. nóvember. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 24. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni Njarðvíkurkirkjur - Útfarir. Guðbjörg Elísdóttir Eiríkur Valgeir Gunnþórsson Guðbjörg Ásta Stefánsd. Elís Jens Gunnþórsson Sigrún Svava Thoroddsen Inga Rós Gunnþórsdóttir Guðmundur F. Gunnarsson og barnabörn. 44 Tímamót 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.