Fréttablaðið - 20.11.2021, Page 100

Fréttablaðið - 20.11.2021, Page 100
Þannig að Systu megin er, að ég held, frekar furðuleg blanda af raunsæi og fantasíu og um leið bæði fyndin og átakanleg. Í nýjustu bók sinni, leiksög- unni Systu megin, segir Stein- unn Sigurðardóttir hetjusögu úr undirheimum Reykjavíkur sem kom til hennar fyrir rúmum tuttugu árum. Steinunn er landsmönnum löngu orðin kunn fyrir verk sín en hún hefur fengist jöfnum höndum við ljóð, skáldsögur og smásögur, allt frá því hún sendi frá sér sína fyrstu bók aðeins 19 ára gömul. Hún settist niður með blaða- manni á Mokka til að ræða nýjustu Hetjusaga úr undirheimum Reykjavíkur Ég vil að fólk lesi um Systu, segir Steinunn Sigurðardóttir. Fréttablaðið/Ernir Þorvaldur S. Helgason thorvaldur @frettabladid.is bók sína, leiksöguna Systu megin. Áður en viðtalið hófst hafði Stein- unn orð á því að hingað hefði hún oft komið með atómskáldinu Sig- fúsi Daðasyni þegar hún vann fyrir hann hjá Máli og menningu á árum áður. „Þetta er bók sem er aðgengileg en óvenjuleg í forminu og fjallar um manneskju sem hefði ekki getað sagt sögu sína sjálf,“ segir Steinunn, spurð hvernig hún myndi lýsa bókinni. „Systa er aðalpersónan og sú sem langmestu máli skiptir. Ég vildi búa til manneskju sem býr við ótrúlega kröpp kjör en heldur reisn sinni og er karakter til orðs og æðis.“ Systa mætir miklu mótlæti í líf- inu og býr við nöturlegar aðstæður í miðbæ Reykjavíkur. Þótt persónan sé vissulega skálduð þá á hún sér kveikju í raunveruleikanum. Stein- unn fékk hugmyndina að bókinni árið 2000 og sagðist ekki geta hugs- að sér að fara í gröfina án þess að draga Systu fram í dagsljósið. „Það er undantekningartilfelli hjá mér að ég get rakið það hvar á fátækt en það ættum við ekki að gera. Við ættum að dást að fólki sem dregur fram lífið við kröpp kjör og heldur sinni reisn,“ segir hún. Það kemur skýrt fram af spjall- inu við Steinunni hvað henni þykir vænt um Systu, sem hún segir sóma sér vel í persónugalleríinu við hlið- ina á persónum á borð við Öldu Ívarsen, söguhetju Tímaþjófsins, sem Steinunn segir að sé á vissan hátt andstæða Systu. „Ég fer náttúrlega ofan í það svo- lítið gróf lega hvernig hún fer að þessu, bara hvað hún borðar til dæmis. Þannig að Systu megin er, að ég held, frekar furðuleg blanda af raunsæi og fantasíu og um leið bæði fyndin og átakanleg,“ segir hún. Alltaf reynt að teygja út formið Bókin er titluð sem leiksaga og þú ert svolítið að dansa á mörkum bókmenntaforma, annars vegar er þetta leikrit og hins vegar er þetta skáldsaga. Hvaðan kom þessi bræð- ingur? „Þetta er bara mín uppfinning. Ég náttúrlega veit að það er ekkert nýtt undir sólinni og það getur vel verið að 130 höfundar úti um allan heim hafi gert eitthvað svipað, en ég hafði alls enga fyrirmynd. Eins og þú segir þá er þetta bræðingur úr stuttum prósatextum og svo leikriti sem er alls ekki leikrit,“ segir Steinunn og bætir við að í jafn tilraunakenndri bók þá hafi hún getað leyft sér ýmislegt sem höfundurinn hefði ekki getað gert í hefðbundnu leikriti eða hefð- bundinni skáldsögu. „Það hefur náttúrlega alltaf heillað mig að finna viðfangsefnum mínum nýtt form og teygja formin. Ég er búin að vera að þessu allan tímann. En það sem gleður mig svo innilega er að formið á Systu megin er að svínvirka fyrir lesandann. Nú er ég ekkert alltaf að reyna að vera aðgengileg, til dæmis myndi ég ekkert að segja að Tímaþjófurinn væri aðgengileg bók, en ég er búin að sannreyna á alls konar lesend- um að þessi bræðingur er aðgengi- legur, sem gleður mig því ég vil að fólk lesi um Systu. Mér hefði verið skítsama þó að Tímaþjófurinn hefði selst í fimm eintökum en mér var ekki sama um Systu.“ Heldurðu að Systa muni eignast framhaldslíf, til að mynda á leik- sviðinu? „Ég fékk skilaboð frá vinkonu um daginn sem sagði „Hún lendir á hvíta tjaldinu“. En ég vona að hún fái framhaldslíf, því ég held að Systa sé merkileg persóna sem við höfum gott af því að kynnast, þó ég segi sjálf frá. Og ég held það sé rétt sem bókmenntavinur benti á: Röddin er Systu, ekki Steinunnar.“ n bókin byrjar. Vinkona mín keypti hús í miðbænum og með því fylgdi leigjandi. Ég sá inn í íbúðina þar sem var svo lágt til lofts að maður sem er 180 sentimetrar hefði ekki getað staðið uppréttur og svo var kemískt klósett. Það er þetta tvennt sem þrúgar Systu mest, lofthæðin og kemíska klósettið. Ég hugsaði með mér, hvernig getur þetta verið, að venjuleg kona búi við þessar aðstæður í miðbæ Reykjavíkur? Þetta var óhuggulegt að því leyti að innilokunarkenndin var yfirþyrm- andi,“ segir Steinunn. Ættum ekki að líta niður á fátækt Aðspurð um hvort hún sé að reyna að varpa ljósi á fátækt og fólk sem stendur utangarðs í þjóðfélaginu, segir Steinunn það hiklaust hafa verið eitt markmiðið. „En líka að segja hetjusögu úr undirheimum Reykjavíkur. Um þá heima hef ég reynst leiðinlega sannspá, ekki síst hvað útlend- ingaþrælkun og mansal varðar. Ég held að við lítum mörg hver niður Ertu 8–15 ára? Bókmenntum Listum Vísindum? Umhverfismálum Ungir sýningarstjórar taka þátt í að þróa spennandi alþjóðlegt verkefni. Young curators. An exciting project for 8–15 year old students in Kópavogur. Młodzi kustosze. Ekscytujący projekt uczniów w wieku 8–15 lat w Kópavogur. Kópavogsbær leitar að ungum sýningarstjórum til að vinna með bænum að skemmtilegum verkefnum og viðburðum á næsta ári í kringum Vatnsdropann, alþjóðlegt samstarfsverkefni sem tengir saman sígildar barnabókmenntir við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Árið 2022 verður áhersla lögð á 15. markmiðið Líf á landi. Við hvetjum alla krakka á aldrinum 8–15 ára að sækja um og biðjum ykkur um að svara einni spurningu í umsókninni: Umsóknarfrestur 30. nóvember 2021 og umsækjendur mega skila inn umsókn á hvaða formati sem þeir kjósa á netfangið: vatnsdropinn@kopavogur.is Þekkir þú Múmínálfana, Línu Langsokk og Litlu hafmeyjuna – eða langar þig kannski að kynnast þeim á nýjan og spennandi máta? Hvernig mundir þú bjarga heiminum ef þú fengir að ráða í einn dag? Hefur þú áhuga á: UNGIR SÝNINGAR STJÓRAR Ertu 8-15 ára og býrð í Kópavogi? Bókmenntum Vísindum Listum Hefur þú áhuga á: Umhverfismálum Kópavogsbær leitar að ungum sýningarstjórum til að vinna með bænum að skemmtilegum verkefnum og viðburðum á næsta ári í kringum Vatnsdropann, alþjóðlegu samstarfsverkefni sem tengir saman sígildar norrænar barnabókmenntir við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.Árið 2022 verður áhersla lögð á 15. markmiðið, Líf á landi. Umsóknarfrestur 30. nóvember 2021. Umsækjendur mega skila inn umsókn með bréfi eða stuttu myndbandi á netfangið vatnsdropinn@kopavogur.is. Frekari upplýsingar er að finna á www.kopavogur.is. 56 Menning 20. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRéttablaðiðmenninG FRéttablaðið 20. nóvember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.