Strandapósturinn - 01.06.1969, Page 47
eyrarhöfn. Enginn hafnsögumaður var með skipinu, en maður
frá Búðum er hafði komið einu sinni til Hrútafjarðar, og þótti
það áræði mikið.
Þennan sama dag voru gefin saman þrenn hjón á Stað í
Hrútafirði. Var einn þeirra, er þá kvonguðust, Daníel danne-
brogsmaður á Þóroddstöðum Jónsson x) bróðir Þorsteins á
Broddanesi. Annar Bjöm Daníelsson frá Tannstaðabakka* 2) og
hinn þriðji Guðmundur Zakaríasson á Stað, síðar á Broddanesi.
Má eftir þessu finna hver dagur þetta var.
Þetta fyrsta Borðeyrarskip hét Ungi Svanurinn. Var það tví-
möstruð skonnorta 48 lesta, en skipstjórinn hét Sörensen, var
hann einn hinn bezti skipstjóri Clausens og hugaður vel. Sá
hét I. C. Brant, er rak verzlunina á skipinu, og var hann einn af
beztu mönnum Clausens. Þótti Clausen mjög vænt um hann og
lét hann sjá um reikninga sína í Höfn. Brandt þessi var mesti gæða-
maður. Þá var og með skipinu Árni Sandholt kaupmaður og
félagi Clausens. Hann var grænlenzkur í aðra ættina, en annars
frá Sandhaugum í Þingeyjarsýslu. Höfðu þeir Brant verkaskipti
þannig, að Brant var við bókina, en Árni var vigtarmaður uppi á
þilfari.
Það var uppi fótur og fit í nærsveitunum, er skipkoman
spurðist, og fóra menn þangað í hópum til kaupskapar og var
því sem næst öll varan keypt upp á einni viku.
Næstu tvö ár kom engin sigling til Borðeyrar, en síðar fóru
spekúlantar að koma og urðu allmargir sum vorin.
Árið 1850 kom þangað Hillebrant frá Hólanesi, sá er byggði
þar fyrstur verzlunarhús og með honum félagi hans Bergmann3).
Hét skip þeirra Fortúna en skipstjóri Tönnesen. Það ár kom og
Jacobsen kaupmaður frá Skagaströnd á skipi sínu Experment,
sem var stór skonnortukassi, og var skipstjórinn Riis faðir kaup-
mannsins, sem nú er á Borðeyri (þ.e. árið 1915.) Clausen sá
!) Var veizla mikil haldin á Þóroddsstöðum, matur og brennivín.
2) Drukknaði 1856.
3) Hann var kallaður Bergmann istrumagi. Er Bergmann dó tók
Hillebrant Bryde i félag með sér.
45