Strandapósturinn - 01.06.1969, Side 50
skip oftar. Þá kom og einu sinni Ásgeir Ásgeirsson frá ísafirði
síðar etazráð. Hét skip hans Lovísa. Þorlákur kaupmaður John-
son frá Reykjavík kom og eitt sumar á ensku skipi og ýmsir fleiri
komu, er ekki verða hér taldir.
Það var venja spekúlanta að taka sér einn hátíðisdag. Völdu
þeir til þess afmæli Clausens gamla í Stykkishólmi. Fóru þeir
þá út að Reykjalaug og voru þar sem hveralækurinn skiptist
og síðan er kallaður Kaupmannahóhni. Höfðu þeir með sér
klyfjahesta og á þeim svínsflesk, skonrok, öl, brennivín og romm.
Voru þangað allir velkomnir og hverjum veitt eftir vild. Notuðu
hé.raðsmenn vel boðið og var aðsókn sem á hvalfjöru. Enginn
kvenmaður sótti þá samkomu.
Annars var hver dagurinn öðrum líkur meðan spekúlantarnir
voru við Borðeyri. Klukkan að ganga sex á morgnana fór kokk-
urinn á fætur og ferjumaðurinn. Var þá oft komið margt fólk
á tangann. Gekk svo ferjan milli skips og lands allan daginn og
langt fram á nótt og oftast hlaðin af fólki og ull og annari vöru
Allir fengu frítt far.
Flestir spekúlantar létu hönd selja hendi, en Bjami Sandholt
og Bryde lánuðu nær eftir vild.
Um sama leyti og spekúlantamir fóra að koma á Borðeyri,
komu þeir einnig á Skeljavík við Steingrímsfjörð, en hún er
litlu innar1) en nú stendur Hólmavíkur-kaupstaður. Var útlend
vara afhent þar, en svo komu bændur aftur með sína vöra á
áttæringum til Borðeyrar.
Enginn kofi var á Borðeyri fyrstu árin, sem spekúlantar komu
þar, og ekki fyrr en Pétur Eggerz reisti þar hús árið 1860. Það
var 24 álna langt og 12 álna breitt og stendur þar enn. (1915).
Hann tók vömr þær af skipum Clausens, sem ekki gengu út
og verzlaði með þær. Síðan stofnaði hann verzlunarfélag ásamt
þeim Páli Vídalín í Tungu og Skaptasen lækni. Hét það Versl-
unarfélag Húnvetninga2) og var hlutafélag, en hluturinn var 25
dalir.
0 Skeljavlk er litlu utar en Hólmavík.
2) Hér talar Jónadab um Verzlunarfélag Húnvetninga, en það mun
48