Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1974, Side 63

Strandapósturinn - 01.06.1974, Side 63
vísu ekkert óvistlegt, eftir því sem um var að gera á þeim árum. Annars var Anna alltaf boðin og búin til þess að hjálpa okkur eftir því, sem hún hafði tíma og getu til og aldrei tók hún neitt fyrir þá hjálpsemi. Þorp var lítið myndað á Hólmavík á þessum árum þ.e. frá 1912-1920. Það var því sótt til okkar yngri manna í sveitinni næst kauptúninu um vinnu þegar með þurfti. Það var okkur llestum fundið fé, er við fengum fyrir þessa vinnu þó að lítið væri. Kaupi okkar réði verzlunarstjórinn og kaupfélagsstjór- inn, en það voru einu verslanirnar og vinnuveitendur þarna á þessum árum. Kaupið var hið sama, hvort unnið var á nóttu eða degi, og einnig sama hvort unnið var rúmhelgan dag eða helgan dag. Þannig var þetta þar til verkalýðsfélag var stofnað. Tímavinna var borguð í fram- og uppskipunarvinnu, en dagkaup í sláturvinnu og þá átti vinnutíminn að vera 12 tímar, en varð oft lengri. Ekki minnist ég þess að menn væru óánægðir með kaupið. Það var oft þröngt í skúrnum hjá Önnu, ekki síst í sláturtíðinni, og einnig þegar kola- og saltskip komu. Þá var oft margt af mönnum úr sveitinni í vinnu, eða stundum 20-30 manns. En það var sama hversu mikil þrengsli og troðningar voru, aldrei kvartaði Anna. Mér fannst hún jafnvel glöðust þegar mikið var um að vera og hún gat lagt mest af mörkum til fyrirgreiðslu, þó hún oftast yrði að fórna sínum eigin hvíldar- og matartíma. Seinna byggði Anna sér hús. Það væri ekki talið stórt né merkilegt í dag. Þetta var timburhús, bárujárnsklætt á veggjum og þaki. I því var eitt íbúðarher- bergi, eldhús, forstofa og geymsla. Víst voru það góðar framfarir frá þrengslunum í skúrnum og það fannst Önnu líka. Veitti hún aldraðri konu þar húsaskjól með sér, og þar fengu líka inni hjá henni ung hjón um tíma. Vissulega hefðu sumir haft meiri getu til að veita þessu fólki húsaskjól. En svona var Anna. Segja mátti að hús hennar stæði öllum opið, er leituðu þar athvarfs. Hún var minnug uppvaxtarára sinna, þegar margir áttu ekkert til næsta máls. Heimili foreldra hennar var þó með betri heimilum á þeim árum, enda fór það ekki framhjá barnsaugum hennar að allir fengu fyrirgreiðslu 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.