Morgunblaðið - 02.10.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 02.10.2021, Qupperneq 21
Saksóknaraembættið í París greindi frá því í gær að Francois Verove, fyrrverandi lögreglumaður, hefði fundist látinn í leiguíbúð í smábæ við Miðjarðarhafið í vikunni, en hann hafði verið boðaður til skýrslutöku vegna raðmorða sem náðu aftur til 9. áratugarins. Var morðinginn þekktur í Frakklandi sem „Le Grêlé“, eða „hinn bólugrafni“ eftir lýsingum sem vitni gáfu. Verove skildi eftir sig undirritaða játningu og DNA-próf staðfesti enn frekar að hann hefði verið sá bólu- grafni. Fórnarlömb Veroves voru ungar stúlkur og konur, sem hann nauðgaði og myrti svo, en lögregl- unni tókst aldrei að hafa hendur í hári hans. Rannsakendur grunaði lengi að um sérsveitarmann, eða gendarme á frönsku, hefði verið að ræða og ákvað rannsóknardómari málsins í haust að boða um 750 fyrrverandi sérsveitarmenn til skýrslutöku. Þeirra á meðal var Verove, sem brást við beiðninni með því að láta sig hverfa og svipta sig svo lífi. FRAKKLAND Raðmorðinginn fannst látinn Morðingi Lögregluskissa sem gerð var á sínum tíma af hinum „bólugrafna“. FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR Bandaríska lyfjafyrirtækið Merck tilkynnti í gær að það hygðist sækja um neyðarleyfi til bandarísku mat- væla- og lyfjastofnunarinnar FDA fyrir framleiðslu og dreifingu veiru- lyfsins molnupiravir, en fyrirtækið segir prófanir með lyfinu hafa dreg- ið verulega úr líkum á því að sjúk- lingar með Covid-19 þurfi að leita á sjúkrahús. Þá muni fyrirtækið senda hliðstæðar umsóknir til lyfjaeftirlita annars staðar í heiminum. Lyfið er í pilluformi, en leitað hef- ur verið að slíku lyfi til þess að með- höndla sjúkdóminn frá því að farald- urinn hófst. Sagði Robert Davis, framkvæmdastjóri Merck, að hann væri bjartsýnn á að lyfið myndi verða mikilvægur þáttur í barátt- unni við faraldurinn. Dr. Anthony Fauci, helsti ráðgjafi Hvíta hússins í faraldrinum, sagði við blaðamenn í gær að niðurstöður prófana lyfsins væru merkilegar, en þær gefa til kynna að um 50% minni líkur séu á að sjúklingar með væg einkenni Covid-19 eða einkenni í meðallagi, sem fái lyfið við upphaf smits, þurfi að leita á sjúkrahús. Þá nefndi Fauci að enginn af þeim sem fengu lyfið hefði látist, á meðan átta sjúklingar sem fengu lyfleysu dóu. Bandaríkjastjórn hefur þegar tryggt sér um 1,7 milljónir meðferð- arskammta af molnupiravir fái lyfið samþykki, sem og rétt til að kaupa meira af því. Kemur ekki í stað bóluefna Natalie Dean, líftölfræðingur við Emory-háskólann, sagði við AFP- fréttastofuna að lyfið veitti frekari möguleika í baráttunni gegn kór- ónuveirunni, en gefa þarf flest þau lyf sem nýtt hafa verið til þessa í gegnum æð. „Þú getur fengið eitt- hvað með svipaða virkni, en ef það er mun auðveldara í notkun mun það hafa áhrif á stærri hluta þýðisins,“ sagði Dean. Þá lögðu þeir sérfræðingar sem AFP ræddi við sérstaka áherslu á að molnupiravir gæti ekki komið í stað bólusetningar, heldur yrði lyfið best nýtt til þess að styðja við áhrif henn- ar gegn veirunni. Þá væri einnig ljóst af þeim gögn- um sem fyrir lægju að brýnt væri að gefa lyfið sem fyrst til að tryggja virkni þess, þar sem það liggi ekki alltaf í augum uppi hverjir geti feng- ið alvarlegan sjúkdóm af völdum kórónuveirunnar og hverjir muni sleppa með tiltölulega væg einkenni. Prófanirnar stöðvaðar snemma Lyfjafyrirtækin Merck og Ridge- back Therapeutics vinna saman að þróun lyfsins, og skoðuðu þau á síð- asta stigi prófana gögn frá um 770 einstaklingum sem sýkst höfðu af kórónuveirunni og sýndu einkenni. Þeim hópi var skipt í tvo svipað stóra hópa, þar sem annar hópurinn fékk fimm daga skammt af lyfinu, en hinn fékk lyfleysu. Þurftu um 7,3% þeirra sem fengu lyfið að leita á sjúkrahús, en 14,1% þeirra sem fengu lyfleysuna. Reynd- ist lyfið virka vel gegn helstu af- brigðum, þar á meðal Delta- afbrigðinu, og voru fáar aukaverk- anir tilkynntar. Voru niðurstöðurnar nægilega traustar til þess að óháður eftirlits- aðili ákvað að stöðva prófanirnar snemma, þar sem ekki þótti rétt að halda áfram að gefa fólki lyfleysu. Molnupiravir tilheyrir hópi veiru- lyfja sem kalla má fjölliðunarhemla, en þeir ráðast að ensímum sem veirur nota til þess að endurrita erfðaefni sitt, og stökkbreyta þannig að þær geti ekki fjölgað sér lengur. Sögðu sérfræðingar við AFP- fréttastofuna að slík lyf væru lík- legri til þess að halda virkni sinni þrátt fyrir að ný afbrigði veirunnar kæmu fram. Standa vonir til að einn- ig verði hægt að nota lyfið til þess að vinna á öðrum veirusjúkdómum sem leggist á öndunarveg. AFP Veirulyfið Lyfjarisinn Merck hyggst sækja um leyfi fyrir molnupiravir- lyfinu, en það hefur þótt lofa góðu í lyfjaprófunum gegn kórónuveirunni. Sækja um neyðarleyfi fyrir lyfi gegn veirunni - Lyfið sagt draga úr líkum á sjúkrahúsvist um helming Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í gær um eldflaugatilraunir Norður-Kóreumanna, en náði ekki samkomulagi um ályktun gegn þeim. Bandaríkin, Bretar og Frakkar köll- uðu eftir fundinum, sem haldinn var á bak við luktar dyr, og stóð hann yfir í um klukkustund. Fyrr um morguninn tilkynntu rík- isfjölmiðlar Norður-Kóreu að nýrri loftvarnaflaug hefði verið skotið á loft, en samkvæmt núgildandi álykt- unum öryggisráðsins er landinu óheimilt að stunda nokkurs konar til- raunir eða prófanir á eldflaugum. Samkvæmt heimildarmönnum AFP-fréttastofunnar innan öryggis- ráðsins þrýstu Frakkar á að ráðið næði saman um ályktun gegn til- raununum, en Rússar og Kínverjar sögðu slíka yfirlýsingu vera ótíma- bæra, og að meiri tíma þyrfti til þess að skoða stöðuna. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að öryggisráðið myndi funda á fimmtudaginn, en þá höfðu Rússar og Kínverjar beðið um meiri frest til að kynna sér málin, og endurtóku þá afstöðu á fundi ráðsins. Kínverjar eru helstu bandamenn Norður-Kóreumanna og þeirra helsta viðskiptaþjóð. Tóku þeir þó þátt á sínum tíma í að samþykkja al- þjóðlegar refsiaðgerðir á hendur Norður-Kóreu vegna tilrauna þeirra með kjarnorkuvopn, en Rússar og Kínverjar hafa kallað eftir því und- anfarin misseri að létt verði á þeim aðgerðum. Aukin spenna á Kóreuskaga Eldflaugatilraun Norður-Kóreu- manna í gærmorgun fylgir fast á hæla tilraunaskots á þriðjudaginn, þar sem stjórnvöld í Pyongyang lýstu því yfir að þau hefðu þróað „ofurhljóðfráa“ eldflaug, það er eld- flaug sem ferðast á minnst fimmföld- um hljóðhraða, og gáfu til kynna að sú gæti borið kjarnaodda. Höfðu Norður-Kóreumenn áður prófað nýja langdræga stýriflaug, og hafa hin tíðu tilraunaskot að undan- förnu aukið mjög á spennuna á Kór- euskaganum. Fordæmdi Kim Jong- un, einræðisherra Norður-Kóreu, í fyrradag boð Bandaríkjastjórnar um að hefja viðræður án skilyrða sem „auma brellu“, og sakaði Kim ríkis- stjórn Joes Bidens um að viðhalda sömu „fjandsamlegu stefnu“ sem fyrirrennarar hans í embætti hefðu viðhaft. Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, kallaði á dögunum eftir því að Kór- euríkin tvö héldu leiðtogafund og lýstu því formlega yfir að Kóreu- stríðinu væri lokið, en vopnahlé hef- ur verið í gildi frá árinu 1953. Gaf Kim Yo-jong, systir Kims Jong-uns, þeim tilraunum undir fót- inn í síðustu viku, en þá sagði hún að hugmyndir Moons væru áhugaverð- ar. Hins vegar þyrftu Suður-Kóreu- menn að láta af „fjandsamlegum að- gerðum“ sínum, áður en hægt væri að boða til leiðtogafundar, og er talið að Kim hafi þar vísað til sameigin- legra heræfinga Suður-Kóreu og Bandaríkjahers. Segja sérfræðingar í málefnum Norður-Kóreu að stjórnvöld þar séu líklega að nota tilraunirnar til þess að þrýsta á Suður-Kóreu og um- heiminn og reyna að fá hverjar þær ívilnanir sem í boði séu, sér í lagi þar sem Moon eigi skammt eftir af for- setatíð sinni, og sé farinn að huga að arfleifð sinni í embætti. Engin ályktun gegn N-Kóreu - Öryggisráðið kallað saman vegna eldflaugatilrauna Norður-Kóreumanna - Nýrri loftvarnaflaug skotið á loft - Reyna að beita Suður-Kóreu þrýstingi AFP Norður-Kórea Loftvarnaeldflaugin nýja hefur sig hér til lofts í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.