Saga - 2016, Qupperneq 129
holur kassi og grófur strengur 127
Á hljóðfæri kann hér enginn so ég viti, því þótt einhvörjir beri við að
urra eitthvað á langspil er það kunnáttulaust …86
Fleiri dæmi um svipuð viðhorf mætti nefna og má af þeim ráða að
þó að langspil og fiðla séu nefnd teljist þau varla til hljóðfæra.87
Sóknalýsingarnar hafa jafnan verið taldar merkilegar heimildir um
sögu, mannlíf, örnefni, náttúru og fleira. Þegar kemur að heimildum
um hljóðfæraeign og -notkun Íslendinga virðast þær þó gefa meiri
vitneskju um viðhorf prestanna sem skrifa þær en raunverulega
iðkun. Þetta staðfestist enn frekar þegar litið er til annarra heimilda
frá sama tíma.
Í ævisögu sinni segir Benedikt Gröndal (1826–1907) frá langspils-
leik móður sinnar og nefnir að langspil hafi verið „alltíð hér á landi“
skömmu fyrir miðja 19. öld.88 Þá nefnir hann að faðir hans hafi
leikið á flautu.89 Benedikt segir einnig frá Páli Bjarnasyni, bónda í
Haukshúsum, sem spilaði á fíólín og nafna hans, Páli Árnasyni, sem
spilaði á klarínett og kom stundum með það á bernskuheimili
Benedikts og spilaði sálmalög.90 Samkvæmt manntölum eiga þeir
báðir heima í Garðasókn árið 1840 og ef til vill á séra Árni Helgason
(1777–1869) í Görðum við þá nafna þegar hann segir í sóknarlýsingu
sinni árið 1842: „einn bóndi kann hér lítið eitt á fíólín, annar á fiðlu,
nokkrir á langspil.“ Vitað er að Páll Árnason átti fiðlu og verður
fjallað nánar um það hér á eftir.
86 Hólmasókn 1843 (S-Múl.).
87 Svör þar sem jákvætt eða hlutlaust viðhorf kemur fram eru áberandi færri.
Greinarhöfundi hefur dottið í hug að þeir sem svöruðu hafi e.t.v. talið að verið
væri að spyrja hvort hljóðfæri (pípu- eða stofuorgel) væri í kirkjunum, en hvort
heldur er vekja svör af þessu tagi hugrenningar um hvernig hafi verið ástatt
um hljóðfæraeign í þeim sóknum þar sem svarið er einfaldlega nei.
88 Benedikt Gröndal, Dægradvöl, bls. 58.
89 Sama rit, bls. 77; sjá einnig Jón Árnason, „Ævisaga Sveinbjarnar egilssonar“,
Ljóðmæli Sveinbjarnar Egilssonar, 2. útg. Snorri Hjartarson gaf út (Reykjavík: Mál
og menning 1952), bls. 1–46, hér bls. 41.
90 Benedikt Gröndal, Dægradvöl, bls. 78. Benedikt hefur klarínett innan gæsa lappa
og hefur það orðið til þess að sumir telja að hann hafi meint eitthvað annað en
alvöru klarínett. Hafa verður í huga að þegar Benedikt skrifaði endur minn -
ingar sínar hafði hann dvalið langdvölum erlendis og án efa vitað hvernig
klarínett leit út og líklega gert frekari grein fyrir hljóðfærinu hefði það verið
eitthvað annað. Í skrifum Benedikts kemur fram að Páll Árnason hafi verið
dverghagur og hann lýsir ýmsum flóknum smíðisgriðum Páls. Fleiri heimildir
styðja þetta (t.d. er hann kallaður „þjóðhagasmiður“ í Íslendinga bók) þannig
að ekki er útilokað að hann hafi tekið sér fyrir hendur að smíða klarínett.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 127