Saga - 2016, Side 163
ina“ (bls. 113), „að hún hún hafði“ (bls. 135) og „þann harm í brjóti
að bera“ (bls. 140). Aðra gæsalöppina vantar víða (bls. 22, 29, 55, 80,
94, 99, 104, 107, 109, 134, 140–143, 164, 166, 169, 183 og 184) eða er
ofaukið (47, 49, 74, 83, 92, 103, 164). Þetta er þó hátíð miðað við fyrri
útgáfuna. Við yfirferð hafði líka mannsnafnið „Sigurður“ verið
leiðrétt í „Jón“ (bls. 137 / 152) og „ormur“ settur í staðinn fyrir
„Indriða“ (bls. 141 / 157), hvort tveggja til bóta, en varla var það
öðrum en setjaranum að kenna að „Sigríður“ var nú í tvígang rang-
lega sett fyrir „Sigurð“ (bls. 103 og 104). Hefur Sveinn ekki áttað sig
á þessu, sem þó kannski lagaði hin nöfnin. ekki tók hann heldur
eftir því að setjari hafði á einum stað hvarflað auga frá „hjerna“ yfir
á „hvurnin“ beint fyrir neðan í næstu línu og fyrir vikið misst úr
setningu í málflutningi Møllers kaupmanns við Sigríði, sem hér er
skáletruð: „og læt svo gjöra eldhús þar sem skrifstofan nú er, enn
hjerna, sem svefnherbergið mitt er, verður að vera búrið yðar; hvurnin líst
yður á þessa ráðagjörð“ (bls. 134 / 148).
Samkvæmt reikningi einars Þórðarsonar 3. júlí 1867 lauk prentun
á Pilti og stúlku 12. júní. Bókin varð átta arkir í stóru tólf blaða broti,
eða 190 blaðsíður, með notalegum eftirmála Jóns sem líkti bókinni
við fugl og bað „yður piltar og stúlkur að taka eins og fyrr vel við
fuglinum, sem nú aptur flýgur til yðar með nokkrum fjaðraskipt-
um.“61 Upplagið var 1212 eintök. kostnaður var 12 rd. fyrir arkið og
kostaði prentunin þá 96 rd., en fyrir pappírinn rukkaði einar 77 rd.
55 sk. Pappír í prófarkir kostaði 28 sk. kápur voru pantaðar 20. júní,
624 talsins, með ramma; prentun kostaði 3 rd. 32 sk. og pappír 2 rd.
42 sk. Samanlagður prentkostnaður nam því 179 rd. 61 sk. Jón
Árnason skrifar á reikninginn að fjórðung skuli greiða 12. júlí, eða
44 rd. 87¼ sk.62 Til samanburðar um kostnaðinn má nefna að
Þorvaldur sonur Jóns, þá 11 ára, var sjö mánuði hjá móðursystur
sinni, katrínu, og Jóni Árnasyni veturinn 1866–1867. Þau fengu 13
rd. 32 sk. með honum á mánuði og hefði árið kostað 160 rd., litlu
minna en bókin. Fjórar veturgamlar kindur, sem Jón Thor oddsen
sendi þeim hjónum, voru metnar á 18 rd. og hefði samkvæmt því
þurft 40 slíkar til að greiða fyrir prentun bókarinnar.63 Til saman-
skáldsagan pil tur og stúlka 161
61 Jón Thoroddsen, Piltur og stúlka (1867), bls. 190.
62 SÁM (Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík). NkS 3010 4to. Bréfasafn Jóns
Árnasonar, askja 39 (stort format): Jón Thoroddsen, bls. 32.
63 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Borg.Mýr. eD2/8. Dánarbú Borgarfjarðarsýslu 1868, örk 1,
bl. 226.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 161