Saga - 2016, Page 187
þannig er verk hans öllu gæfuríkara en hið upphaflega þrjátíu ára
stríð sem hann líkti verkinu við í gamansömum tón.
Menningarsjóður var upphaflegur útgefandi verksins en hann
var stofnaður 1928, að frumkvæði Jónasar Jónssonar frá Hriflu,
dóms- og kirkjumálaráðherra (lög nr. 14/1928). eitt helsta verkefni
sjóðsins var útgáfa fræðirita og þýðinga á vegum hins opinbera en
hann var lagður niður árið 1992. Árið 1965 kom upp sú hugmynd að
gefa út íslenska alfræðibók á vegum sjóðsins. Ritun alfræðibóka, sem
allar sækja hugmyndafræðilega forsendu sína að einhverju leyti til
frönsku alfræðibókarinnar á 18. öld, stóð með miklum blóma á fyrri
hluta 20. aldar. Íslendingar keyptu mikið af innfluttum alfræði ritum,
einkum á dönsku og ensku, og virtist gerð íslenskrar útgáfu því nær-
tækt og metnaðarfullt verkefni fyrir Menningarsjóð. Fengnir voru
sérfræðingar til að semja færslur um einstaka efnisflokka og bendir
höfundalistinn til þess að markmið útgáfunnar hafi verið metnaðar-
fullt. Að jafnaði var leitað til virtra og hámenntaðra fræðimanna.
Í útgefnu ritröðinni, sem síðar spratt upp úr þessu verki, ritaði t.d.
Ólafur Björnsson um hagfræði, Hallgrímur Helgason um tónmenntir,
Ingimar Jónsson um íþróttir, Þorsteinn Sæmundsson um stjörnu -
fræði, Guðsteinn Þengilsson um læknisfræði, Vilhjálmur G. Skúlason
um lyfjafræði og Hannes Pétursson um bókmenntir auk þess að
semja skáldatal. Björn Þorsteinsson og einar Laxness voru fengnir til
að rita um Íslandssögu og var það upphaf þrjátíu ára stríðs einars.
Af útgáfu stóru íslensku alfræðibókarinnar varð þó ekki; það
reyndist útgefanda ofviða að ljúka þessu stórvirki og er sannarlega
ekki eina dæmið um metnarðarfull verk sem dóu á teikniborðinu.
Þar með voru þó ekki lagðar árar í bát. einstök efnisatriði úr alfræði -
bókinni voru gefin út í nokkrum smærri ritum sem nefndust Al -
fræði menningarsjóðs og komu út á árunum 1972−1983 en slíkar
alfræðiritraðir voru einnig vinsælar á þeim árum. Var Hannes
Pétursson ritstjóri þeirrar útgáfu. Með því að einblína á sérstaka efn-
isflokka gekk höfundum mun betur að vinna verkið.
Vandamál Íslandssögunnar
Íslandssagan var einn þeirra efnisflokka sem tókst að koma út í sér-
stöku riti. Fékk Hannes einar Laxness til að semja sérstaka alfræði -
bók um Íslandssögu sem kom út í tveimur bindum. Í eftirmála
þeirrar útgáfu fjallar höfundur um vandamál tengd vinnu slíkrar
bókar:
þrjátíu ára stríðið sem vannst 185
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 185