Saga - 2016, Qupperneq 203
Páll Baldvin Baldvinsson, STRÍðSÁRIN 1938–1945. 1080 bls. JPV. Reykja -
vík 2015. Myndaskrá, nafnaskrá.
„Bók sem þessari er beint gegn gleymskunni. Henni er ætlað að brýna fyrir
okkar tímum að sagan skiptir máli. Sú aðferð að draga saman í margradda
verk ótal smábrot og raða þeim í stóran myndvef er til þess hugsuð að sýna
fram á margbreytileika lífs þjóðarinnar á þessu miskunnarlausa skeiði“ (bls.
1033). Með þessum orðum lýsir höfundur bókarinnar, Páll Baldvin Bald -
vinsson, helsta markmiði hennar í knöppum eftirmála. Hér er lögð á borð
fjölbreytt og margþráða saga samfélags á umbrotatímum, saga stríðs sem
„hratt íslensku samfélagi inn í nýjan tíma og gerbreytti því“ (bls. 1033).
Samfélagsbreytingarnar voru vissulega hraðar á þessum árum þannig að
jafnvel eru þeir fræðimenn til sem halda því fram að ef nefna ætti eitt ártal
til að marka innreið nútímans á Íslandi hlyti sjálft hernámsárið, 1940, að
verða fyrir valinu (sbr. Helgi Skúli kjartansson, Ísland á 20. öld (2002), bls.
220). kannski er það þess vegna sem stríðsárin halda áfram að heilla fólk,
eða það sýna a.m.k. þær góðu viðtökur sem bækur um stríðsárin hafa fengið
hér á landi. Baráttan við „gleymskuna“ er stöðugt í gangi en í samanburði
við önnur tímabil Íslandssögunnar virðist hún ekki hafa náð jafn miklum
tökum á þessu tímabili og öðrum.
Til að ná markmiði sínu birtir höfundur gríðarlegt magn af efni. Bókin
er því mikill doðrantur, hátt í ellefu hundruð síður að lengd og auk þess í
stóru broti; hún er magn-þrungin í gegnsærri merkingu þess orðs. Í stuttu
máli sagt snýst verkið um Ísland í síðari heimsstyrjöld og áhrif stríðsins á
landsmenn og lífshætti þeirra, bæði þá Íslendinga sem bjuggu hérlendis og
hina sem eyddu stríðsárunum að hluta eða öllu leyti í stríðshrjáðum lönd -
um. Ýmislegt er kunnuglegt í því, bæði textar og myndmál, en annað nýtt,
þ.e. í þeirri merkingu að það hafi ekki áður ratað á prent. Hvað upp bygg -
ingu þessarar bókar varðar þá ber hún viss sam kenni með þeim ófáu ritum
sem gefin hafa verið út um styrjöldina eða fyrri hluta 20. aldar hér á landi.
Það má t.d. nefna að í þessu verki endurómar eðlilega ýmislegt úr tveimur
þekktum yfirlitsritum, Ísland í hers höndum frá 2002 (höf. Þór Whitehead) og
Heimsstyrjaldarárin á Íslandi 1939–1945 frá 1983/1984 (höf. Tómas Þór Tómas-
son). Að einu leyti minnir þessi nýja bók á Öldina okkar. Minnisverð tíðindi
1931–1950 frá 1951 (ritstj. Gils Guðmundsson) og Ísland í aldanna rás, 1900–
1950 frá 2000 (aðalhöf. Illugi Jökulsson) vegna þess að atburðarásinni er hér
raðað upp í nokkuð stranga tímaröð.
Hið nýja verk er saumað saman úr úrklippum eða réttara sagt beinum
tilvitnunum úr helstu blöðum landsins. Innan um þetta efni eru innslög eftir
bókarhöfund, mislöng eins og gefur að skilja en sum spanna meira en heila
opnu. Í þessum innslögum tekur hann saman niðurstöður úr rannsóknum
og minningum annarra á þessu tímabili en óhætt er að fullyrða að þessir
ritdómar 201
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 201