Bændablaðið - 18.11.2021, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202112
Í byrjun árs var samstarfsverk efni
sett af stað sem hefur það megin-
markmið að þróa íslenskan áburð
með sjálfbærum framleiðsluaðferð-
um. Einn liðurinn í þeirri vegferð
er að kortleggja lífrænt hráefni
á Íslandi sem hentar til slíkrar
áburðarframleiðslu og samkvæmt
fyrstu niðurstöðum úr þeirri vinnu
er ljóst að heildarmagn af lífrænu
hráefni, samanlagt það sem er í dag
ónýtanlegt og það sem er nýtanlegt,
jafngildir því magni næringar-
efna sem er í innfluttum tilbúnum
áburði.
Að sögn Jónasar Baldurssonar verk
efnastjóra þá fólst kortlagningin í úttekt
á því magni lífræns hráefnis sem fellur
til á Íslandi, út frá magni, næringargildi
og hvort það sé nýtanlegt eða ónýtan
legt sem áburðarefni í landbúnaði og
landgræðslu. Í úttektinni hafi hráefnið
verið flokkað í nýtanlegt og ónýtanlegt
áburðarefni, þar sem það ónýtanlega
er skilgreint sem það hráefni sem ekki
er hægt að nýta í dag sökum skorts á
innviðum sem leyfa rétta meðhöndlun
á því eða af öðrum ástæðum.
Með aukinni fjárfestingu má
nýta áburðarefnin mun betur
Í úttektinni kemur fram að lífrænn
búfjáráburður er stærsta uppspretta
nýtanlegra áburðarefna í dag en mest
af ónýtanlegum áburðarefnum er að
finna í skólpvatni og matvælum sem
sé sóað. Með auknum fjárfestingum
væri hægt að nýta þessi efni mun
betur en gert er í dag, meðal annars
til notkunar í landbúnaði og land
græðslu.
Þá segir í úttektinni að stór hluti
næringarefna í lífrænum búfjáráburði
sé upprunninn frá tilbúnum áburði.
Því skuli varast að draga ályktanir á
þá leið að nóg sé til af næringarefnum
á Íslandi til að leysa innfluttan tilbú
inn áburð alfarið af hólmi í íslenskum
landbúnaði og landgræðslu, þó svo að
magn næringarefna í lífrænu hráefni
sé um það bil það sama og í tilbúna
áburðinum.
Auka þarf hlut lífræns áburðar
Jónas segir að það séu margar ástæður
fyrir því að huga eigi meira að því
að nýta lífrænt hráefni til þróunar á
sjálfbærri áburðarframleiðslu, í stað
tilbúins áburðar sem framleiddur er
í verksmiðjum. Næringarefnin N
(köfnunarefni), P (fosfór) og K (kal
íum) séu ekki búin til af manninum,
heldur tekin úr umhverfinu, ýmist
með námuvinnslu, úr andrúmsloft
inu eða öðrum iðnaðarferlum. Engin
nýmyndun eigi sér á þessum frum
efnum og því verði æ erfiðara að
nálgast þau. Tilhneigingin sé að þau
flytjist með einum eða öðrum hætti
út í hafið með skólpi.
Verksmiðjuframleiðsla á köfnunar
efni sé mengandi og ábyrg fyrir um
einu prósenti af losun á koltvísýringi í
heiminum. Námuvinnsla á fosfór hafi
skaðleg áhrif á allt lífríki í námunda
við vinnsluna; ofauðgun, mengun
grunnvatns og landeyðingu. Þá geti
notkun á tilbúnum áburði í landbún
aði verið mengandi, áburðarefni tap
ist út í andrúmsloftið, skolast burt úr
jarðvegi og út í grunnvatn. Víða sé
ofnotkun á tilbúnum áburði viðvar
andi vandamál, því auk þess að vera
mengandi sé um sóun á mikil vægum
auðlindum að ræða.
Í niðurstöðunum kemur fram að
búfjáráburður sé langstærsta upp
spretta nýtanlegra áburðarefna í dag.
Búfjáráburður er almennt nýttur,
með undantekningum. Önnur nýtan
leg áburðarefni sem í dag eru ýmist
urðuð, jarðgerð, unnin í kjötmjöl eru
ekki eins stór í heildar samhenginu og
óvissa ríkir um hversu stór hluti slátur
úrgangs og dýrahræja sé nýtanlegur
sökum heilbrigðissjónarmiða.
Mykju frá landeldistöðvum er í dag
að stórum hluta veitt í hafið en hún er
þó vel aðgengileg. Fast efni er sigtað
úr skólphreinsistöðvum en það inni
heldur lífræn efni auk aðskotahluta.
Mikið magn næringarefna
til spillis frá heimilum
Mikið magn af ónýttu lífrænu hrá
efni kemur frá heimilum, þar sem
skólp og matur sem er sóað vega
langmest. Í niðurstöðunum segir að
flokkun lífræns úrgangs frá heimilum
sé enn ekki orðin víðtæk og fari því
að mestu með almennu sorpi. Ekki
séu til innviðir til að vinna skólp og
einungis mjög lítill hluti skólpvatns
sé hreinsað í dag.
Þá fer mikið af næringarefnum til
spillis í fiskeldi á Íslandi þar sem það
fer að langstærstum hluta fram í sjó
kvíum og í dag ekki hægt að fanga
næringarefni þaðan.
Matís hefur stýrt verkefninu, sem
stutt var úr Markáætlun um samfélags
legar áskoranir um 150 milljónir
króna til tveggja ára. Samstarfsaðilar
eru Landbúnaðar háskóli Íslands,
Landgræðslan, Hafrannsóknastofnun,
Landsvirkjun og Atmonia. /smh
FRÉTTIR
Kortlagning á lífrænu hráefni til áburðarframleiðslu á Íslandi:
Sama magn næringarefna og
er í innfluttum tilbúnum áburði
– Huga þarf að fjárfestingum til nýtingar á næringarefnum sem sóað er í dag
Ónýtanleg áburðarefni (tonn NPK).
Innflutningur á tilbúnum áburði 2019 og notkun hans (Mast, 2020).
Áburðarefni (tonn NPK). Myndir / Matís
Óvenju slæmar heimtur
í rysjóttu tíðarfari
„Þetta hafa verið óvenju slæmar
heimtur í haust, en er smám
saman að koma. Það vantar
eina og eina tvílembu á bæ sem
ættu að vera einhvers staðar en
hafa ekki fundist enn,“ segir
Daði Lange, umhverfisfulltrúi
Skútustaðahrepps. Hann telur að
rysjótt tíðarfar nú á haustdögum
hafi sett strik í reikninginn.
Daði segir að þegar farið var í
fyrstu göngur hafi verið heitt og
mikill vargur sem gert hafi mönnum
erfitt fyrir. Umskipti hafi svo verið
í veðri í göngum númer tvö, þá var
snjór yfir öllu, þoka og súld. „Það
hefur verið mikil ótíð í haust og má
sennilega skrifa þessar frekar lélegu
heimtur á hana meðal annars, en
bændur eru búnir að leggja mikla
aukavinnu í smalamennskur þetta
haustið. Austurafréttur er mjög stór
afréttur og leitóttur sem gerir verkið
erfiðara en ekki ógerlegt,“ segir Daði.
Mývetningar hafa farið þónokkrar
ferðir í afrétt í leit að fé og segir Daði
að alltaf finnist eitthvað, þannig
náðust ellefu kindur nú í vikunni í
einni ferðinni. Segir Daði að bændur
víðar á svæðinu hafi lent í svipuðu,
m.a. þeir sem farið hafi um svæðið
við Þeistareyki. /MÞÞ
Leiðinda tíðarfar hefur tafið fyrir smalamennsku í Skútustaðahreppi og eru
heimtur óvenju lélegar. Nokkrar ferðir hafa verið farnar og alltaf finnst eitthvað
fé. Hér koma þeir Daði Lange og Birgir Valdimar Hauksson fjallskilastjóri
með fulla kerru af fé heim. Mynd / Skarphéðinn Reynir Jónsson
Mýs naga ljósleiðara
Hrunamanna
Íbúar í Hrunamannahreppi hafa
verið að lenda í vandræðum með
ljósleiðaratengingar sínar og þar
með tölvu- og símasamband því
músagangur hefur herjað á ljós-
leiðarakerfi í sveitarfélaginu.
Af þessum sökum hafa tvær bil
anir orðið vegna þess að músunum
finnst einangrunarteip gott á bragð
ið því væntanlega er næringargildið
lítið. Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
segir frá þessu í Pésanum, nýjasta
fréttabréfi Hrunamannahrepps, um
leið og hann biður notendur afsök
unar á þeim bilunum sem upp hafa
komið vegna músanna. /MHH Mynd / Critter Controle
á bbl.is og líka á Facebook