Bændablaðið - 18.11.2021, Síða 16

Bændablaðið - 18.11.2021, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202116 Nokkrum dögum fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 1958 varð uppi fótur og fit í bænum. Þá var fjöldi grindhvala rekinn inn í höfnina og voru yfir 200 hvalir drepnir og skornir á staðnum. Hafði slíkt ekki gerst í Eyjum fyrr í manna minnum. Grindhvaladrápið varð forsíðuefni helstu dagblaða landsins. Hvalreki þótti happafengur hér áður fyrr. Nú á tímum er hvalreki hins vegar til hinna mestu vandræða. Dauð dýr sem hafa strandað nálægt byggð eru dregin á haf út sé þess kostur svo lykt af rotnandi hræjum plagi ekki íbúa. Reki lifandi hval á land eru allar hendur á lofti til að bjarga honum úr prísundinni. Hér verður sjónum beint að einni hvalategund, grindhvalnum, sem á það til að hlaupa í vöðum á land. Ýmis dæmi eru um að honum hafi verið slátrað í fjörum hér við land eins og sjá má í meðfylgjandi rammagrein. Einu slíku tilviki, grindhvaladrápinu í Vestmannaeyjum, verður lýst hér nánar til að gefa hugmynd um hvernig hlutirnir gengu fyrir sig. Ekki eru nema rúm 50 ár síðan mörgum þótti sjálfsagt að skera hval í fjöru sér til matar. Eflaust myndi það vekja hörð viðbrögð í dag ef bjargarlausum grindhvölum yrði slátrað í flæðarmáli, hvað þá ef þeir væru reknir í land. Reksturinn tók margar klukkustundir Þriðjudaginn 5. ágúst 1958 var Sigfús Guðmundsson, skipstjóri á vélbátnum Sævari, staddur í Fjallasjó austur af Vestmannaeyjum. Hann tilkynnti í talstöðina um tvöleytið að hann hefði orðið var við grindhvalavöðu. Ákveðið var að freista þess að reka vöðuna til Eyja. Brugðust nokkrir bátar við kallinu og fóru til liðs við Sigfús. Urðu vélbátarnir 8 við reksturinn en síðan fóru allmargar trillur til móts við rekstrarbátana. Sögðu blöðin ýmist að bátarnir hefðu verið 20 eða 30 að tölu þegar yfir lauk. Reksturinn gekk heldur seint í fyrstu og stóð hann yfir í margar klukkustundir. Um klukkan níu um kvöldið kom grindhvalavaðan inn að Heimaey og gekk greiðlega að reka hana alveg inn í höfn. Hlupu margir hvalir á land í svonefndum Botni alveg inn við Friðarhöfn, sem reyndist ekki friðarhöfn fyrir hvalina. Vopnaðir beitusveðjum og lagvopnum Þegar hvalirnir komu að landi stóð þar margt manna í fjörunni. Voru sumir vopnaðir beitusveðjum og lagvopnum. Bæjarbúar höfðu líka þyrpst að og stóðu umhverfis og fylgdust með. Var óðara ráðist til atlögu. Áður en langt um leið voru menn orðnir votir og blóðugir og sjórinn litaðist blóði langt út á höfn, segir í litríkri frásögn dagblaðsins Tímans. Seint um kvöldið var búið að skera um 80 hvali að sögn fréttaritara. Fram kom að tveir eða þrír Færeyingar hefðu verið hjálplegir við hvalskurðinn. Vestmannaeyingar náðu sér í kjöt í soðið og þótti það bragðgott en strax voru uppi hugmyndir um að skera kjötið í ákveðnar pakkningar og frysta það til útflutnings. Var það gert. Hins vegar varð minna úr útflutningi en til stóð. Þjóðhátíð til bjargar Um nóttina gættu bátar hjarðarinnar svo hún slyppi ekki út úr höfninni. Á miðvikudaginn hélt atgangurinn áfram. Gengið var skipulega til verks og um kvöldið var búið að reka á land og skera um 170 hvali. Talið var að annað eins væri eftir í höfninni. Var þá hvalskurði hætt að sinni og rætt um að geyma hvalina í höfninni fram yfir þjóðhátíð og taka þá upp þráðinn á ný. Föstudaginn 8. ágúst sagði Tíminn frá því að hvalskurði hefði verið hætt á hádegi á fimmtudaginn. Um 210 hvalir alls hefðu þá verið skornir. Ekki hefði verið hægt að fá menn til að vinna lengur vegna þjóðhátíðarinnar sem fór í hönd næstu helgi. Hætt var við að geyma hvalina í höfninni og við tók erfitt verkefni, sem var að reka hvalina sem eftir voru út aftur. Má segja að þjóðhátíðin hafi bjargað lífi þeirra. Lenti í því að slátra þessum greyjum Grindhvaladrápið í Eyjum var rifjað upp í Fiskifréttum fyrir allmörgum árum. Fiskifréttir ræddu þá við tvo menn sem tekið höfðu þátt í grind- hvaladrápinu, þá Guðna Grímsson vélstjóra og Pál Helgason ferða- málafrömuð. Guðni var þá 24 ára en Páll 25 ára. Guðni var ekki á sjó þann dag sem hvalirnir komu en hann var í mót- tökuliðinu í landi. „Einhvern veginn æxlaðist það þannig að ég lenti inni í Botni og fékk það hlutverk að slátra þessum greyjum,“ sagði Guðni. Hvalirnir komu á flóði og var slátrað um kvöldið og fram á nótt. Síðan voru þeir dregnir út og hífð- ir upp á bryggju þar sem þeir voru skornir. Guðni sagði að menn hefðu farið í ákveðinn ham. Þarna hefði kviknað drápseðlið í þeim. Fræg ljósmynd birtist á forsíðu Tímans af Guðna að störfum í flæðarmálinu. Brá sér á bak á hvali Páll Helgason tók fram að hann væri eini Íslendingurinn sem hefði brugðið sér á bak hvals. Páll sagði að Vestmannaeyingar hefðu heyrt af rekstrinum á þriðjudaginn og biðu bara eftir kallinu. Hann hefði farið í bíó um kvöldið. Þegar myndin var rétt að hefjast birtist einhver og kallaði yfir salinn að grindhvalirnir væru komnir í höfn. Salurinn tæmdist á svipstundu. Páll sagðist hafa séð stóra vöðu út af bryggjunni í Friðarhöfn. Hann stökk í sjóinn og synti að hvölunum sem voru fáeina metra frá honum. Hann vippaði sér á bak einum þeirra. „Hann kafaði með mig og þegar hann kom upp var sagt að ég hefði blásið meira en hvalurinn,“ sagði Páll. Grindhvaladrápið í Vestmannaeyjum í ágúst 1958: „Var það mikill atgangur og eigi fagur“ NYTJAR HAFSINS Kjartan Stefánsson kjartanst@simnet.is 45 skráð dæmi um grindhvalarekstur Grindhvalur er allstór tannhvalur. Annað nafn hans er marsvín. Hann getur orðið 5 til 6 metrar á lengd. Grindhvalurinn er hópdýr. Í hverri hjörð geta verið allt frá nokkrum dýrum upp í mörg þúsund. Í Fær- eyjum er aldalöng hefð fyrir árleg- um grindhvalaveiðum sem kunnugt er. Hvalavaða er þá rekin á land og dýrunum slátrað í fjöruborðinu með tilheyrandi blóðbaði. Íslendingar hafa ekki farið að dæmi Færeyinga nema af og til hér áður fyrr. Ævar Petersen fuglafræðingur er áhugamaður um hvali. Hann hefur safnað heimildum um sögulega hvalreka, jafnt um grindhvali sem aðra hvali. „Grindhvalir hafa hlaupið eða verið reknir á land margoft í Íslandssögunni. Oft er getið um að grindhvalir hafi verið skornir en það hefur eflaust iðulega verið gert eins og með aðra hvali sem rak áður fyrr,“ segir Ævar í samtali við Bændablaðið. Ævar er með á skrá 166 tilvik um grindhvali, flesta rak á land, sumir voru reknir á land, sumir séðir lifandi og eitt dæmið að minnsta kost er um beinafund. Nefnir hann sem dæmi að vaða með 1.700 dýrum hafi komið á land í Helgafellssveit 1373. Í annað skiptið komu þar 1.500 dýr. Af þessum 166 tilvikum eru um 45 skipti þar sem grindhvalir hafa verið reknir á land eða reynt að reka þá. Stundum náðust öll dýrin í vöðunni en stundum aðeins hluti þeirra. Haustið 1819 voru á fjórða þúsund grindhvalir reknir á land í Ólafsvík. Er það mesti fjöldi sem vitað er um. Ævar benti á að vöður grindhvala hafi verið stærri fyrr á öldum en er nú til dags. Fyrsti rekstur grindhvala á land sem Ævari er kunnugt um var í maí 1611 við Bjarneyjar á Breiðafirði. Þá voru drepin 40 dýr. Síðasta þekkta tilvikið er þegar gerð var tilraun til að reka á annað hundrað grindhvali á land í Reykjavík 1966, en hún tókst ekki vel. Aðeins náðist í þrjú dýr. Annað dæmi frá Reykjavík er vert að nefna. Þá var vaða með 67 marsvínum rekin á land í Fossvogi í október 1934. Af þessum atburði er til einstakt myndskeið úr kvikmynd eftir Loft Guðmundsson. Þar sést hvar menn í árabátum króa hvalina af og dýrin síðan drepin með lagvopnum í fjöruborðinu. Áhugasamir geta séð þetta myndskeið á slóðinni: https:// filmcentralen.dk/museum/island- paa-film/klip/hvaladrap-i-fossvogi Dauðir grindhvalir í höfninni. Hvalirnir voru síðan dregnir út og hífðir upp á bryggju þar sem þeir voru skornir. Myndir / Sigurgeir Jónasson. Guðni Gímsson fékk það hlutverk að slátra hvölum sem reknir höfðu verið upp í fjöru. Mynd af honum glaðbeittum birtist á forsíðu Tímans.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.