Bændablaðið - 18.11.2021, Qupperneq 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 19
Fyrirtækið Ver lausnir í
Garðabæ hefur verið að vinna
að athyglisverðu verkefni þegar
kemur að plastgrindum, sem
notaðar eru víða á til dæmis
göngustígum, bílaplönum og í
landbúnaði, en grindurnar eru
búnar til með því að endurvinna
plastpoka og t.d. rúlluplast frá
bændum. Grindurnar eru með
20 ára framleiðsluábyrgð.
„Við erum að flytja inn þessar
grindur frá fyrirtæki í Þýskalandi
sem heitir Purus Plastics, sem var
stofnað 1984 í þeim tilgangi að
endurvinna plast í vörur sem menga
ekki og væru endurvinnanlegar. Á
sama tíma væri þetta vara sem annars
væri framleidd úr nýju hráefni.
Með hverri vöru sem er framleidd
úr endurunnu plasti leggjum við
mikilvægt framlag til að minnka CO2
fótspor okkar og koma í veg fyrir
sóun auðlinda á skilvirkari hátt. Með
þróun skynsamlegra og sjálfbærra
lausna sem gegna lykilhlutverki við
að styrkja jarðveginn og stuðla að
eðlilegu grunnvatni í jörðinni.
Grindurnar hafa fengið aukið
vægi þar sem ofanflóð verða tíðari
með lokun jarðvegs með malbiki,
steypu og hellum sem stýrir
aðkomuvatni í frárennsliskerfin
í þéttbýli. Þau voru hönnuð fyrir
löngu síðan og geta ekki tekið við
þessu aukna vatni og leiða því til
flóða í þéttbýli,“ segir Magnús H.
Sólmundsson hjá Ver lausnum.
Fyrirtækið hefur verið að selja
þessar grindur síðan 2006 og er
bílastæði við Háskólann í Reykjavík
og stæði fyrir framan Össur með
fyrstu verkefnum. Grindurnar eru
komnar víða um land, á sumum
stöðum sjást þær vel en annars
staðar eru þær undir grasi eins og
t.d. bílastæðið við Selfosskirkjuna,
undir hellum eins og í Kalkofnsvegi
í Reykjavík og möl, svo nokkuð sé
nefnt. Þá eru grindurnar í nýjum
göngustíg í Vestmannaeyjum.
„Við erum búnir að láta
verksmiðjuna vinna 50 tonn af plasti
sem kemur frá Terra og erum við
að vonast til að áhugi verði hér á
Íslandi til þess að mynda hringrás
þannig að það fari plast héðan og
unnið í verksmiðjunni og komi til
baka sem grindur, sem væru notaðar
í bílastæði og göngustíga í staðinn
fyrir t.d. malbik,“ segir Magnús enn
fremur. /MHH
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogi | S. 544 4656 | mhg.is
VETRARBÚNAÐUR
Salt- og sanddreifarar.
Amerísk gæðatæki sem endast.
Rúlluplast í plastgrindur í göngu
stígum og bílaplönum slær í gegn
Nýr göngustígur í Vestmannaeyjum hefur fengið mikið lof fyrir plastgrindurnar,
sem þar eru frá Ver lausnum. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Plastgrindurnar frá Ver lausnum
eru komnar víða um land og njóta
vinsælda.
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Kraftblanda-15
• 15% fiskimjöl
• Óerfðabreytt hráefni
• Lífrænt selen
Kraftblanda-30
• 30% fiskimjöl
• Óerfðabreytt hráefni
• Lífrænt selen
Kraftblanda
Inniheldur Effekt Midi Island steinefnablöndu V
O
R
A
R
Næsta blað kemur út 2. desember