Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 21
getur þannig aldrei komið í stað
náttúrulegu frumskóganna sem fyrir
voru.
Margföldun skóga í Evrópu
Nú er svo komið að skógarþekja í
Evrópu hefur margfaldast á síðustu
rúmu hundrað árum. Svipaða sögu
má segja frá Bandaríkjunum. Það
má m.a. þakka pappírsiðnaðinum
sem setti sér fljótlega háleit mark-
mið í uppgræðslu skóga á alþjóða-
vísu. Farið var í herferðir eins og
„Go Paper. Grow Trees“, og „Print
Grow Trees“, sem reknar voru af
prent- og grafíksamtökum á Mið-
Atlantshafssvæðinu, bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum (Printing &
Graphics Association MidAtlantic).
Fólust þessar herferðir í því að fyrir
hvert tré sem höggvið var til papp-
írsgerðar var plantað fjölmörgum í
staðinn, allt upp í níu trjám.
Aukaafurðir í timburvinnslu gefa
af sér mikilvægar viðartrefjar til
pappírsframleiðslu
Ferskar viðartrefjar koma ekki bara
úr stórum trjábolum, því þær falla
oftar en ekki til sem aukaafurðir úr
timburframleiðslu. Það er greinar,
pappírskurl og sag auk grisjunar-
viðar sem fellur til í skógrækt.
Í Kanada kemur um 87% trefjanna
sem notaðar eru til að búa til pappír
úr aukaafurðum sögunarverksmiðja
(59%) og úr endurunnum pappír
(28%).
Í Bandaríkjunum koma 9% af
efninu sem notað er í pappírskvoða-
framleiðslu úr grisjun og um 32 % er
úrgangstimbur frá sögunarmyllum.
Skilvirk notkun á endurunnum papp-
ír og aukaafurðum úr sögunarverk-
smiðjum er lykilþáttur í hringlaga
hagkerfi pappírsgerðar – sem gerir
ráð fyrir bættri trefjanýtingu og hrá-
efnisnotkun.
Pappírsendurvinnsla í
Evrópu og Norður-Ameríku að
nálgast raunhæft hámark
Á heimsvísu er endurunninn pappír
mikilvægasta trefjahráefnið í papp-
írsframleiðslu og stendur yfir 56%
þeirra trefja sem fara í gerð papp-
írskvoðu. Í Evrópu er endurunninn
pappír um 50% af því hráefni sem
notað er í pappírsiðnaði.
Í Evrópu eru pappírstrefjar endur-
nýttar 3,6 sinnum að meðaltali en
heimsmeðaltalið er 2,4 sinnum.
Ekki er hægt að endurvinna pappír
endalaust vegna þess að trefjar verða
of stuttar og brotna niður í pappírs-
gerðinni. Vegna þessara takmark-
ana er notkun ferskra viðartrefja úr
sjálfbærum skógum nauðsynleg til
að viðhalda alþjóðlegu trefja- og
pappírsframleiðsluferli.
Evrópa er leiðandi í heiminum
í endurnýtingu á pappír
Auk mikillar skógræktar er Evrópa
leiðandi í heiminum í dag varð-
andi endurvinnslu pappírs með
72,3% endurvinnsluhlutfall. Þar á
eftir kemur Norður-Ameríka með
68,1% samkvæmt tölum American
Forest & Paper Association, 2019,
European Paper Recycling Council
2018 og FPAC, 2015.
Talið er að endurvinnsluhlutfall
upp á 78% sé líklega það hámark í
endurvinnslu sem raunhæft sé að
stefna á. Þá er gengið út frá því að
ekki er hægt að endurheimta margar
pappírsvörur til endurvinnslu vegna
langtíma geymslu, eins og pappír
sem notaður er í bækur og skjöl. Þá
eyðileggst alltaf hluti af pappírnum
eða mengast þegar hann er notað-
ur, t.d. í pappírsþurrkur, bleiur og
annað.
Baráttan gegn pappírsnotkun
sögð byggð á vísvitandi
blekkingum
Í umfjöllun á vefsíðu Printing
Impression í apríl á þessu ári má
m.a. sjá grein um árangurinn sem
af þessu náðist. Greinina ritar Kathi
Rowzie, formaður samtakanna Two
Sides North America. Styðst hún
við nýleg gögn frá Matvæla- og
landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO), Skógarþjónustu
bandaríska landbúnaðarráðuneyt-
isins, Nátt úru auðlindastofnunar
Kanada, og Skógar- og pappírssam-
taka Ameríku.
Þar er líka talað um þann blekk-
ingarleik sem settur var af stað
gagnvart almenningi, þar sem reynt
var að fá fólk til að minnka papp-
írsnotkun til að koma í veg fyrir
skógareyðingu. Þessi blekkingarleik-
ur var rekinn af mikilli hörku og ofsa
þar sem aðgerðarsinnar höfðu sig
mjög í frammi, ekki ólíkt því sem
viðgengst hefur í loftslagsbaráttunni
í dag. Var fólki sem vogaði sér að
bruðla með pappír gjarnan stillt upp
sem sakamönnum. Farið var í mikil
blaðaskrif og auglýsingamennsku
með tilkomumiklum, fyrirsögnum.
Til að auka trúverðugleikann var
umfjöllunin gjarnan krydduð með
vísun í orð ótilgreindra vísinda-
manna. Meira að segja hið vinsæla
rit Popular Science sló upp umfjöll-
un undir fyrirsögninni: „Nútímaleg
pappírsnotkun er mjög ósjálfbær.“
Herferðin gegn pappírsnotkun
var alls ekki á misskilningi byggð,
því hún var meðvituð og reyndist
oftar en ekki byggð á afvegaleiðandi
blekkingum og ósannindum. Í grein-
inni í Printing Impression segir m.a:
„Þegar allt kemur til alls er pappír
ekki aðeins mest endurunna efnið í
Norður-Ameríku. Það er líka efni
þar sem iðnaðurinn vex og endur-
ræktar eigið hráefni (viðartrefjar).
Þá fær þessi iðnaður stærstan hluta
af orkunni sem fer til að knýja ferla
sína úr kolefnishlutlausu lífeldsneyti.
Hann endurvinnur meira en 95% af
efnum sem notuð eru til að breyta
trjám í kvoðu. Þetta er ekki „ósjálf-
bært“. Þetta er lýsing á sumum af
sjálfbærustu vörum heims.
Þú veist alltaf hvað er í vændum
þegar grein byrjar með klassískum
orðum um ofnýtingu og dauða-
dæmda skóga. Agn er lagt fyrir
lesendur með því að mála hugræna
gildishlaðna mynd af eyðileggingu
fjarlægra skóga í útrýmingarhættu
eins og þeim í Borneo og Amazon.
Síðan er gefið í skyn að eyðing frum-
skóga [í Asíu og Suður-Ameríku] sé
vísbending um að þessir skógar séu
uppspretta trjáa sem notuð eru fyrir
pappírsiðnað og pappírsumbúðir
fyrir vörur í Norður-Ameríku.
Staðreyndin er hins vegar sú
að pappírsvörur framleiddar í
Bandaríkjunum og Kanada koma
frá sjálfbærum skógum í Norður-
Ameríku og þessir skógar eru ekki
að „hverfa“. Grunnflatarmál skóga í
Bandaríkjunum jókst um um það bil
7,2 milljónir hektara (18 milljónir
ekra) á árunum frá 1990 til 2020 og
grunnflatarmál skógarsvæða Kanada
var nokkuð stöðugt á milli 1990 og
2020, eða um það bil 343 milljónir
hektara (857 milljónir ekra).
Á hverju ári bætist við umfang
viðar í skógum í Norður-Ameríku
umtalsvert meira en höggvið er. Í
Bandaríkjunum er árleg nettó aukn-
ing viðarinnihalds í skógum rúmlega
7,08 milljónir rúmmetra (25 milljarð-
ar rúmfeta). Grisjun og skógarhögg
í Bandaríkjunum á sér stað á innan
við 2% skóglendis á ári í saman-
burði við næstum 3% sem skemmist
árlega vegna náttúrulegra atburða
eins og vegna skordýra, sjúkdóma
og skógarelda. Skógarhögg á sér
stað á 0,2% af skóglendi Kanada,
en 4,7% verður fyrir skemmdum
af völdum skordýra og um 0,5%
skemmist í skógareldum.
Andstætt því sem áróðurs-
meistarar halda fram um að fram-
leiðsla og notkun pappírs eyði skóg-
um, þá skapar krafan um sjálfbæran
pappír og pappírsumbúðir öflugan
fjárhagslegan hvata fyrir land-
eigendur. Ekki aðeins til að stjórna
og rækta landið sitt á ábyrgan hátt,
heldur einnig til að halda því skógi
vöxnu frekar en umbreyta landinu
fyrir notkun án skóga. Það er að
segja undir þéttbýli og annað, sem
er ein af helstu staðfestu orsökum
skógareyðingar.“
Segir trefjar úr öðrum jurtum
ekki koma í stað trjátrefja
Greinarhöfundur Printing Impress-
ion bendir einnig á að það sé mis-
skilningur að aðrar trefjar en fást
úr trjám geti með öllu leyst nýtingu
trjáa af hólmi.
„Vissulega geti aðrar trefjar
verið notaðar á sjálfbæran hátt í
ákveðnum pappírsflokkum og við
ákveðnar aðstæður, sérstaklega á
svæðum heimsins eins og Indland
og Kína þar sem viðartrefjar eru af
skornum skammti. En fullyrðingin
um að val á öðru hráefni en trjám
hafi aðeins brot af þeim umhverfis-
áhrifum sem trjátrefjar hafa eru
grófar ýkjur. Þó að þörf sé á alhliða
lífsferilsmati til að ákvarða heild-
ar umhverfisáhrif annarra trefja
á pappírsgerð er hægt að draga
nokkrar víðtækar ályktanir.
Til að byrja með eru aðrar trefjar
oft ræktaðar eins og við aðra land-
búnaðarræktun. Það þýðir að engin
tré verða nokkurn tíma á landinu
þar sem þessar plöntur eru gróð-
ursettar. Endurgróðursett er í skóga
sem nýttir eru vegna framleiðslu
viðartrefja.
Líkt og við ræktun annarra
nytjaplanta í landbúnaði, þá þurfa
aðrar trefjaríkar jurtir en tré venju-
lega meira vatn og skordýraeitur og
mynda meira afrennsli en skógar.
Ólíkt trjám, verður eftir lítill
afgangur af lífmassa í öðrum trefj-
um. Þá verður í vinnsluferlinu við
að að breyta þeim trefjum í pappír
að treysta meira á jarðefnaeldsneyti
en gert er þegar viðartrefjar eiga
í hlut.
Þar að auki benda alþjóðlegar
tölur um skóga ekki til þess að
notkun annarra trefjapappírsvara
myndi vernda skóga til langs tíma.
Þau svæði í heiminum sem neyta
minnsta magns af viði eru þau sem
eru með hröðustu skógareyðinguna.
Það er rétt sem haldið hefur
verið fram að að pappírsvörur í
heild eru endurunnar í yfir 60%
tilvika í Bandaríkjunum. Reyndar
er talan nær 66% og 70% í Kanada,
en jafnvel þessi tölfræði er aðeins
hálf sagan. Sumar pappírsvörur,
eins og bylgjupappakassar, eru
endurunnar á yfir 90% hlutfalli,
sem sýnir möguleikann á því að
heildarendurvinnsluhlutfall fari
enn hærra.
Pappírsiðnaðurinn í Norður-
Ameríku hefur fjárfest tugi millj-
óna dollara í fjármagnsfrekri endur-
vinnslutækni, sem og söfnunar- og
flutningskerfi til að styðja hana.
Eins og í nýjustu könnuninni nota
yfir 80% allra pappírsverksmiðja í
Bandaríkjunum endurheimtar trefjar
sem að minnsta kosti hluta af trefja-
gjafa sínum. Fjárfestingarnar eru að
skila sér þar sem nýrri búnaður og
aðferðir gera pappírsverksmiðjun-
um kleift að endurgera pappír eftir
neyslu sem var einu sinni ónothæf-
ur, þar á meðal meira af pappírs-
bollunum og óhreinum pitsukössum
sem höfundar nefndu,“ segir Kathi
Rowzie.
Hún bendir líka á rangfærsl-
ur umfjöllunar varðandi efna-
meðhöndlun í pappírsiðnaði m.a.
við bleikingu á pappír sem beitt er
til að gera hann hvítari.
„Á síðustu þremur áratugum
hafa stórfelldar fjárfestingar í
iðnaðinum og strangari umhverfis-
reglur sameinast við að knýja fram
miklar framfarir í bleikingartækni.
Þar sem höfundar Popular Science
vísa sérstaklega til „nútímalegrar“
pappírsgerðar, skulum við hafa það
á hreinu að nýjustu verksmiðjuferl-
ar hafa dregið verulega úr líkunum
á að efnin sem höfundarnir vísa til
geti losnað út í umhverfið.“
Byggjum á grunni raunverulegra
gagna og vísinda
Svo klykkir Kathi Rowzie út með
þessum orðum um það sem hún telur
rangfæslur um pappírsframleiðslu:
„Já, fyrir alla muni, við ættum
að endurþjálfa heilann. En við skul-
um byrja á því að standast hvötina
til að klippa og líma sömu þreytu
goðsagnirnar í tilkomumikilli endur-
vinnslu greina. Við skulum byrja á
að skoða hver raunveruleikinn er í
nútímalegri framleiðslu og notkun
pappírs og byggja þjálfun hugans
á grunni raunverulegra gagna og
vísinda.“
Samtökin Two Sides North
America eru sjálfstæð
samtök sem ekki eru rekin í
hagnaðarskyni. Eru þau hluti
af Two Sides – alþjóðlegu neti
sem samanstendur af meira en
600 aðildarféögum víðs vegar
um Norður-Ameríku, Suður-
Ameríku, Evrópu, Ástralíu og
Suður-Afríku.
Aðildarfélögin spanna
alla virðiskeðju grafískra
samskipta (prentmiðla) og
pappírsumbúðagerðar. Þau
snerta því m.a. skógrækt,
pappí r skvoðuf ramle iðs lu ,
pappírsiðnað, margvíslega
efnisnotkun eins og blek,
vélbúnaðargerð, prentun, útgáfu,
frágang, umslög og póstflutninga.
Með því að beita yfirvegaðri
nálgun, er Two Sides að segja
sjálfbærnisögu prentunar, pappírs
og pappírsmiðaðra umbúða.
„Við tökumst á við viðkomandi
umhverfis- og samfélagsmál með
raunverulegum, viðurkenndum
upplýsingum sem afhjúpa
goðsagnirnar, útskýra raunverulega
sjálfbærni iðnaðarins okkar og gefa
hagsmunaaðilum traustan grunn til
að taka vel upplýstar ákvarðanir
um notkun prent- og pappírsvara,“
segir m.a. í yfirlýsingu samtakanna.
„Með því að efla betri skilning á
vörum okkar erum við að staðsetja
þær sem valmöguleika fyrir
morgundaginn.“
Two Sides North America
Kathi Rowzie, formaður samtakanna
Two Sides North America.