Bændablaðið - 18.11.2021, Page 27

Bændablaðið - 18.11.2021, Page 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 27 VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is ALLAR STÆRÐIR AF CAT RAFSTÖÐVUM Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika. Stöðvar í gám Næsta blað kemur út 2. desember UMHVERFISMÁL Unnar matvörur eru slæmar fyrir heilsu og jörð: Umhverfisáhrif mataræðis aukast Flestir þekkja þær opinberu ráð- leggingar um mataræði að æski- legt sé að velja fyrst og fremst lítið unnar matvörur sem eru ríkar af næringarefnum frá náttúrunnar hendi, því mikið unnar matvörur stuðli að þyngdaraukningu. Fjöldi rannsókna sýna fram á það að með því að borða hollan og fjölbreyttan mat stuðli maður að góðri heilsu og vellíðan. Minna hefur verið kannað um tengsl unninna matvæla og umhverfisáhrifa en ný rannsókn, sem birtist á dögunum í The Lancet, tengir aukna neyslu unninna mat- væla við meiri losun gróðurhúsaloft- tegunda. Þar kemur enn fremur fram að neysla á svokölluðum ofunnum matvælum hafi aukist mikið á sl. 30 árum. Hægt er að flokka matvæli skv. svokölluðu NOVA kerfi sem byggir á eðli og umfangi matvælavinnslunn- ar. Skiptir kerfið matvælum í fjóra flokka frá óunnum til ofurunninna matvara (e. ultra-processed). Ofunnin matvæli einkennast af mikilli vinnslu, íblöndun auka- efna sem hafa það hlutverk að gera afurðina bragðgóða og sjónrænt aðlaðandi. Dæmi um ofunnin mat- væli eru unnar kjötvörur á borð við nagga, pylsur, sykrað morgunkorn, gos, matur og drykkur sem innihalda sætuefni og bragðefni og frosnar til- búnar máltíðir. Rannsóknin skoðaði matvæla- kaup á stórborgarsvæðum í Brasilíu á 30 ára tímabili og reiknaði út losun gróðurhúsalofttegunda, vatnsfótspor og vistspor á hverja 1000 kkal af keyptum mat og drykk, auk þess að kanna hvernig magn vinnslu mat- væla hefði áhrif á útblástur gróður- húsalofttegunda. Frá árinu 1987 til 2018 jókst losun gróðurhúsalofttegunda vegna mataræðis um 21%, vatnsfótspor- ið jókst um 22% og vistsporið um 17%. Breytingar á áhrifum mat- vælavinnslu á loftslagið var misjafnt, það minnkaði í einhverjum tilfellum þegar um var að ræða minna unnin matvæli. En eftir því sem matvæli eru meira unnin aukast áhrif þeirra á loftslagið. Þannig hafa áhrif mat- vælavinnslu ofunninna matvæla aukist um 183% á þessu þrjátíu ára tímabili. Niðurstöðurnar benda því til þess að umhverfisáhrif mataræðis hafi aukist ásamt auknum áhrifum frá ofurunnum matvælum. Þetta þýðir að mataræði er ekki eingöngu að verða skaðlegra heilsu manna heldur einnig plánetunnar. Höfundar rannsóknar- innar benda á að þörf sé á breytingu á núverandi þróun til að efla sjálfbær heilbrigð matvælakerfi. /ghp Ofunninn matur einkennist af mikilli matvælavinnslu, íblöndun aukaefna sem hafa það hlutverk að gera afurðina bragðgóða og sjónrænt aðlaðandi. Verð: 7.612 kr. Vattfóðruð skyrta J5157 Þunn skyrta J5138 Verð: 6.490 kr. Við leggjum áherslu á góða þjónustu við landsbyggðina. Frábærar skyrtur frá Jobman! Vefverslun: Khvinnufot.is Durability at work since 1975 Jólagjöfin í ár! Akureyri · Sími 465 1332 www.buvis.is PANTIÐ TÍM ANLEGA Sænskar snjókeðjur

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.