Bændablaðið - 18.11.2021, Síða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 29
Alvöru dælur sem vinna verkið á methraða. Þú færð Nilfisk hjá Rekstrarlandi
í Vatnagörðum og í útibúum Olís um land allt.
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
NILFISK
HÁÞRÝSTIDÆLUR
Passaðu þrýstinginn – hann þarf nefnilega að vera nægur
Pipar\TBW
A
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | Olís Njarðvík | 260 Reykjanesbæ | 420 1000 | rekstrarland.is
UTAN ÚR HEIMI
Orkuskipti í samgöngum byggir í flestum tilfellum á nýtingu rafmótora:
Flestir bílaframleiðendur veðja á efnarafala
fremur en rafhlöður í þung ökutæki
– Samt er búist við að dísilbílar verðir ráðandi á trukkamarkaði næstu 30 árin
Vetnisvæðing, sem nú er rekin
áfram af mikilli ákefð hjá öllum
stærstu iðnríkjum heims, byggir
á að vetni verði framtíðar orku-
miðill í komandi orkuskiptum og
fráhvarfi frá nýtingu jarðefnaelds-
neytis. Þá er gengið út frá því að
vetnið verði nýtt í margvíslegum
iðnaði og líka í samgöngum til að
knýja rafbíla.
Það eru einkum framleiðendur á
trukkum, rútum og öðrum þungum
farartækjum sem horfa nú til að nota
vetni sem orkumiðil í umbreytingu
yfir í rafbíla. Ástæðan liggur í því að
liþíumjóna-rafhlöðurnar (lithiumIon)
sem nú er notast við, þykja of dýrar
í framleiðslu, of þungar og að of
langan tíma taki að endurhlaða þær
fyrir bíla á langkeyrslu. Þá sé enn
óleystur vandi sem felst í endurnýt-
ingu á notuðum rafhlöðum, þó mikil
þróunarvinna sé þar í gangi.
Hyundai, Hino, General Motors,
Nikola, Toyota, Cummins og fleiri
sammála um vetnisvæðingu
Framleiðendur eins og Hyundai,
Hino, General Motors, Nikola,
Toyota, Cummins og fleiri virðast
vera sammála um að trukkar fram-
tíðarinnar verði rafknúnir, en orkuna
fái þeir ekki frá rafhlöðum heldur
frá vetnis-efnarafölum. Þetta er í
miklu samræmi við mjög gagnrýna
umræðu víða um lönd á framleiðslu
og nýtingu á LithiumIon rafhlöðum
sem og rannsóknir sem gerðar hafa
verið á slíkum rafhlöðum. Samt eru
þetta þær rafhlöður sem þykja bestar
í dag, en stöðugt berast þó fréttir af
frekari þróun á því sviði.
Dana og Bosch í samstarf um
íhlutaframleiðslu fyrir efnarafala
Dana Inc., sem er heimsþekktur
framleiðandi á hásingum undir jeppa,
vörubíla, stóra trukka og rútur, til-
kynnti nýlega langtímasamstarf við
rafiðnaðarrisann Bosch um fram-
leiðslu á rafþynnum í efnarafala.
Bosch segir að þekking fyrirtækisins
í framleiðslu á búnaði í efnarafala
muni gera báðum fyrirtækjum kleift
að bæta enn frekar tvískautar plötur
í efnarafla. Til viðbótar komi sér-
þekking Bosch í fjöldaframleiðslu,
sérstaklega á leysisuðu, prófunum
og nýtingu á sjálfvirkni. Til að
mæta aukinni eftirspurn á markaði
mun heildarmagn framleiðslunnar
fara yfir 100 milljónir tvískautaðra
málmplatna fyrir markaði í Evrópu-,
Asíu og Kyrrahafslöndum sem og í
Norður -Ameríku. Fyrirtækin segj-
ast búast við því að plöturnar verði
komnar í efnarafala fyrir atvinnubíla
frá og með árinu 2022.
Toyota hefur framleiðslu á
efnarafalasamstæðu 2023
Toyota ætlar að koma vetnis-efnarafal
fyrir rafknúna trukka í framleiðslu
innan tíðar. Mun sérstök framleiðslu-
lína hjá Toyota Motor Manufacturing
Kentucky (TMMK) hefja sam-
setningu á tvöföldum samþættum
efnarafalseiningum (FC) á árinu
2023. Í raun er um að ræða allt drif-
kerfi trukka og verða efnarafalarnir
ætlaðir til notkunar í vetnisknúnum
atvinnubílum til þungaflutninga.
Toyota segir að FC-einingarnar geri
vörubílaframleiðendum kleift að
innleiða mengunarlausa efnarafala
í núverandi framleiðslulínur með
tæknilegum stuðningi frá Toyota.
Tvöfalda efnarafalasamstæðan mun
vega um 700 kg og á að skila 160
kílówöttum af stöðugu rafmagni.
Samstæðan samanstendur líka af
háspenntri rafhlöðu, rafmótorum,
skiptingu og vetnistönkum.
Fyrir tæpu ári tilkynnti Hino
Trucks að það væri að smíða raf-
knúinn vörubíl í flokki 8 sem knúinn
yrði með vetnisefnarafal. Fyrirtækið
stóð við þetta með því að afhjúpa
frumgerð Class 8 Hino XL8 á sýn-
ingunni 2021 ACT Expo á Long
Beach í Kaliforníu.
Daimler Truck og Volvo í
samstarf um vetnisefnarafal
Í apríl 2020 tilkynntu Daimler Truck
AG (framleiðendi Benz) og Volvo
Group að þessir stóru samkeppn-
isaðilar á heimsvísu skrifuðu undir
bráðabirgðasamning um að koma
á fót nýju samstarfsverkefni til að
þróa, framleiða og markaðssetja
efnarafala (Fuel cell) fyrir þungar
bifreiðar og aðra notkun. Í október
tilkynnti Hino um eigið vetnisbíla-
verkefni. Í nóvember tilkynntu
Cummins og Navistar að þeir muni
vinna saman að þróun Class 8 vöru-
bíls sem knúinn verður vetniselds-
neyti. Árið 2021 byrjaði svo með
því að Navistar tilkynnti um samstarf
við General Motors og OneH2 um að
koma vetnisbíl til aksturs á löngum
leiðum á markað.
Olíurisinn Shell ætlar sér stórt
hlutverk í vetnisvæðingunni
Hollenski olíurisinn Shell stefnir á
miklar fjárfestingar í vetnisiðnaði.
Fyrirtækið hyggst m.a. byggja á mik-
illi reynslu í uppbyggingu innviða í
dreifingu á jarðefnaeldsneyti. Lítil
innviðauppbygging varðandi vetni er
einmitt sá Akkilesarhæll sem oftast
er bent á varðandi frekari vetnisvæð-
ingu. Hefur Shell þegar sett af stað
uppbyggingu dælustöðva fyrir vetni
í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
„Fyrir mér er notkun vetnis og
vetnisefnarafalar framtíðin,“ segir
Jeff Priborsky, yfirmaður markaðs-
setningar Shell á heimsvísu, á vef-
síðu tímaritsins Fleet Equipment fyrr
á þessu ári.
Hann telur að dísilvélar í ökutækj-
um muni samt áfram verða yfirgnæf-
andi á markaðnum næstu 30 ár, eða
fram til 2050.
Shell hefur lýst því yfir að
fyrir tækið ætli sér að vera orðið
kolefnis hlutlaust ári 2050. Er Shell
komið á fulla ferð í þessari vegferð.
Fyrirtækið hefur alla tíð verið öflugt
í gasframleiðslu, þá hefur það fjár-
fest í uppbyggingu vindorkugarða
og á það fjölda vindmylla úti fyrir
ströndum Evrópuríkja. Það er líka í
framleiðslu á rafhlöðum og er komið
á fullt í vetnisvæðingu.
Vetni er framtíðin í trukkunum,
segir fulltrúi Volvo
Framleiðendurinir Cummins,
Daimler Trucks, Hino, International
Trucks, PACCAR og Volvo Trucks
hafa allir fjárfest mikið í þróun
vetnisbíla. Á blaðamannafundi þar
sem Volvo Trucks North America
tilkynnti að það væri þó að opna fyrir
pantanir fyrir VNR Electric [það er
rafhlöðudrifinn trukkur, innskot
blm.], sagði Peter Voorhoeve, forseti
Volvo Trucks North America:
„Við trúum því að vetniselds-
neyti sé annar valkostur sem mun
eiga sér stað í framtíðinni. Þið munið
ekki bara sjá eina lausn varðandi
eldsneytisgjafa. Við munum halda
áfram að nota dísilbíla. Við munum
sjá hratt vaxandi fjölda rafmagns-
bíla á vegunum. Við munum líka sjá
vetnisefnarafala í vörubílum, sem
munu leika aðalhlutverkið í akstri á
lengri leiðum og í þungaflutningum.
Rafhlöðuknúnu rafmagnsbílarnir
munu frekar vera notaðir í stutt-
ar ferðir og við dreifingu á vörum
innan svæða, við heimsendingar á
mat og öðru. Við munum líka enn sjá
dísilolíu notaða í samgöngum sem
og jarðgas. Trukkar búnir efnarafal
munu klárlega verða hluti af lausn-
inni í framtíðinni,“ sagði Peter
Voorhoeve. /HKr.
Jeff Priborsky, yfirmaður markaðs-
setningar Shell á heimsvísu, segir að
olíurisinn stefni á miklar fjárfestingar
í vetnisiðnaði.
Flutningabíll sem verður knúinn drifbúnaði og vetnisefnarafal frá Toyota.