Bændablaðið - 18.11.2021, Side 39

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 39 Fjölplógar í stærðum frá 1.35m til 4.0m Verð1.290.000 kr. án/vsk Plógur á mynd: 3.3m með 3p festingu og stjórnborði Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Austurvegi 69, 800 Selfossi Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is SANDBLÁSTURSSANDUR  Glerperlur  Garnet  Soda  Plastkúlur  Járnsandur  Stálsandur  Álsandur  Hnetuskeljar SANDBLÁSTURSKASSI VERÐ 74.990 kr  HREINSIEFNI - Íslensk  SANDBLÁSTURSSANDUR  SANDBLÁSTURSKASSAR  SANDBLÁSTURSKÚTAR  SANDBLÁSTURBYSSUR  KERAMIKSPÍSSAR  ÞVOTTAKÖR  ULTRASONIC CLEANER  O.m.fl. SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA SÍÐAN 1985 SANDBLÁSTURSKASSI VERÐ 37.690 kr SOLIS er uppseldur, ný sending væntanleg! SOLIS 26 beinsk. Möguleiki á frambúnaði eða ámoksturstækjum ÞAÐ ER BARA SOLIS vallarbraut.is S-4540050 vallarbraut@vallarbraut.is Trönuhrauni 5 220 Hafnarfirði SOLIS 26 HST sjálfskipt. SOLIS 90 NARROW 89 hestöfl Gangstéttarvélin aðeins 145cm Möguleiki á frambúnaði. SOLIS 50 væntanleg SOLIS 75 væntanleg SOLIS 90 væntanleg Samþætting þunglyndis og kvíða annars vegar og þarmaflórunnar hins vegar, hafa gjarnan vakið forvitni – að þarna dansi saman atriði sem sýna einhvers konar svörun hvort við öðru. Þó enn vanti ítarlegri rannsóknir á þessu sviði hafa næringarfræðingar viljað meina að slæm samsetning mataræðis nútímans hafi áhrif á líðan okkar og þá er ekki verið að spá í aukakílóin heldur geðheilsuna. Serótónín, sem hefur stundum verið kallað „gleðihormónið“, er eitt þeirra hormóna eða taugaboðefna sem okkur eru nauðsynleg hvað varðar jafnvægi geðheilsu. Omega 3, D og B vítamín, þá helst B6 og B12 eru gjarnan nefnd í því samhengi að spila stórt hlutverk serótónínframleiðslu og með neyslu ýmissa fæðutegunda umfram aðrar er talið að hægt sé að auka vægi þeirra í líkamanum. Vítamínið magnesíum má einnig telja með, en það er róandi og hefur því áhrif á kvíða og stress. Talið er að skortur á taugaboðefn- inu eigi þátt í röskunum eins og þung- lyndi og kvíða, auk þess sem líkami þeirra sem þjást af slíkum ófögnuði eigi erfiðara með að vinna úr – eða hafi færri og/eða ónæmari serótónín- viðtaka sem þá veldur minni virkni taugaboðefnisins. Lífeðlisfræðin kennir okkur að serótónín er að mestum hluta, eða 90%, myndað í enterókrómaffín- frumum meltingarfæranna, þ.e.a.s. maga og smáþörmum, og helst þannig í hendur við hugmyndina um að mataræði geti haft eitthvað að segja er kemur að andlegri heilsu. Mataræði innri friðar Ef vel er að gáð, á ferðalagi um netheima eða þegar blaðað er í nær- ingarfræði og matreiðslubókum, koma í ljós ýmsar tegundir matar sem eiga sameiginlegt há gildi serótóníns. Þar er jafnframt oft bent á skaðsemi þess að neyta unninna matvæla, djúp- steiktra, vel saltra eða sætra – því þó slík gleði sem það getur veitt um stund og mörgum tamt að leita í til hugarhægðar – þá stuðlar þess háttar neysla að bæði þunglyndi, streitu og kvíða. (Sem er nú kannski ekki á bæt- andi í amstri þjóðfélagsins.) Jæja, ef á að reyna að útiloka hvað flest þeirra neikvæðu áhrifa þess sem við setjum upp í okkur má reyna að borða sem fjölbreyttasta fæðu, hreina – og leggja áherslu á eftirfarandi sem eiga það sameiginlegt að í þeim finn- ast há gildi annaðhvort omega3, D & B vítamína og/eða magnesíum. ■ Feitur fiskur, til dæmis sardínur, ansjósur og silungur, sem innihalda omega 3 og D vítamín. ■ Grænmeti, sem dæmi sætar kar- töflur, spínat, grænkál og brokkolí innihalda B vítamín og magnesíum, bok choy, skalottlaukur og eldpipar hafa hátt gildi B6 auk blómkáls, sem hefur allt að 120% af ráðlögðum dag- skammti B 6 vítamíns í einum haus. ■ Ávextir, svo sem avocado (lárper- ur) eru ríkar af bæði B6 vítamíni og Omega3, kantalópumelóna hefur hátt gildi bæði B6 vítamíns og magnesí- um, rúsínur einnig svo og ber af ýmsu tagi en þau hafa helst áhrif á bólgur í líkamanum og minnka þannig vanlíð- an enda haldast oft í hendur líkamleg og andleg slæmska. ■ Grófir hafrar og brún hrísgrjón eru liður í því að leysa serótónín líkam- ans úr læðingi. ■ Möndlur, graskersfræ, kasjúhnetur, valhnetukjarnar, í raun allar hnetur og fræ, innihalda nokkurt jákvætt magn Omega 3, magnesíums og B vítamína. ■ Egg eru góð og stútfull af B12 og D vítamínum. ■ Súkkulaði, þá helst 70% og hærra, hefur áhrif á serótónínin okkar vegna þess hve góð áhrif það hefur á þarmaflóruna auk þess að vera ríkt af magnesíum. Svo eitthvað sé nefnt. En að auki … Já. Þetta var nú ekki tæmandi listi. Aðalatriðið er kannski bara það að nærast að stórum hluta á því sem náttúran gefur okkur, og svona án þess að fæðan sé mikið unnin. Til viðbótar hafa sveskjur, hörfræ og vatnsdrykkja virk áhrif á þarma og gott að minna sjálfan sig á það öðru hvoru. Þarmaflóruna má svo líka bæta með góðgerlum eða neyslu gerjaðs grænmetis sem inniheldur bæði trefjar og lifandi mjólkur- sýrugerla. Gerjað eða sýrt grænmeti er til dæmis hægt að útbúa heima við, enda lifa náttúrulegir mjólkur- sýrugerlar í öllum heilnæmum jurtum. Í grófum dráttum er uppskriftin eins og kemur fram hér að neðan, en auð- velt er að finna ýmsar útfærslur af henni í bókum og á netinu. Rífa má, eða skera niður hvít- kál, gulrætur, rófur, rauðrófur jafn- vel blómkál, smálauka eða hvaða grænmeti sem hugurinn girnist. Piparkorn, lárviðarlauf, kúmín, kóríanderfræ, fennel eða annað bragðgott krydd er gott að hafa handhægt, svo og lítra af ediki. Sykur og salt, helst gróft og t.d. matskeið af hvoru. Ekki er nauðsynlegt að nota sykur og ekki allra, en salti má ekki sleppa. Edik skal fara í pott (ekkert tiltökumál er hvaða edik er notað), og soðið saman með kryddunum, salti og sykri. Á meðan má skera grænmetið niður og setja í glerkrukku sem þétt- ast, hella svo úr pottinum í krukkuna þannig að vökvinn fljóti yfir græn- metið og lokið sett þéttingsfast á. Galdurinn felst í því að gerjunin fari fram í loftfirrtri krukku en þá ná mjólkursýrubakteríurnar að fjölga sér sem best. Gerjunartíminn fer eftir grænmetinu, en miðað er við allt frá einhverjum dögum upp í nokkrar vikur – sumir segja að miða skuli við þriggja vikna gerjun við stofuhita. Svo er bara óskandi að öllum líði sem best. Dragi djúpt andann eins og þykir bæta geðið í jógafræðum, alveg niður í maga og kveiki á kertum í skamm- deginu bæði innra með sér og í kring. Andi svo frá sér líka. /SP Tilfinningatengd þarmaflóra: Til umhugsunar Í gerjuðu eða sýrðu grænmeti má finna náttúrulega mjólkursýrugerla sem eru þarmaflórunni afar hollir. LÍF&STARF Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 2. desember

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.